Tæknótíðindi
12. nóvember 2025
Dagsetningar framundan
- 12. nóvember - Klúbbakvöld á Skólavörðuholti
- 14. nóvember - Miðspannarmat
- 14. nóvember - Listamarkaður Tækniskólans
- 17. nóvember - Eindagi skólagjalda fyrir vorönn 2026
- 19. nóvember - Klúbbakvöld á Skólavörðuholti
- 01. desember - Fullveldiskaffi Tækniskólans
Mikið fjör á skólaglímu
Skemmtileg stemning myndaðist í matsal nemenda á Skólavörðuholti í síðustu viku, þegar skólaglíman mætti í heimsókn. Þar gafst nemendum kostur á að skora hvor annan á hólm í glímu, undir dyggri leiðsögn leiðbeinenda og dómara. Þegar glíman var loks stigin komust færri að en vildu og áhorfendaskarinn náði langt út fyrir matsalinn. Þrátt fyrir mikil átök, enduðu leikar í hinu mesta bróðerni. Við þökkum fulltrúum skólaglímunnar kærlega fyrir komuna og vonumst til þess að sjá þau að ári liðnu.
Hársnyrtisýning og hrekkjavökuklúbbakvöld
Í sömu viku var hræðileg aðkoma á 4. hæðinni í Tækniskólanum á Skólavörðuholti þegar Halloween klúbbakvöld fór fram. Aðkoman var bara til gamans og gleðin réði ríkjum er nemendur báru saman stórkostlega búninga og gæddu sér á hræðilegri óhollustu.
Listamarkaður Tækniskólans
Greiðsluseðlar fyrir skólagjöld vorannar 2026
Fyrir nemendur sem sótt hafa um skólavist í Tækniskólanum á vorönn 2026.
Stofnuð hefur verið krafa í heimabanka vegna skólagjalda á vorönn 2026 að upphæð kr. 30.000. Ekki verður sendur greiðsluseðill í pósti. Krafa vegna nemenda sem eru undir 18 ára aldri er stofnuð á skráðan aðstandanda númer 1 samkvæmt INNU. Þeir sem eru eldri en 18 ára fá kröfuna í eigin heimabanka (ekki er hægt að greiða kröfuna úr heimabanka aðstandanda).
Hægt er að greiða kröfuna í heimabanka nemanda/aðstandanda eða næsta banka án þess að hafa greiðsluseðil og dugar þá að gefa þar upp kennitölu nemenda/aðstandanda og að krafan sé í Landsbankanum banka númer 0111.
Gjalddagi var 03.11.2025 og eindagi er 17.11.2025. Greiðsluseðlar falla niður 21.11.2025. Ef greiðsluseðill er ekki greiddur lítur skólinn á að nemandi ætli ekki að stunda nám á vorönn 2026.
Breytt verðskrá í mötuneyti
Vegna verðlagshækkana þarf að hækka verð á heitum mat í mötuneyti skólans um 100 krónur per máltíð frá og með næsta mánudegi (17. nóvember). Eftir breytinguna mun stök máltíð kosta 1.600 krónur og 10 máltíða matarkort 13.500 krónur.