Smore logo
remove_red_eye 562
page background
Logo

Tæknótíðindi

16. desember 2024

Tæknótíðindi16. desember 2024

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 16. desember - Birting lokaeinkunna
  • 18. desember - Útskrift Tækniskólans
  • 3. janúar - Opnað fyrir stundatöflur
  • 3. og 4. janúar - Töflubreytingar
  • 6. janúar - Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Útskrift Tækniskólans Útskrift Tækniskólans

zoom_out_map

Við minnum á útskrift Tækni­skólans sem fer fram í Eld­borg­arsal Hörpu, miðvikudaginn 18. desember.


Athöfnin hefst stund­vís­lega kl. 13:00 og nem­endur eru beðnir um að mæta klukku­stund áður en athöfn hefst, nánar tiltekið kl. 12:00 í Eldborgarsal.


Nánari upplýsingar um útskriftina má finna á vefsíðu skólans.

Jólafrí og prófskírteini Jólafrí og prófskírteini

zoom_out_map

Lokað verður á skrif­stofu og bóka­safni Tækni­skólans á Skólavörðuholti frá og með 23. des­ember til og með 1. janúar.


Bóka­söfn á Háteigs­vegi og í Hafnarfirði verða lokuð frá 17. des­ember og opna aftur 6. janúar.


Húsnæði Tækni­skólans er lokað í sam­ræmi við lok­anir á bók­söfnum.


Nemendur sem ekki komast á útskrift Tækniskólans geta nálgast útskrift­ar­skír­teini í mót­töku skólans á Skólavörðuholti 19. og 20. des­ember til kl. 15:00.


Nánari upplýsingar um opnunartíma yfir jólahátíðina og prófskírteini má finna á vefsíðu skólans.

Upphaf vorannar 2025 Upphaf vorannar 2025

zoom_out_map
Föstu­daginn 3. janúar verður opnað fyrir stunda­töflur vor­annar í Innu og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 6. janúar.


Nem­endur finna upp­lýs­ingar um bækur og námsgögn í Innu þegar stunda­töflur birtast.


Nánari upplýsingar um upphaf vorannar má finna á vefsíðu skólans.

Gleðileg jól Gleðileg jól

Við óskum nemendum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það sem allra best yfir hátíðirnar.

Framsækni - Alúð - Fjölbreytileiki Framsækni - Alúð - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter