Smore logo
remove_red_eye 103
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

1. tbl. 7. árg. - janúar 2026

FréttabréfGrenivíkurskóla1. tbl. 7. árg. - janúar 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Fyrir hönd starfsfólks Grenivíkurskóla sendi ég ykkur öllum bestu nýársóskir með þökk fyrir samvinnuna á liðnum árum. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við ykkur á nýju ári og höfum fulla trú á að komandi ár verði okkur farsælt og heilladrjúgt.


Að vanda var mikið um að vera hjá okkur í desember en mánuðurinn litaðist af jólaundirbúningi og gleði. Við fórum í kyndlagöngu, vorum með laufabrauðsdag, hátíðarmat og litlu jól og þá fórum við í jóga og fleira í hreyfistundum sem mæltist vel fyrir. Myndir úr starfi skólans má að venju nálgast í gegnum tengla á myndaalbúm neðar í fréttabréfinu.


Nýtt ár færir okkur að vanda nýjar áskoranir og ný tækifæri. Við tökum á móti nemendum í skólann með bros á vör og hlökkum til gera okkar besta til þess að önnin framundan verði skemmtileg og lærdómsrík.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Kyndlaganga og litlu jól Kyndlaganga og litlu jól

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendur og starfsfólk skólans fóru í árlega kyndlagöngu þann 16. desember sl., en hefð er orðin fyrir því að fara í slíka göngu í jólamánuðinum. Gengið var að leikskólanum Krummafæti, Grýtu og Grenilundi og sungið fyrir nemendur, starfsfólk og heimilisfólk á viðkomandi stöðum. Við heimkomu gátu göngugarpar svo yljað sér með kakói og gætt sér á skúffuköku.


19. desember var svo hátíðarmatur í hádeginu og litlu jól haldin seinni partinn. Í hátíðarmatnum stigu nemendur í 7. bekk á svið og voru með jólaupplestur og þá fengum við að hlýða á nemendur á miðstigi leika á marimbur og einnig léku þær Björg Guðrún Sigurbjörnsdóttir og Katla Eyfjörð Þorgeirsdóttir á píanó.


Á litlu jólunum var byrjað á stofujólum, þar sem nemendur opnuðu pakka frá samnemenda, lesin var jólasaga, og þá kíktu nokkir jólasveinar í heimsókn og gerðu usla. Að stofujólum loknum var haldið niður í græna sal þar sem farið var í nokkra leiki og þá þökkuðu nemendur hver öðrum fyrir gjafirnar með sérstakri þakkarkeðju, sem er ávallt falleg stund. Í lokin var svo dansað í kringum jólatréð við undirleik Elínar Jakobsdóttur og að endingu haldið heim og í jólafrí.

Möndlugrautur Möndlugrautur

User uploaded image
zoom_out_map

Fimmtudaginn 18. desember var möndlugrautur í hádeginu hér í skólanum, en hefð er fyrir því að lauma nokkrum möndlum í grautarskálarnar og verðlauna heppna nemendur með gjöf.


Þrír nemendur voru svo heppnir að hitta á skál með möndlu, en það voru þeir Tryggvi Hrafn Haraldsson, Tristan Logi Stefánsson og Þórður Geir Jakobsson. Hóbba bætti svo um betur og laumaði möndlu í skál hjá starfsmanni skólans, og var Brynhildur Jóna Helgadóttir svo lánsöm að hreppa hnossið að þessu sinni!

Hurðaskreytingar Hurðaskreytingar

User uploaded image
zoom_out_map
Í aðdraganda jóla kom fram sú hugmynd að nemendahóparnir skreyttu hurðirnar á sínum heimastofum. Nemendur tóku vel í þetta og lögðu mikinn metnað í skemmtilegar skreytingar á sínum hurðum, hugmyndaauðgi og sköpunarkraftur fengu þar sannarlega að njóta sín! Hér má skoða allar hurðirnar - og það er ansi líklegt að þessi skemmtilega hugmynd verði endurtekin að ári.

Farsæld barna Farsæld barna

User uploaded image
zoom_out_map

Með reglulegu millibili viljum við minna ykkur á farsældarlögin svokölluðu, en lögin hafa það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barna. Allar upplýsingar um farsældarlögin má sjá á heimasíðunni Farsæld barna.


Eitt af aðalatriðunum í farsældarlögunum er það að öll börn - og foreldrar - hafa aðgang að tengilið farsældar. Hér í Grenivíkurskóla er Guðrún Árnadóttir tengiliður farsældar og er foreldrum ávallt velkomið að hafa samband við hana, eða skólastjóra, til að fá upplýsingar um farsældarlögin og þá þjónustu og þau úrræði sem í boði eru. Við hvetjum ykkur til þess að hafa ávallt samband ef og þegar áhyggjur kvikna varðandi ykkar barn, því saman getum við leitað leiða til að bæta þar úr.


Hér má finna upplýsingar um farsæld barna og tengiliðaupplýsingar í Grenivíkurskóla.

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.


Hugtak janúarmánaðar er náttúruvernd. Náttúruvernd er sú stefna að vilja vernda náttúruna fyrir óæskilegum áhrifum af athöfnum mannsins. Náttúruvernd snýst um verndun vistkerfa, lífbreytileika, jarðfræðilegra minja, landslags, víðerna og náttúruminja fyrir umsvifum manna. Náttúruvernd hefur það að markmiði að draga úr hættu á að líf, land, haf, vatn og loft mengist eða spillist með einum eða öðrum hætti. Náttúruvernd miðar einnig að því að auðvelda umgengni og kynni fólks af náttúrunni án þess að henni sé raskað. Náttúruvernd og það að vernda heilu vistkerfin er m.a. besta leiðin til að varðveita lífbreytileika, bjarga lífverum sem eru í hættu og tryggja okkur lífsgrundvöll. Ýmsum aðferðum má beita við náttúruvernd eins og friðlýsing land- og hafsvæða. Með því móti má vernda búsvæði lífvera eða sérstæðar jarðmyndanir, landslag eða víðerni.


Hér má nálgast frekari upplýsingar um hringrás kolefnis.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "hamingja í janúar". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Laufabrauðsdagur - 9. desember
  • Ýmsar myndir úr skólalífinu - desember
  • Kyndlaganga - 16. desember
  • Hátíðarmatur og litlu jól - 19. desember

Á döfinni í janúar Á döfinni í janúar

  • 1. janúar: Nýársdagur.
  • 5. janúar: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 6. janúar: Þrettándinn. Kennsla hefst á ný að loknu jólafríi.
  • 22. janúar: Þorrablót Grenivíkurskóla.
  • 23. janúar: Bóndadagur - upphaf þorra.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter