Smore logo
remove_red_eye 731
page background

Fréttamolar úr MS

21. október 2025

Fréttamolar úrMS21. október 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

User uploaded image
zoom_out_map

Föstudagur 24. okt.: Matsdagur

Mánudagur 27. okt.: Haustfrí

Þriðjudagur 28. okt.: Matsdagur

Föstudagur 7. nóv.: Síðasti kennsludagur haustannar

Mánudagur 10. nóv.: Matsdagur

Þriðjudagur 11. nóv.: Matsdagur

Miðvikudagur 12. nóv.: Einkunnaskil

Fimmtudagur 13. nóv.: Námsmatssýning

Föstudagur 14. nóv.: Annarlok

Þriðjudagur 18. nóv.: Fyrsti kennsludagur vetrarannar

Föstudagur 19. desember: Brautskráning haustannar

Matsdagar og haustfrí Matsdagar og haustfrí

Haustfrí verður í MS mánudaginn 27. október. Í kringum þessa helgi eru einnig matsdagar, þ.e. föstudaginn 24. október og þriðjudaginn 28. október. Ekki er kennt samkvæmt stundaskrá þessa daga en nemendur geta verið kallaðir inn í verkefni eða próf.


Dagskrá matsdaga birtist á heimasíðu skólans fimmtudaginn 23. okt. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á því að vera í sambandi við sína kennara varðandi verkefni og próf á matsdögum og mæta á réttum stað og stund.

Kennslukönnun á haustönn Kennslukönnun á haustönn

User uploaded image
zoom_out_map

Kennslukönnun haustannar opnar í Innu fimmtudaginn 23. október. Á hverri önn er lögð fyrir kennslukönnun í nokkrum námsgreinum í einu. Á haustönn verða kennslukannanir lagðar fyrir í dönsku, þýsku, frönsku, íslensku, hagfræði og viðskiptagreinum. Við hvetjum nemendur til að taka þátt í kennslukönnun og hafa þar með áhrif á gæðastarf í skólanum.

Leikfélag MS kynnir með stolti... Leikfélag MS kynnir með stolti...

Leikfélagið Thalía mun setja upp söngleikinn Fútlús vorið 2026! Leikprufur fara fram í vikunni og öll áhugasöm eru hvött til að mæta í prufur. Það er hægt að sækja um að fá þátttöku í leikritinu metna til eininga. Söngvarar, leikarar, dansarar, búningahönnuðir, leikmyndahönnuðir, förðunar- og hárgreiðslusnillingar - verið með! :D


Í vikunni verða söng-, leik- og dansprufur og síðar verður auglýst eftir fólki í aðrar undirnefndir. Fylgist vel með á Instagram síðu leikfélagsins fyrir skráningu í prufur og nánari upplýsingar.

Leikfélag MS🎭 on Instagram: "Leikfélag Thalíu Kynnir… FÚTLÚS‼️ Prufur í næstu viku🥰 Fleiri upplýsingar koma soon🙌🏼 5 einingar í boði❤️❤️❤️"

104 likes, 10 comments - leikfelagms on October 17, 2025: "Leikfélag Thalíu Kynnir… FÚTLÚS‼️ Prufur í næstu viku🥰 Fleiri upplýsingar koma soon🙌🏼 5 einingar í boði❤️❤️❤️".

launch instagram.com

Gettu betur prufur á næstunni Gettu betur prufur á næstunni

User uploaded image
zoom_out_map

MS tekur að sjálfsögðu þátt í Gettu betur og stefnir á að komast í sjónvarpið líkt og undanfarin ár! Prufur til að komast í Gettu betur liðið verða haldnar á næstu dögum - fylgist vel með!

Munum bleika daginn á morgun, 22. október! Munum bleika daginn á morgun, 22. október!

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Morfís lið MS 2025-2026 Morfís lið MS 2025-2026

Á síðasta skólaári komst MS í úrslit Morfís sem var heilmikið ævintýri. Morfís heldur áfram í ár og MS-ingar vita að það skiptir öllu að mæta á keppnirnar og hvetja sitt fólk frá upphafi til enda. Áfram MS!

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Morfís lið MS 2025-2026: María Sól, Sóley Svana, Alfreð Gauti, Hjalti og Ísabella

Stöðupróf í tungumálum Stöðupróf í tungumálum

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Skráning og nánari upplýsingar

Oxbridge - sumarnámskeið fyrir MS-inga í Cambridge Oxbridge - sumarnámskeið fyrir MS-inga í Cambridge

Áhugasömum MS-ingum gefst kostur á að sækja sumarnámskeið sumarið 2026 á vegum hinna virtu Oxford og Cambridge háskóla. Nánari upplýsingar um námskeiðið má lesa í bæklingi hér að neðan og haldinn verður upplýsingafundur fyrir áhugasöm þann 7. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar veita kennslustjóri og konrektor á skrifstofu skólans.

Skráning á kynninguna 7. nóv.
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
pdf
insert_drive_file
Oxbridge Expedition Brochure (Iceland).pdf
Download
7.7 MB
Myndband um verkefnið sumarið 2025
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter