Smore logo
remove_red_eye 36
page background

Þjónustubraut

Haustið 2021

ÞjónustubrautHaustið 2021
Til að velja í innu smelltu hér!

Til nemenda

Til þess að geta hafið nám á leikskólaliðabraut þurfa nemendur að hafa lokið námsmarkmiðum grunnskóla með lágmarksárangri. Í stærðfræði, íslensku og ensku skulu nemendur hafa hlotið einkunnina C eða hærri.


Þjónustubraut – leikskólaliða og stuðningsfulltrúa er kennd í fjarnámi.

Brautarlýsing stuðningsfulltrúa
Brautarlýsing leikskólaliða

Fötlun og samfélag - FÉLA2FÖ05

Undanfari: Enginn

Lögð er áhersla á kynningu á ýmiss konar frávikum í andlegum og líkamlegum þroska. Farið verður í skilgreiningar á ýmsum tegundum fatlana, einkennum og orsökum. Leitast verður við að skoða hvaða áhrif mismunandi fötlun hefur á félagslega stöðu og skólagöngu fatlaðs fólks. Fjallað verður um mikilvægi frumgreiningar og snemmtækrar íhlutunar ásamt því að skoða þjálfunar- og meðferðarþarfir þeirra sem búa við fötlun. Fjallað verður um hvaða áhrif fötlun hefur á einstaklinginn og fjölskyldu hans, mikilvægi réttrar aðstoðar og stuðnings og hvernig eigi að leita eftir þeim rétti sem fólki ber í þessu sambandi. Áhersla er lögð á að efla skilning nemenda á margbreytileika mannlegra aðstæðna og virðingu fyrir öllu fólki.

Barnabókmenntir - ÍSLE2BB05

Undanfari: Einkunnin B við lok grunnskóla eða ÍSLE1LL02, ÍSLE1MF01 og ÍSLE1ST02 eða sambærilegt.

Í áfanganum fá nemendur yfirlit yfir sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabóka. Auk þess kynnast ýmsum flokkum barnabóka, svo sem þjóðsögum og ævintýrum, myndabókum, bókum fyrir stálpuð börn, myndasögum og unglingabókum. Í áfanganum eru því lesnar margar barnabækur, íslenskar og þýddar, af ýmsum gerðum auk fræðigreina um efnið. Einnig er barnaefni skoðað í tengslum við bókmenntirnar. Markmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir gildi barnabóka og þeim möguleikum sem markvisst starf með þær býður upp á. Í tengslum við efni áfangans fá nemendur þjálfun í notkun spjaldtölva í starfi með börnum.

Upplýsingatækni - UPPT1UT05

Undanfari: Enginn

Í áfanganum læra nemendur að nota ritvinnsluhugbúnað til að skrifa ritgerðir og töflureikni og glæruforrit til að setja fram upplýsingar á margvíslegu formi við vinnslu verkefna í námi sínu. Fjallað um tölvubúnað og hvernig best má hagnýta hann í námi. Fjallað verður um almenn atriði upplýsingalæsis, m.a. er farið yfir gögn um upplýsingaöflun, útgáfuform upplýsinga, bókasöfn, handbækur og tölvusamskipti.

Þroski og hreyfing - ÍÞRF2ÞH05

Undanfari: Enginn

Í áfanganum læra nemendur um þroska barna á leik- og grunnskólaaldri. Fjallað er um alla helstu þroskaþættina en einkum er horft til skyn- og hreyfiþroska, líkams- og félagsþroska og hvar börn eru stödd á mismunandi aldursskeiði. Fjallað er um mikilvægi hreyfináms, áherslur í hreyfinámi út frá aldri og hvernig nýta má hreyfinám til að efla áðurnefnda þroskaþætti. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur kynnist notkun ýmiss konar áhalda og öðlist innsýn í hvaða leikir og þjálfun henta fyrir mismunandi aldursskeið. Fjallað er um áætlanagerð og skipulag hreyfináms ásamt fjölbreyttum möguleikum til hreyfináms með tilliti til mismunandi aðstæðna og umhverfis. Þroskapróf og tilgangur þeirra eru kynnt og fá nemendur innsýn í hvernig greina megi frávik frá eðlilegum líkams- og hreyfiþroska. Þeir fá einnig innsýn í kennsluhætti sérkennslu í íþróttum.

Uppeldis- og menntunarfræði - UPPE3UT05

Undanfari: UPPE2UM05

Í áfanganum er fjallað um ýmis svið uppeldis og mennta á Íslandi. Nemendur skoða hugmyndafræði og markmið leik-, grunn- og framhaldsskóla og vinna verkefni sem tengjast þessum skólastigum. Einnig verkefni sem tengjast forvörnum, fjölmenningu, áhrif dægurmenningu og tómstundir barna og unglinga. Ýmsir áhrifaþættir í uppeldi eru skoðaðir svo sem kynhlutverk, sorg og viðbrögð við áföllum, skilnaður, einelti og ofbeldi. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennsluhætti og ábyrgð, virkni og áhuga nemenda.

Þróun félagsvísinda - FÉLV1ÞF05


Undanfari: Enginn


Í þessum byrjunaráfanga fá nemendur innsýn í mismunandi greinar félagsvísindanna með sérstaka áherslu á félagsfræði, sálfræði og uppeldisfræði. Farið er í upphaf og sögu félagsvísinda, mismunandi stefnur og sjónarmið og nokkra helstu frumkvöðla innan félagsvísindanna. Fjallað er um grunneiningar samfélagsins og áhrif þess á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á umhverfi sínu og geti myndað sér skoðanir á málefnum sem efst á baugi eru hverju sinni. Nemendur fræðast um þá þætti sem hafa áhrif á líf barna og fullorðinna í nútímaþjóðfélagi. Einnig er þeim gefin innsýn í þá hugmyndafræði sem nútíma félagsvísindi byggja á, mismunandi viðfangsefni þeirra og mikilvægi í daglegu lífi. Sem dæmi um einstaka efnisþætti má nefna: félagskerfið, hagkerfið og stjórnkerfið, erfðir og umhverfi, frjáls vilji, löghyggja, félagsmótun, þróun menntunar, kynhlutverk og jafnfrétti, menning og trúarbrögð, fjölskyldan, vinna og atvinnulíf.

Vinnustaðanám - VAPÓ2VN10 + VAPÓ3FR10

Undanfari: Hafa lokið minnst einu ári (minnst 67 einingum) á námssviði sínu

Nemandi fer í 12 vikna vinnustaðanám á viðurkenndum starfsnámsstað. Hann skal kynnast markmiðum, áætlunum, skipulagi og daglegum störfum á vettvangi. Einnig skal hann kynnast starfslýsingum ásamt þeim lögum og reglugerðum sem starfslýsing byggist á. Nemandi skráir pælingarbók um verkefni áfangans og gerir skýrslu um reynslu sína og viðfangsefni. Í upphafi tímabilsins fær hann kynningu á starfseminni og smám saman verður hann þátttakandi eftir því sem aðstæður leyfa.

Þú getur fengið aðstoð við valið!
Hægt er að fá aðstoð við valið hjá umsjónarkennurum, náms- og starfsráðgjafa eða aðstoðarskólameistara.
zoom_out_map

Verkmenntaskóli Austurlands

Email: va@va.is
Website: https://www.va.is/is
Location: Mýrargata 10, Neskaupstadur, Iceland
Phone: 477 1620
Facebook: https://www.facebook.com/Verkmenntaskoli.Austurlands
Twitter: @VerkAust

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter