Smore logo
remove_red_eye 158
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

2. tbl. 7. árg. - febrúar 2026

FréttabréfGrenivíkurskóla2. tbl. 7. árg. - febrúar 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Þá er fyrsti mánuður ársins að baki og birtustundunum fer fjölgandi með hverjum deginum sem líður. Framundan er febrúar, stysti mánuður ársins, en þó er nóg um að vera í skólanum að vanda.


Til að mynda verða nemendastýrð viðtöl um miðjan mánuðinn, nánar tiltekið mánudaginn 16. febrúar og þriðjudaginn 17. febrúar. Nemendum verður skipt í tvo hópa og kemur annar hópurinn í viðtal hvorn daginn, en hinn daginn mætir hópurinn í stöðvavinnu, fær hádegismat og fer heim að honum loknum. Farið verður betur yfir skipulag þessara daga þegar nær dregur.


Að viðtalsdögum loknum tekur við vetrarfrí, en það er dagana 18., 19. og 20. febrúar. Skóli hefst svo á ný mánudaginn 23. febrúar og þá hefst undirbúningur fyrir Vorskemmtun, en hún verður haldin dagana 18. og 19. mars.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Þorrablót Grenivíkurskóla Þorrablót Grenivíkurskóla

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendur og starfsfólk Grenivíkurskóla tóku forskot á sæluna fimmtudaginn 22. janúar sl. og slógu upp þorrablóti í skólanum. Þorrablótið var einkar vel heppnað og var boðið upp á fjölbreytt og skemmtileg atriði. Nemendur á unglingastigi fluttu pistil, þar sem farið var yfir það helsta sem gerðist á árinu 2025 með spaugilegum hætti, miðstigið bauð í bingó með veglegum vinningum, og yngsta stig hafði sett saman mjög skemmtileg grínmyndbönd.


Kennarar spreyttu sig svo á hinum ýmsu TikTok dönsum og að sjálfsögðu var hefðbundinn þorramatur á boðstólum. Að lokum var slegið upp balli í íþróttasalnum þar sem við dönsuðum saman Kokkinn, Fugladansinn, Keðjudans og Marseringu, en dansarnir höfðu einmitt verið æfðir í sameiginlegum hreyfistundum í janúar.


Vel heppnaður dagur og gaman að þessu hefð sé orðin að föstum lið í skólastarfinu.

Bergið headspace - ráðgjöf við ungmenni Bergið headspace - ráðgjöf við ungmenni

User uploaded image
zoom_out_map

Bergið headspace og Grýtubakkahreppur hafa gert með sér samning um ráðgjöf fyrir ungmenni á aldrinum 12-25 ára fram á vor. Ráðgjafi frá Berginu verður með viðveru í Grenivíkurskóla í átta skipti, á föstudögum, fram í maí.


Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk frá 12-25 ára. Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir ungt fólk sem vill fá aðstoð fagfólks og notenda með fjölbreytta reynslu.


Það er von okkar að þessi þjónusta nýtist ungmennunun okkar vel. Hægt er að fá frekari upplýsingar eða bóka tíma með því að senda póst á erla@bergid.is eða með því að hafa samband við skólastjóra.

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.


Hugtak janúarmánaðar er hnattrænt réttlæti. Hnattrænt réttlæti snýst um jafnan rétt allra jarðarbúa til að uppfylla ákveðnar grunnþarfir. Þetta eru þarfir eins og aðgangur að mat og vatni, skjól gegn veðri og vindum, aðgangur að heilsugæslu, vörn gegn sjúkdómum og hvers konar ofbeldi, aðgangur að menntun, réttlæti og félagsskap við annað fólk. Allir eiga jafnt tilkall til alls þessa óháð kynþætti, litarhætti, kynferði, kynhneigð, tungumáli, trú, skoðun, þjóðerni, uppruna, eignum, ætterni eða öðrum aðstæðum.


Réttur allra jarðarbúa til þessara grunnþarfa hefur verið samþykktur með alþjóðlegum sáttmálum og markmiðum á vegum Sameinuðu þjóðanna m.a. Mannréttindayfirlýsingin, Barnasáttmálinn og Heimsmarkmiðin.


Hnattrænt réttlæti þýðir líka að við þurfum að skipta náttúrulegum auðlindum, auk réttinda og tækifæra á sanngjarnan hátt á milli okkar Jarðarbúa alls staðar í heiminum. Því miður getum við ekki sagt að við búum við hnattrænu réttlæti í dag þar sem peningar, eignir og möguleikar til góðs lífs er dreift á mjög ójafnan hátt, bæði milli fólks innan hvers lands og svo milli landa.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "vinalegur febrúar". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Heimsókn frá samfélagslögreglunni - 15. janúar
  • Þorrablót Grenivíkurskóla - 22. janúar

Á döfinni í febrúar Á döfinni í febrúar

  • 6. febrúar: Dagur leikskólans.
  • 7. febrúar: Dagur tónlistarskólans.
  • 11. febrúar: Dagur íslenska táknmálsins.
  • 16. febrúar: Bolludagur. Viðtalsdagur.
  • 17. febrúar: Sprengidagur. Viðtalsdagur.
  • 18. febrúar: Öskudagur. Vetrarfrí.
  • 19. febrúar: Vetrarfrí.
  • 20. febrúar: Vetrarfrí.
  • 22. febrúar: Konudagur - upphaf Góu.
  • 23. febrúar: Skautaferð - 1.-4. bekkur.
  • 25. febrúar: Valgreinar - 3. lota hefst.
  • 27. febrúar: Dagur einstakra barna.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter