Smore logo
remove_red_eye 125
page background

Djúpavogsskóli

Fyrstu fréttir í upphafi skólaárs

Djúpavogsskóli Fyrstu fréttir í upphafi skólaárs
Kæru foreldrar og forráðamenn, nú styttist í skólabyrjum í Djúpavogsskóla, við vonum að allir komi endurnærðir úr sumarfríinu.

Í fyrsta fréttabréfinu verða helstu upplýsingar en endilega hafið samband ef eitthvað er óljóst. Umsjónarkennarar munu senda ykkur upplýsingar fyrir helgi um skráningu í skólasetningarviðtölin og markmið skólasetningarviðtala er að ná vel til allra nemenda og foreldra í upphafi skóla. Fara yfir breytingar og fara rólega inn í veturinn.

Við vinnum að því að efla heimasíðuna okkur og stefnum á að setja inn efni þar í tengslum við vikufréttir.

Bendum á að skóladagatalið er á heimasíðunni og starfsáætlun er langt komin og verður aðgengileg á heimasíðunni fljótlega.

Skóladagatal

https://www.djupavogsskoli.is/_files/ugd/ea0373_6fad1afa261e41368e6d920465f1fa67.pdf


Matseðill í ágúst

https://www.djupavogsskoli.is/_files/ugd/ea0373_56bbbd7a34da451a986cf4d455f4bfd8.pdf


Matseðill í september

https://www.djupavogsskoli.is/_files/ugd/ea0373_bacf345c713d4aacb4d90073af4cd4c3.pdf

BREYTINGAR Á SKRÁNINGU Í MÖTUNEYTI

Meðfylgjandi er bókun fjölskylduráðs um samrændar reglur um skráningu í skólamötuneyti.

Við förum eftir þessari reglu en aðlögum þetta að okkur og skráning í mötuneyti í Djúpavogsskóla fer fram með rafrænum hætti eftir helgi.

SKIPULAG NÆSTU VIKU

Mánudagur 22.ágúst og þriðjudagur 23.ágúst
  • Skólasetningarviðtöl, nemendur mæta í skólann með foreldrum og fá góðan tíma með umsjónarkennara í upphafi skólaárs og fá stundartöflur afhendar. Skráning í viðtölin í gegnum Mentor.


Miðvikudagur 24.ágúst

  • Formleg kennsla hefst samkvæmt stundarskrá.
  • Vonum að það viðri vel til útiveru.


Fimmtudagur 25.ágúst

  • Kennsla samkvæmt stundarskrá.
  • Allir nemendur mæta í skólann kl. 8:05
  • Góða berjaspretta í göngufæri við skólan :)


Föstudagur 26.ágúst

  • Förum í helgarfrí og vonum að veðrið leiki við okkur.

BREYTINGAR Á STUNDARTÖFLU OG BREYTT SKIPULAG

Umsjónarkennarar munu fara vel yfir stundartöflur með hverjum og einum en við munum líka senda ykkur góðar upplýsingar um breytingar.

Allir nemendur mæta í skólann á sama tíma, eftir þessu óskuðu bæði foreldrar og starfsmenn og formlegt erindi um þetta kom frá nemendaráði.


Skólinn opnar kl.7:50 og Kristrún tekur á móti nemendum.


  • 8:05 hefst skóladagurinn með yndislestri og rólegheitum.
  • 8:15 hefst samvera í öllum bekkjum.
  • Fyrsta formlega kennslustundin hefst kl. 8:30.

SAMVERA

Á skólaþingi og í samtali sem skólastjóri átti með nemendaráði koma skýrt fram að eldri nemendur vilja meiri samveru með yngri nemendum.

Í vetur ætla Þórdís og Berglind að vera með samverustund í 15mínútur á hverjum degi. Í þessum samverustundum verður sungið, dansað og fleira skemmtilegt.


Foreldrum verður kynnt þetta með sérstökum pósti.

UPPHAFSDAGAR HJÁ STARFSMÖNNUM

Obba og Þórdís mættu til vinnu í byrjun ágúst og hófust handa við að undirbúa nýtt skólaár og margir starfsmenn kusu að taka endurmenntun sem var í boði Skólaskrifstofu í Múlaþingi.


Allir starfsmenn voru svo mættir til vinnu í þessari viku og unnið var að undirbúningi, það er allt að smella saman.

Á þriðjudegi var fyrsti starfsdagur og hann hófst með því að við borðuðum saman morgunmat á Bragðavöllum og fórum saman yfir starfsáætlun vetrarins.

Á miðvikudeginum fórum við í Egilsstaði á námskeið um leiðsagnarnám sem haldið var af Háskólanum á Akureyri.

Á fimmtudegi og föstudegi voru stundartöflur samræmdar og farið yfir áherslur vetrarins. Nýr fræðslustjóri, Sigurbjörg Hvönn, kom í heimsókn og Obba og Þórdís fóru á fyrsta sameiginlega fund skólastjóra í Múlaþingi.


Búið er að manna allar stöður og í hópinn hefur bæst einn kennari en það er hún Ewelina Hubert. Ewelina er sérkennari og starfa með Ingu og félögum í stoðþjónustunni.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

STARFSMANNALISTI DJÚPAVOGSSKÓLA 2022-2023

Tekið úr starfsáætlun sem er í vinnslu en verður birt fljótlega á heimasíðu skólans.
Það er öflugur starfsmannahópur sem tekur á móti frábærum nemendum í Djúpavogsskóla sem verða rétt undir 90 í upphafi þessa skólaárs.

TÓNLISTARSKÓLI DJÚPAVOGSSKÓLA

Tónlistarskólinn verður starfræktur í skólanum í vetur. Berglind mun deila rými með list- og verkgreinakennslu í nýbyggingunni. Nemendum stendur til boða tónlistarnám á skólatíma.


Innritun í Tónlistarskóla Djúpavogs hefst á næstu dögum.

FRÍSTUND Á HELGAFELLI

Boðið verður upp á lengda viðveru fyrir nemenda í 1.-3.bekk. Það starf fer fram á Helgafelli og Natan Leó Arnarsson verður umsjónarmaður Frístundar.

Hægt verður að skrá nemendur rafrænt eftir helgi.


Nemendur úr dreifbýli hafa aðstöðu á Helgafelli eftir að skóladegi líkur.



SKÓLAAKSTUR

Skólaakstur hefst 24.ágúst, við upplýsum betur um það eftir helgi.

FRAMKVÆMDIR Á SKÓLALÓÐ OG SKÓLAHÚSNÆÐI

Framkvæmdir á skólalóð ganga hægt en mjakst þó. Skólalóðin okkar er einstök og við viljum halda í klettana og sérkennin. Það rennur töluvert vatn úr Bóndavörðuholtinu og niður skólalóðina. Þessa dagana eru Egill og félagar að steypa vegg með drenlögn m.a. til að leysa þetta vandamál. Það er mikilvægt að klára þetta svo að hægt sé að halda áfram, setja upp leiktæki, skýli yfir pallinn og fleira.


Það stóð til að skólinn væri með nýjum gluggum, útihurðum, klæðningu og þakskeggi í upphafi skóla en það gekk ekki eftir.

Eins og þið hafið eflaust flest séð þá er opið inn í einangrunina og þannig verður það eitthvað fram á haustið. Við þurfum að útskýra vel fyrir nemendum að ganga vel og varlega um svæðið, það verða framkvæmdir á lóðinni á næstu vikum og það mun valda einhverju ónæði suma daga.

Við getum hins vegar litið á björtu hliðarnar og glaðst yfir því að framkvæmdir eru hafnar og brátt mun gamla skólabyggingin okkar fá nýtt útlit.

KÆRU FORELDRAR OG FORRÁÐAMENN

Í upphafi skóla er í mörg horn að líta. Við erum langt komin með að uppfæra starfsáætlun sem verður aðgengileg á heimasíðunni. Starfsáætlun segir til um starfsemi skólans og þar eru allar helstu upplýsingar um daglega stafið.

Ég mun leggja mig fram við að halda ykkur upplýstum með vikulegu fréttabréfi, eins og ég gerði í fyrra vetur og Þórdís ætlar að fylgja því eftir með efni á heimasíðunni og umsjónarkennarar munu senda föstudagspósta. Ég vona að þessar fyrstu vikufréttir gefi ágæta innsýn í upphafið, við förum rólega af stað og byrjum starfið með skólasetningarviðtölum, það verður kaffi á könnunni hjá okkur Þórdísi, kíkið endilega við hjá okkur ef eitthvað er óljóst eða þið viljið spjalla.


Við hlökkum til að sjá ykkur og starfa með ykkur í vetur.

Starfsfólk Djúpavogsskóla

zoom_out_map

HUREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

Email: thorbjorg.sandholt@mulathing.is
Website: https://www.djupavogsskoli.is/
Location: Varda 6, Djúpivogur, Iceland
Phone: 4708710

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter