Smore logo
remove_red_eye 995
page background
Logo

Tæknótíðindi

12. nóvember 2025

Tæknótíðindi12. nóvember 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 12. nóvember - Klúbbakvöld á Skólavörðuholti
  • 14. nóvember - Miðspannarmat
  • 14. nóvember - Listamarkaður Tækniskólans
  • 17. nóvember - Eindagi skólagjalda fyrir vorönn 2026
  • 19. nóvember - Klúbbakvöld á Skólavörðuholti
  • 01. desember - Fullveldiskaffi Tækniskólans
HVAÐ ER MIÐSPANNARMAT?

Mikið fjör á skólaglímu Mikið fjör á skólaglímu

User uploaded image
zoom_out_map

Skemmtileg stemning myndaðist í matsal nemenda á Skólavörðuholti í síðustu viku, þegar skólaglíman mætti í heimsókn. Þar gafst nemendum kostur á að skora hvor annan á hólm í glímu, undir dyggri leiðsögn leiðbeinenda og dómara. Þegar glíman var loks stigin komust færri að en vildu og áhorfendaskarinn náði langt út fyrir matsalinn. Þrátt fyrir mikil átök, enduðu leikar í hinu mesta bróðerni. Við þökkum fulltrúum skólaglímunnar kærlega fyrir komuna og vonumst til þess að sjá þau að ári liðnu.

Hársnyrtisýning og hrekkjavökuklúbbakvöld Hársnyrtisýning og hrekkjavökuklúbbakvöld

User uploaded image
zoom_out_map
Við óskum ústkriftarnemendum á hársnyrtibraut til hamingju með glæsilega útskriftarsýningu. Það var margt um manninn í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar hármódel stigu á svið og bar sýningin metnaði og sköpunarkrafti nemenda og kennara þeirra gott vitni.


Í sömu viku var hræðileg aðkoma á 4. hæðinni í Tækniskólanum á Skólavörðuholti þegar Halloween klúbbakvöld fór fram. Aðkoman var bara til gamans og gleðin réði ríkjum er nemendur báru saman stórkostlega búninga og gæddu sér á hræðilegri óhollustu.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Listamarkaður Tækniskólans Listamarkaður Tækniskólans

User uploaded image
zoom_out_map
Nemendur Tækniskólans hafa tekið sig saman og bjóða á LISTAMARKAÐ næstkomandi föstudag 14. nóvember. Markaðurinn verður opinn kl.11:00 -16:00 í framtíðarstofunni á Skólavörðuholti. Fólki gefst kostur á að kaupa listaverk nemenda s.s. málverk, skúlptúra og aðra glæsilega muni.

Greiðsluseðlar fyrir skólagjöld vorannar 2026 Greiðsluseðlar fyrir skólagjöld vorannar 2026

User uploaded image
zoom_out_map

Fyrir nemendur sem sótt hafa um skólavist í Tækniskólanum á vorönn 2026.


Stofnuð hefur verið krafa í heimabanka vegna skólagjalda á vorönn 2026 að upphæð kr. 30.000. Ekki verður sendur greiðsluseðill í pósti. Krafa vegna nemenda sem eru undir 18 ára aldri er stofnuð á skráðan aðstandanda númer 1 samkvæmt INNU. Þeir sem eru eldri en 18 ára fá kröfuna í eigin heimabanka (ekki er hægt að greiða kröfuna úr heimabanka aðstandanda).


Hægt er að greiða kröfuna í heimabanka nemanda/aðstandanda eða næsta banka án þess að hafa greiðsluseðil og dugar þá að gefa þar upp kennitölu nemenda/aðstandanda og að krafan sé í Landsbankanum banka númer 0111.

Gjalddagi var 03.11.2025 og eindagi er 17.11.2025. Greiðsluseðlar falla niður 21.11.2025. Ef greiðsluseðill er ekki greiddur lítur skólinn á að nemandi ætli ekki að stunda nám á vorönn 2026.

Breytt verðskrá í mötuneyti Breytt verðskrá í mötuneyti

User uploaded image
zoom_out_map

Vegna verðlagshækkana þarf að hækka verð á heitum mat í mötuneyti skólans um 100 krónur per máltíð frá og með næsta mánudegi (17. nóvember). Eftir breytinguna mun stök máltíð kosta 1.600 krónur og 10 máltíða matarkort 13.500 krónur.

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter