Smore logo
remove_red_eye 165
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

6. tbl. 5. árg. - júní 2024

FréttabréfGrenivíkurskóla6. tbl. 5. árg. - júní 2024

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Þá er skólaárinu lokið og langþráð sumarfrí tekið við, sem verður vonandi sólríkt og skemmtilegt.


Síðasti mánuður skólaársins var að vanda fjörugur og skemmtilegur. Runólfur, kveðjuhátíð 10. bekkjar, var á sínum stað, nemendur fóru í sveitaferðir og skemmtu sér á útivistardögum og ótal margt fleira. Þá fóru nemendur á unglingastigi í vel heppnað skólaferðalag undir lok mánaðar. Grenivíkurskóla var svo slitið föstudaginn 31. maí sl. Um eitthvað af þessu má lesa nánar hér að neðan, en einnig má finna myndir úr skólastarfinu neðst í fréttabréfinu.


Skóli hefst á nýjan leik að loknu sumarfríi þann 22. ágúst næstkomandi. Hér má skoða skóladagatal komandi skólaárs.


Fyrir hönd starfsfólks skólans þakka ég ykkur fyrir liðið skólaár og óska ykkur gleðilegs sumars!


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Skólaferðalag 2024 Skólaferðalag 2024

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendur á unglingastigi fóru í frábært skólaferðalag til Benidorm undir lok maímánaðar. Farið var í vatnsleikjagarð, skemmtigarð, í Go-Kart, á ströndina og ýmislegt fleira. Óhætt er að segja að nemendur hafi skemmt sér konunglega í ferðinni og að þeir komi reynslunni ríkari heim.

Runólfur Runólfur

Runólfur, kveðjuhátið 10. bekkjar, var haldin þann 21. maí síðastliðinn. Runólfur á sér langa sögu, en á þessari hátíð eru nemendur 10. bekkjar í sviðsljósinu og eru það samnemendur þeirra á unglingastigi, ásamt kennurum, sem sjá um að undirbúa daginn. Hátíðin var hin besta skemmtun, farið var í leiki, sagðar sögur og ljúffengar veitingar voru á boðstólum.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "gleðilegi júní". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Samskóladagur í Þelamerkurskóla fyrir 8.-10. bekk - 7. maí
  • Pottapartý hjá yngsta stigi - 17. maí
  • Skólaferðalag 2024 - 23.-28. maí
  • Útivistardagar - 30. og 31. maí

Á döfinni í ágúst Á döfinni í ágúst

  • 15.-21. ágúst: Undirbúningsdagar starfsfólks.
  • 22. ágúst: Skólasetning / útivistardagur.
  • 23. ágúst: Útivistardagur.
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter