Smore logo
remove_red_eye 114
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

DJÚPAVOGSSKÓLI HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

Vikufréttir eru stuttar í þetta sinn.

Ég sendi ykkur skipulag fyrir desember og jólaskipulagið okkar í næstu viku.

Obba

NÆSTA VIKA

Mánudagur 28.nóvember
  • Mætum hress og kát eftir gott helgarfrí.


Þriðjudagur 29.nóvember

  • Fagfundur


Miðvikudagur 30.nóvember

  • Góður dagur til að staldra við og hugleiða.


Fimmtudagur 01.desember - Fullveldisdagur Íslands og gestadagur

https://islensktalmanak.is/dagar/fullveldisdagurinn-1-desember/


Það er stutt á milli gestadaga hjá okkur núna. Síðast mættu mjög margir gestir og vonandi sjáumst við sem flest á Fullveldisdaginn :)

  • 14:30 Teymisfundur - Lotukennsla - Stefanía Malen grunnskólafulltrúi verður með á Teams.


Föstudagur 02. desember

  • Áður en við förum í gott helgarfrí fá nemendur og starfsmenn stjörnufræðslu.

MATSEÐILL NÆSTU VIKU

Hægt að skoða matseðil næstu viku á heimasíðu skólans.

https://www.djupavogsskoli.is/

FÓTBOLTI, STARFSKYNNING OG MARGT FLEIRA SKEMMTILEGT

Hér má sjá myndir frá síðustu viku. Nemendur fengu að fylgjast með leik á HM í stærðfræðitíma. Þrír nemendur voru í starfskynningu í skólanum og tóku þátt í kennslu á yngstastigi auk þess að kynna sér störf skólastjóra. Það bárust jólatónar úr tónlistarskólanum og það stytti upp í augnablik og það náðist á mynd :)

zoom_out_map
Listgreinakennsla hjá Ewelinu og Freydís í starfskynningu.
zoom_out_map
Óðinn Mikael í starfskynningu á yngstastigi.
zoom_out_map
Nemendur fylgjast áhugasamir með Brynjari sem var líka í starfskynningu.
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

HEIMSMEISTARAKEPPNI Í FÓTBOLTA....OG STÆRÐFRÆÐI :)

JÓLAUNDIRBÚNINGUR Í TÓNLISTARSKÓLANUM

FALLEGUR DAGUR Í FRÍSTUND

FUNDUR SKÓLASTJÓRNENDA Á EGILSSTÖÐUM

Skólastjórnendur í Múlaþingi hittast reglulega á fundum og frá sameiningu hafa þeir að mestu verið á Teams. Í haust hefur verið hægt að fara á milli og funda í öðrum skólum í Múlaþingi. Á fimmtudaginn fóru Obba og Þórdís í skólaheimsókn og á fund í Egilsstaðaskóla.

Við fengum kynningu á skólanum, borðuðum í skólamöguneytinu og síðan funduðu stjórnendur um næst skref í skólum í Múlaþingi.

Það er mjög mikilvægt að fá að heimsækja aðra skóla og styrkir okkur hér í Djúpavogsskóla að geta átt samráðsfundi og tekið þátt í skipulagi með fleiri skólum.

ÉG GET ÞETTA EKKI....ENNÞÁ

Þessi skemmtilega setning er skrifuð á vegg í myndmenntastofu Egilsstaðaskóla. það er ágætt að minna sig og nemendur á að ef maður getur ekki eitthvað núna þá er bara að reyna aðeins betur og muna að við getu lært allt sem við viljum.

FARSÆLD FYRIR ALLA

Á föstudaginn var sameiginlegur starfsdagur leik- og grunnskóla í Múlaþingi. Það var þétt setið í Valaskjálf þar sem starfsmenn fengu farsældar-fræðslu sem snýr bæði að nemendum og starfsmönnum.

Þetta var frábær dagur, góð fræðsla fyrir starfsfólk m.a. um öfluga liðsheild og hvernig hægt er að takast á við þær breytingar sem skólakerfið hefur gegnið í gegnum á s.l. árum.


Einnig fengum við mjög góða kynningu frá fulltrúum Mennta- og barnamálaráðuneytis og Barna- og fjölskyldustofu á nýjum lögum um farsæld barna.


https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Felagsmalaraduneytid/Breytingar%20%C3%AD%20%C3%BE%C3%A1gu%20barna%20-%20sam%C3%BE%C3%A6tting%20%C3%BEj%C3%B3nustu.pdf


Frábært að fá tækifæri til að hitta aðra starfsmenn leik- og grunnskóla í Múlaþingi.

Vonum að þið njótið helgarinnar.

Bestu kveðjur,

Starfsfólk Djúpavogsskóla

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter