Smore logo
remove_red_eye 566
page background

Fréttamolar úr MS

28. febrúar 2024

Fréttamolar úrMS28. febrúar 2024

Gleðilega vorönn! Gleðilega vorönn!

zoom_out_map

Vorönn er hafin og sólin farin að hækka á lofti. Stundatöflur ættu nú að vera allar komnar í lag en ef eitthvað er athugavert er mikilvægt að þið hafið samband við skrifstofuna eða Ágúst námsskrár- og námsbrautastjóra. Sum ykkur eruð að fara inn í ykkar síðustu önn á framhaldsskólagöngunni og önnur eru að stíga sín fyrstu skref í MS. Við hlökkum til að vinna með ykkur á vorönn! 🌞

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • Fimmtudagur 29. febrúar: MS keppir við MR í Morfís. Keppnin fer fram í Þrísteini og hefst kl. 18:15. Hvetjum ykkur að koma og hvetja okkar fólk til sigurs - notið inngang í Þrísteini!
  • Föstudagur 1. mars: Kennsla fellur niður í skólanum vegna Starfsþróunardags framhaldsskólanna þar sem starfsfólk MS hittir starfsfólk annarra framhaldsskóla og lærir hvert af öðru.
  • Laugardagur 2. mars: Brautskráning úr MS. Athöfn hefst kl. 11 en útskriftarefni mæta kl. 10 á æfingu.
  • Mánudagur 4. mars: Síðasti frestur til að skrá sig úr áfanga á vorönn - eyðublað á skrifstofu.
  • Fimmtudagur 7. mars: Árshátíð SMS
  • Vikan 11.-15. mars: Jafnréttisvika
  • Miðvikudagur 13. mars: Opið hús í MS kl. 16-18.
  • Fimmtudagur 14. mars: Aðalfundur SMS
  • Vikan 18.-21. mars: Kosningavika SMS

Niðurstöður sýnatöku í húsnæði MS Niðurstöður sýnatöku í húsnæði MS

zoom_out_map
Á milli jóla og nýárs fóru fram rannsóknir á húsnæði skólans og hafa gögnin nú verið tekin saman af verkfræðistofunni VERKÍS. DNA próf voru tekin af ryksýnum í húsnæði skólans og niðurstöður sýna að aðgerðir sem gripið hefur verið til vegna rakaskemmda og myglu hafa skilað árangri og dregið mjög úr umferð myglugróa.
Skýrsla Verkís

Árshátíð SMS Árshátíð SMS

Árshátíð SMS verður haldin í Gullhömrum og Víkinni fimmtudaginn 7. mars og hefst miðasalan strax eftir helgi. Miðasala verður annars vegar á matinn og hins vegar á ballið svo nemendur geta valið hvort þeir mæti á bæði eða annað hvort. Nemendur sem voru í edrúpotti á 85 ballinu geta boðið með sér gesti á ballið.

Háskóladagurinn Háskóladagurinn

Háskóladagurinn er laugardaginn 2.mars 2024. Þá gefst öllum tækifæri til þess að kynna sér námsframboð háskólanna á milli kl. 12-15. Við hvetjum ykkur öll til að fara og kynna ykkur það sem er í boði, sama hvenær þið stefnið á útskrift. Ef einhverjar spuringar vakna er alltaf velkomið að heimsækja náms- og starfsráðgjafa skólans, þær Hildi Höllu og Fjólu Dögg, en HÉR má bóka tíma.

open_in_new zoom_out_map

Smelltu á myndina til að fá nánari upplýsingar um Háskóladaginn.

Skólagjöld vorannar Skólagjöld vorannar

Vegna tæknilegra örðugleika voru skólagjöld vorannar lögð á fremur seint en nú ættu allir að hafa fengið sendan greiðsluseðil. Skrifstofustjóri sendi póst á alla nemendur og forsjárfólk með nánari upplýsingum um gjöldin fyrr í dag.

Ætlar þú í framboð? 🗳️ Ætlar þú í framboð? 🗳️

Langar þig að taka þátt í félagslífi MS? Endilega skelltu þér í framboð! Kosið verður í stjórn SMS í marsmánuði. Á næstunni verður fyrirkomulagið kynnt nánar - fylgist með!

Hagnýtar upplýsingar um þjónustu í skólanum Hagnýtar upplýsingar um þjónustu í skólanum

zoom_out_map

Aldrei er góð saga of oft kveðin. Við minnum á fjölbreytta þjónustu í skólanum.


Náms- og starfsráðgjafar sinna nemendum á faglegan hátt í námi þeirra og einkamálum. Ráðgjöfin er veitt í trúnaði við nemendur.


Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg málefni.


Tölvuumsjón aðstoðar með tölvu- og tækjabúnað.


Á skrifstofu skólans er hægt að leita ráða með ýmis mál, fá lánaðar reiknivélar, kennslubækur og hleðslutæki fyrir tölvur.


Viskusteinn er upplýsinga- og tæknimiðstöð skólans.

Reglur um heiðarleika í námi
Mæting, veikindi og leyfi
Skóladagatal 2023-2024

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter