Fréttabréf Flóaskóla
desember 2025
Kæra skólasamfélag
Þá er aðventan runnin upp með öllum sínum ljóma. Skólinn er að klæðast í hátíðarbúning og tilhlökkun barnanna eykst dag frá degi. Við leggjum áherslu á að skapa notalegt og rólegt andrúmsloft í aðdraganda jóla en viljum samt halda í nokkrar góðar hefðir í skólastarfinu.
Mig langar að benda á tvo viðburði tengda skólanum sem eru framundan, annarsvegar er það Aðventuhátíð Flóahrepps næstkomandi fimmtudag 4.12. þar sem skólakórar Flóaskóla koma fram og 10. bekkingar starfa á kakóbarnum. Hinn viðburðurinn er Aðventukaffihús foreldrafélags Flóaskóla sem verður næstkomandi sunnudag 7.12. í Flóaskóla. Nánari upplýsingar eru í auglýsingunum hér fyrir neðan.
Kvenfélag Villingaholtshrepps gaf skólanum 100.000 krónur til bókakaupa nú við upphaf aðventu. Afar kærkomin gjöf sem gerir okkur kleift að kaupa inn margar nýjar og spennandi bækur. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir, það er dýrmætt að finna velvilja og stuðning nærsamfélagsins til skólans.
11. desember kl 9:00 bjóða nemendur í 1.-7. bekk fjölskyldum sínum til samveru í Þjórsárveri og sýna helgileik og leikrit. Boðið verður upp á hressingu að sýningu lokinni.
16. – 18. desember er jólahringekja. Fyrri tvo dagana vinna nemendur í blönduðum aldurshópum að fjölbreyttum verkefnum en síðasta daginn er skipulag innan stiga. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag þessa dags koma frá umsjónarkennurum.
18. desember verður boðið upp á hátíðarmat í hádeginu.
19. desember er síðasti skóladagur fyrir jól, þá eru stofujól og jóladiskó. Mæting í skólann er kl 10:00 og áætluð heimferð kl 12:00. Frístund er opin frá 8:00-10:00 og síðan eftir skóla til klukkan 16:00 fyrir þau börn sem skráð eru á föstudögum en mikilvægt er að láta vita hverjir ætla að nýta þá þjónustu. Nemendur koma spariklæddir í skólann og eiga hátíðlega stund með umsjónarkennara sínum. Síðan fara allir út í Þjórárver í jóladiskó. Skólabílar aka svo nemendum heim kl 12:00.
Föstudaginn 2. janúar er starfsdagur í skólanum og frístund lokuð. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá mánudaginn 5. janúar.
bestu kveðjur úr Flóaskóla
Þórunn Jónasdóttir
Gullin í grenndinni
Mánudaginn 24.11. fóru nemendur í 1. bekk í Skagás með elstu nemendum Krakkaborgar. Þar fengu þau gefins tré sem þau söguðu niður og komu með í skólann. Þau komu einnig færandi hendi og gáfu hverjum bekk grein til að skreyta stofurnar sínar og fá greniilm um allan skóla. Mjög fallegt af þeim og þetta lífgar aldeilis upp á skólann okkar.
Vasaljósaferð í hellinn í Kolsholti
Nemendur á yngsta stigi fóru í vasaljósaferð í hellinn í Kolsholti. Árleg hefð sem alltaf er jafn skemmtileg. Það er dulúð yfir hellinum og spennandi að fara inn í hann á myrkum morgni. Svo er ferðin fullkomnuð með piparkökum, kakói og mandarínum.
Fullveldisdagurinn 1. desember
1. desember var kyndlaganga og skreytingadagur. Allir nemendur komu saman að morgni og gengu saman um skólalóðina með vasaljós í þetta sinn af því ekki náðist að halda eldi í kyndlunum vegna veðurs. Að göngu lokinni var boðið upp á kakó og smákökur og Flóahreppur bauð upp á köku. Nemendur og starfsmenn söfnuðust svo saman í og við stigann og sungu saman nokkur jólalög sem var afar viðeigndi á degi íslenskrar tónlistar. Eftir það voru fyrstu drög lögð að því að koma Flóaskóla í jólabúninginn. 1. og 6. bekkur skreyttu jólatréð og allir nemendur skreyttu sínar heimastofur.
Kynningar á þemavinnu á miðstigi
Nemendur á miðstigi kynntu niðurstöður kannanna sem þau gerðu í læsisþemanu sínu. Nemendur settu fram rannsóknarspurningu og komu með tilgátu. Útbjuggu síðan spurningar sem þau lögðu fyrir úrtak nemenda á elsta stigi og unnu svo tölfræðilega úr niðurstöðum. Einstaklega metnaðarfull vinna og skemmtileg útfærsla á viðfangsefninu.
Fræðsla um svefn og svefnvenjur
Þriðjudaginn 18.11. fengum við til okkar góðan gest dr Erlu Björnsdóttur, sálfræðing og framkvæmdastjóra Betri svefns. Hún var með fræðslu fyrir nemendur elsta stigs á skólatíma, fyrir kennara á fundartíma þeirra og foreldra / forráðamenn allra nemenda skólans kl 20:00 um kvöldið. Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar gefa sterkar vísbendingar um að svefnvenjur nemenda í 6.-10.bekk séu að verða verri, mikill munur er milli áranna 2024 og 2025. Því töldum við ærna ástæðu til að fá fræðslu til allra um þetta efni. Foreldrafélag skólans greiddi fyrir foreldrafræðsluna og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn.
Erla ræddi um mikilvægi þess að skapa venjur og reglu kringum svefninn. Hún fór m.a. yfir hvernig umhverfið getur haft áhrif á gæði svefns. Svefnumhverfið okkar getur haft bæði góð og slæm áhrif á svefninn. Þegar umhverfið í kringum okkur er rólegt og afslappað getur það haft góð áhrif á svefngæðin. Það eru ýmsir þættir í svefnumhverfinu sem geta aukið svefngæði okkar.
Hitastig og loftgæði í svefnherberginu. Það hitastig sem talið er að skili bestum svefngæðum er svalt/kalt loft, u.þ.b 16-18 °C.
Mikilvægt er að halda hljóðum í svefnumhverfinu í algjöru lágmarki, því hljóð í umhverfinu okkar getur haft truflandi áhrif á svefngæðin með því að trufla djúpsvefn eða valda uppvöknunum. Það eru þó líka til hljóð sem geta haft jákvæð áhrif á svefn, eins og t.d. hljóð sem líkjast rigningu, vindi og öðrum náttúrulegum hljóðum. Fyrir suma einstaklinga geta slík hljóð minnkað kvíða og hjálpað fólki að slaka á og sofa. Gott er þó að hafa í huga að hafa slíkt hljóðáreiti ekki of hátt stillt, svo þau trufli ekki svefninn.
Ljós getur haft mikil áhrif á nætursvefn og svefngæði. Ráðlagt er að minnka birtustigið í kringum okkur 1-2 klukkustundum fyrir svefninn til að undirbúa líkamann fyrir í svefninn. Þegar birta í umhverfinu minnkar fer líkaminn að framleiða melatónín í auknum mæli, en það er svefnhormón sem stýrir svefn- og vöku hringrásinni og hjálpar okkur að sofa.
Líkaminn þarf birtu snemma á morgnana til að tempra framleiðslu melatóníns og því hjálpar birtan okkur við að vakna og keyra upp orku fyrir daginn. Flestir vilja hafa eins mikið myrkur í svefnherberginu á nóttinni og hægt er og því getur þetta verið áskorun á sumrin. Það eru þó til nokkrar lausnir eins og t.d. að sofa með svefngrímu eða myrkragardínur sem ná að hylja alla birtu.
Símar og skjáir geta haft áhrif á svefninn okkar þar sem að þeir gefa frá sér birtu og bláa ljósgeisla. Birta og bláir ljósgeislar hægja á melatónín framleiðlsu líkamans og því er nauðsynlegt að minnka skjánotkun fyrir svefn. mælt með því að slökkva alfarið á símanum um klst áður en farið er að sofa.
Á kvöldin ættum við að vera með milda birtu og notast frekar við ljós sem gefa frá sér hlýja tóna eins og rauðan, gulan og appelsínugulan. Til dæmis gefa flest lesljós frá sér einhverja af þessum litum því þau eru ekki talin hafa jafn mikil áhrif á melatónín framleiðslu okkar.
Dagsbirtan er mikilvæg. Við það að hleypa dagsbirtunni inn eykst kortisól framleiðslan okkar og framleiðsla melatóníns minnkar. Kortisól er hormón sem hjálpar okkar að vakna og hjálpar líkamanum að keyra sig í gang fyrir daginn. Önnur leið til að draga úr framleiðslu melatóníns er með dagljósa vekjaraklukku sem birtir upp svefnherbergið smám saman áður en vekjaraklukkan hringir. Þannig nær birtan að hafa áhrif og vekja okkur upp á náttúrulegri hátt. Samt sem áður er alltaf mælt með því að reyna að fá dagsbirtu og reyna þá t.d að komast út í kringum hádegið yfir mesta skammdegið á veturna hér á Íslandi.
Þægindi skipta einnig máli og mikilvægt er að líða vel í svefnumhverfi okkar. Þannig skiptir máli að eiga þægilegt rúm, rúmföt úr náttúrulegum efnum og kodda og sæng sem henta okkur. Ef einstaklingur eyðir t.d. miklum tíma í að borða, horfa á þætti, lesa eða skrolla í símanum upp í rúmi þá byrjar heilinn að tengja svefnumhverfið við vökuástand og það getur haft neikvæð áhrif á svefninn.
Háskólalestin í Flóaskóla - smiðjur með skólum í uppsveitum Árnessýslu
Smiðjurnar okkar á elsta stigi í nóvember voru mjög metnaðarfullar og glæsilegar. Við áttum því láni að fagna að fá Háskólalestina til okkar annað smiðjudaginn, fimmtudaginn 20.11. Háskólalestin býður upp á kennslu í grunnskólum og spennandi og lifandi Opið vísindahús með undrum vísindanna fyrir allt heimafólk. Áhöfn Háskólalestarinnar skipar fræðafólk og framhaldsnemar við Háskóla Íslands, öll með mikla reynslu í miðlun og kennslu. Jafnframt hafa vísindamenn frá rannsóknasetrum HÍ lagt sitt af mörkum til fræðslunnar.
Í boði voru fjölbreytt námskeið og smiðjur fyrir grunnskólanemendur, sem og kennarasmiðjur fyrir kennara. Kennt var í Flóaskóla.
Seinni smiðjudaginn 21.11. fóru allir nemendur elsta stigs í menningarferð til Reykjavíkur þar sem blandað var saman fróðleik og skemmtun. Nemendur í 8. bekk fóru á Þjóðminjasafnið, í Norrænahúsið og í Borgarleikhúsið. 9. bekkingar fóru á Hönnunarsafnið og í Landhelgisgæsluna. 10. bekkingar fóru í Tækniskólann og á Alþingi. Deginum lauk á Selfossi, fyrst fóru krakkarnir á Sviðið þar sem þau fengu að borða pitsu og rappararnir Issi og BigJoe skemmtu þeim. Klukkan 20:00 tóku félagsmiðstöðvarnar við keflinu og fóru með krakkana á ball í Hvítahúsinu.
Nemendur á miðstigi fóru í smiðjur í Flúðaskóla á fimmtudeginum þar sem þau kynntust ýmsum skemmtilegum hlutum.