Árshátíð Kópavogsskóla
12. apríl 2019
Dagskrá 1. - 4. bekkur kl. 09:00 - 10:30
Heimastofur nemenda eru opnar frá kl. 08:00. Sjá nánar um mætingu í vikupósti frá umsjónarkennara.
Skemmtun hefst á sal skólans kl. 09:00
1. BM - 1. bekkjar kórinn
2. EG - Kúrekadans og söngur
3. HL - Latibær
4. KV - Landnemar
Samsöngur og dans
Aðstandendur nemenda eru hjartanlega velkomnir á sýninguna. Gestir árshátíðar eru beðnir um að taka tillit til sýnenda og yfirgefa ekki salinn fyrr en í lok dagskrár sem að þessu sinni mun taka um klukkustund.
Nemendur fara í heimastofu að lokinni dagskrá til kl. 10:30, kveðja kennara sinn og halda síðan heim í páskaleyfi eða fara í Frístund ef þeir eru skráðir þar. Þeir foreldrar/forráðamenn sem vilja taka barnið með sér heim eftir skemmtunina eru beðnir um að gera það í samráði við kennara barnsins í heimastofu.
Starfsfólk Kópavogsskóla óskar ykkur gleðiríkrar og ánægjulegrar páskahátíðar. Skóli hefst að nýju þriðjudaginn 23. apríl skv. stundaskrá.
Myndatökur
Þetta gerum við til að áhorfendur geti notið sýningarinnar ótruflaðir frá tækjum og tækni. Einnig minnum við áhorfendur á að hafa slökkt á símum á meðan á sýningum stendur.
Dagskrá 5. - 7. bekkur kl. 11:00 - 12:30
Nemendur mæta í heimastofur samkvæmt vikupósti frá umsjónarkennara.
Skemmtun hefst kl. 11:00
5. OU - Baby shark dans
5. OU - Queen söngatriði
5. OU - Söngatriði
6. - 7. bekkur - Nokkrar stúlkur sýna dansatriði
6. NS - Söngatriði
6. NS - Dansatriði
7. RT - Myndbandssýning
Samsöngur
Aðstandendur nemenda eru hjartanlega velkomnir á sýninguna. Gestir árshátíðar eru beðnir um að taka tillit til sýnenda og yfirgefa ekki salinn fyrr en í lok dagskrár.
Nemendur fara í heimastofu að lokinni dagskrá, kveðja kennara sinn og halda síðan heim í páskaleyfi.
Starfsfólk Kópavogsskóla óskar ykkur gleðiríkrar og ánægjulegrar páskahátíðar. Skóli hefst að nýju þriðjudaginn 23. apríl skv. stundaskrá.