Smore logo
remove_red_eye 432
page background

Fréttamolar úr MS

10. febrúar 2022

Dagsetningar framundan

21. febrúar - Matsdagur

22. febrúar - Matsdagur

23. febrúar - Einkunnaskil fyrir vetrarönn

24. febrúar - Einkunnasýning

25. febrúar - Annarlok

28. febrúar - Upphafsdagur vorannar / umsjón


Hér er svo hlekkur á skóladagatal skólaársins 2021 - 2022.

Vetur konungur minnir á sig!

Eins og vart hefur farið fram hjá ykkur hefur vetrarveðrið verið ráðandi hjá okkur undanfarið og verða áfram næstu daga. Það eru ekki allir sammála hvað varðar blessaðan snjóinn, sumum finnst gaman og ævintýri að fá smá snjó meðan öðrum leiðist að þurfa að moka af bílnum og glíma við ófærð.


Við mælum með því að taka þessu með brosi á vör og sjá tækifærin ekki síður en áskoranirnar. Um að gera að fara aðeins fyrr að sofa og vakna aðeins fyrr þar sem viðbúið er að það taki lengri tíma að komast leiðar sinnar í þeim aðstæðum sem við þurfum að búa við þessa dagana!

Innskráning í Innu með Office 365
Hér er hlekkur á leiðbeiningar frá tölvuumsjón MS sem sýnir hvernig hægt er að nota Office 365 aðgang til að skrá sig inn í Innu. Þetta einfaldar talsvert aðgengið að Innu þar sem ekki þarf alltaf að slá inn lykilorð.
Kynning frá umhverfisnefnd MS 2022.

Ekki gleyma kennslukönnuninni! Tækifæri til að láta rödd þína heyrast!

zoom_out_map

Við hvetjum alla nemendur til að taka þátt í könnuninni en hún er mikilvægur liður í sjálfsmati skólans. Athugið að ekki er hægt að rekja svör til einstakra þátttakenda.


Hægt er að nálgast könnunina í gegnum Innu - í tölvum birtist hún efst í horninu uppi til hægri en í símum þarf að skrolla aðeins niður forsíðuna til að finna könnunina.


Talsvert vantar upp á að svarhlutfall sé nógu hátt - koma svo!!

Kósíkvöld í kvöld!

Nú hefur verið slakað á sóttvarnareglum og því tækifæri til að efla félagslífið í skólanum. Fimmtudaginn 3. febrúar verður skólinn opinn þeim nemendum sem vilja koma og njóta samverunnar. Boðið verður upp á þá dægradvöl sem í aðstaða er fyrir, hugmyndir nemenda eru velkomnar hér!

Við ætlum að taka stökkið og bjóða nemendum að koma í skólann á fimmtudagskvöldum. Boðið verður upp á léttar veitingar og aðstaða skólans stendur nemendum til boða. Hægt er að fara í borðtennis, pílu og púl. Bjarmaland verður opið og eitthvað gamalt og gott eins og Seinfeld látið rúlla (allar aðrar hugmyndir velkomnar).


Ef þig langar að gera eitthvað annað skemmtilegt þá skaltu endilega hafa samband við Kríu: felagsmalastjori@msund.is

Rafíþróttalið MS er komið í átta liða úrslit!!

Skólinn er með lið í þremur greinum og ljóst að framundan er stíf keppni sem sýnt verður frá í sjónvarpi!

Fréttir af FRÍS er að finna hér og liðið er með instagram: msund_frís

Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið eru í átta liða úrslitum.

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter