Fréttabréf Engidalsskóla sept. 2026
Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
Kæru foreldrar/forsjáraðilar.
Hér gefur að líta fyrsta fréttabréf skólaársins 2026-2027. Árið hefur farið vel af stað og erum við afskaplega grobbin af okkar flottu nemendum. Við erum líka ánægð með það flotta bakland sem þau eiga í ykkur foreldrum/forsjáraðilum og við upplifum að við séum í þessu saman. Takk þið öll sem mættuð á hraðstefnumótið þetta er verðmætt samstarf og spjallið yfir grillinu á eftir er ekki minna mikilvægt. Við þreytumst seint á því að minna á það mikla forvarnargildi sem það hefur að þekkja þau börn sem barnið ykkar eyðir miklum tíma með og foreldra þeirra. Við erum með sterka einstaklinga sem stýra foreldrafélaginu í dag en það þarf enn fleira fólk til að starfa í félaginu og því hvetjum við ykkur til að mæta á aðalfund félagsins 29. september sama hvort þið viljið komast í stjórn eða bara sýna stuðning og starfa með félaginu <3. Við gerum ráð fyrir að niðurstöður af hraðstefnumótinu verði klárar í lok september. Í frétt á heimasíðu skólans er að finna frétt þar sem sjá má fyrstu vísbendingar um það sem foreldrar vilja leggja mesta áherslu á.
Í vor var sagt frá niðurstöðum Skólapúlsins sem kom mjög vel út á síðasta ári. Bæði þegar horft er til nemenda og starfsmanna og það sama má segja um starfsmannakönnun Prósent. Það er gott að vinna í Engidalsskóla og nemendum okkar líður almennt vel í skólanum. Í sumar fengum við svo niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni og er þar samhljómur við það sem við höfum verið að sjá í Skólapúlsinum. Í Skólapúlsinum svara nemendur í 6.-7. bekk árlega en nemendur í 2.-5. bekk annað hvert ár og í ár voru það bara nemendur í 6.-7. bekk sem svöruðu. Í Íslensku æskulýðsrannsókninni eru nemendur í 4.-7. bekk spurðir og er hún gerð árlega. Helstu niðurstöður eru þær að mikill meirihluti nemenda sýnir jákvætt viðhorf til skólagöngu. Í 4.-5. bekk telja 94% mikilvægt að leggja sig fram í námi og 96% segja að þeim finnist gaman í skólanum. Í 6.-7. bekk líkar 96% vel í skólanum og 95% segja að þeim líði vel í kennslustundum. Félagsleg tengsl nemenda eru sérstaklega sterk. Allir nemendur í bæði yngri og eldri hópum segjast eiga einn eða fleiri góða vini og hlutfall einmanaleika mælist lágt. Þá mælist einelti lágt líkt og í könnun Skólapúlsins. Þátttaka í íþróttum og félagsstarfi mælist almennt mikil, sérstaklega meðal yngri nemenda þar sem 91% stunda íþróttir. Fjölskyldutengsl virðast einnig vera sterkur verndandi þáttur. Um 88-92% nemenda segja að þeir geti rætt við foreldra um áhyggjur sínar, fengið aðstoð við heimanám og notið stuðnings fjölskyldunnar. Flestir borða reglulega með fjölskyldu sinni og gera skemmtilega hluti með foreldrum sínum.
Engidalsskóli hefur verið símalaus skóli töluvert lengi og hafa nemendur virt þær reglur mjög vel. Nú hefur verið sett reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskól og á frístundaheimilum sem okkur ber öllum að fara eftir.
Í sumar sendi ráðuneytið út landsviðmið um skólasókn grunnskólanema. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu. Veturinn í vetur verður notaður til að skoða hvort sníða þurfi einhverja annmarka af þeim en þetta verður svo gefið út sem reglugerð. Það eru töluverðar breytingar í þessum landsviðmiðum en gefin verða fjarvistastig fyrir veikindi og heimiluð leyfi ólíkt því sem verið hefur. Við hvetjum foreldra til að kynna sér þetta vel en farið verður að vinna eftir þessu í skólanum frá og með 1. október 2026.
Samræmdir viðverukóðar
Mæting 0 fjarverustig
Seinkoma 0-5 mín 0 fjarverustig
Seinkoma 5-20 mín 1 fjarverustig
Fjarvera úr kennslustund (óheimil) 2 fjarverustig
Fjarvera heill dagur (óheimil) 10 fjarverustig (föst tala)
Heilir dagar
Fjarvera (heimiluð, veikindi) 1 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, persónulegrar ástæðna) 1 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, keppnis- eða sýningaferða) 0 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, sjúkrakennsla, langtímaveikindi) 0 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, skert stundaskrá) 0 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, félagsstarf í skóla) 0 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, farandvinna foreldris) 0 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, trúarleg iðkun) 0 fjarverustig
Fjarvera (heimiluð, tímabundin brottvísun) 0 fjarverustig
Föstudagurinn 18. september er skertur dagur en þann dag ætlum við að hlaupa saman á Víðistaðartúni í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Mikilvægt er að koma vel skóaður þann dag og í fatnaði sem auðvelt er að hreyfa sig í. Skóla líkur kl. 12 þennan dag en Álfakot opnar kl. 12 fyrir þau börn sem þar eiga að vera. Ekki þarf að skrá börnin sérstaklega fyrir þann dag.
Hafnarfjörður er að innleiða í alla grunnskóla sveitarfélagsins Pals lestrarkennsluaðferðina í 1. og 2. bekk. Fundur verður með foreldrum þessa árganga að morgni miðvikudaginn 23. september, nánari upplýsingar munu koma í vikupóstum árganganna.
Líðanfundir eru að verða að hefð hjá okkur í skólanum en þar hittast foreldra og ræða um líðan barna sinna og hvernig foreldrar sem heild geta tekið utan um hópinn þannig að allir upplifi sig tilheyra honum og líði þar vel. Í framhaldi verður tækifæri til að gera farsældarsáttmála meðal foreldra. Þessir fundir verða í ár í vikunni 12.-16. október.
Með bestu kveðju,
Skólastjórnendur Engidalsskóla.
Skólasókn grunnskólanemenda.
Fréttir úr Álfakoti
Kæru foreldrar og forsjáraðilar,
Vel hefur farið af stað hjá okkur í Álfakoti þetta haustið. Við höfum verið mikið úti og notið góða veðursins.
Við erum einnig að koma af stað fjölbreyttu klúbbastarfi í Álfakoti. Í boði verða perluklúbbur, föndurklúbbur og náttúruklúbbur í september. Þar fá börnin tækifæri til að sinna áhugamálum sínum, skapa, rannsaka og eiga notalega stund saman.
Við erum jafnframt að leggja aukna áherslu á frístundalæsi og erum byrjuð með verkefnið Bókaormurinn. Þar lesa starfsmenn bækur fyrir yngstu börnin, en eldri börnin fá bæði tækifæri til að lesa sjálf og að hlusta á sögur sem lesið er fyrir þau.
Eftir lesturinn fylla börnin út miða þar sem þau skrifa nafn bókarinnar og sitt eigið nafn. Þau geta síðan teiknað mynd eða skrifað um hvað bókin fjallaði og gefið henni stjörnur eftir því hversu vel þeim líkaði við hana. Að lokum bætum við miðunum þeirra við Bókaorminn okkar og fylgjumst þannig með því hvernig ormurinn lengist og vex með lestrinum.
Einnig erum við búin að setja upp óskilamuna hillur fyrir hvert rými og hvetjum við ykkur til að vera dugleg að kíkja þangað.
Kær kveðja,
Arnheiður, Júlía og starfsfólk Álfakots
Við hlökkum til haustsins með börnunum í Álfakoti!
Fréttir úr Dalnum
Kæru foreldrar og forsjáraðilar,
Í síðustu viku byrjaði starf í Dalnum á ný eftir sumarfrí. Það var mikil spenna hjá nýliðum okkar í 5. bekk og þau voru stútfull af hugmyndum um hvað þeim þætti skemmtilegt að gera í Dalnum. Við ætlum að vera dugleg að hlusta á hugmyndir þeirra og gefa þeim tækifæri til að hafa áhrif á starfið.
Þannig stuðlum við að lýðræði barnanna í Dalnum og mætum óskum þeirra og áhugasviðum.
Einnig styttist í kosningar á fulltrúum í nemendaráð og erum við spennt að koma því mikilvæga starfi aftur af stað.
Við byrjuðum síðustu viku á ísferð og útileikjum og gekk það ótrúlega vel. Við erum mjög spennt að færa starfið innandyra í þessari viku, enda erum við afar stolt af þeim breytingum sem hafa átt sér stað í Dalnum.
Fjórir starfsmenn eru með fastar vaktir í Dalnum. Það eru Kristrún, Aron, Júlía og Sara Dögg.
Við hlökkum til að eiga skemmtilegan vetur með börnunum í Dalnum! 😊
Kær kveðja,
Arnheiður, Júlía og starfsfólk Dalsins
Engidalsskóli er skráður í svakalegu lestrarkeppnina 2026
Lestrarþjálfun í skóla og heima
Það er samstarfsverkefni heimilis og skóla að tryggja börnum farsælt lestrarnám og góða lestrarfærni.
Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að þjálfun hans fari jafnt fram í skóla og heima. Heimaþjálfunin eykur líkur á árangri. Hér til hliðar eru tillögur að heimaþjálfun sem FLÍS félag læsisfræðinga á Íslandi tók saman
Uppeldi til ábyrgðar - Skýr mörk Engidalsskóla
Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is
Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.
Hollt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka
Útivistarreglur barna
Engidalsskóli
Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433