Smore logo
remove_red_eye 101
page background

Bundið áfangaval og valáfangar

Haustið 2021

Bundið áfangavalog valáfangarHaustið 2021

MUNIÐ AÐ HUGA AÐ UNDANFÖRUM!

Til að velja í innu smelltu hér!

Íþróttaakademía - ÍÞAK1NÍ04

Bundið áfanga val / Valáfangi

Undanfari: Enginn

Áfanginn er verklegur og bóklegur og ætlaður nemendum sem stunda íþróttgrein/ar að jafnaði og þeim sem hafa áhuga á líkams- og heilsurækt. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringafræðinnar og samspili næringar, heilsu og íþróttaiðkunar. Farið verður yfir mikilvægi þess að velja réttu fæðu sem lið í markvissum undirbúningi fyrir hvers konar æfingar og keppni og hvernig það getur haft áhrif á afreksgetu og árangur.

Byrjunaráfangi í eðlisfræði fyrir náttúruvísindabraut - EÐLI2BY05

Brautarkjarni / Valáfangi

Undanfari: NÁTT1GR05 og STÆR2AF05 eða sambærilegir áfangar

Í þessum grunnáfanga í eðlisfræði er farið yfir hreyfingu hluta eftir beinni línu, vigra í tvívíðu rúmi, kraftalögmál Newtons, orkuvarðveislu, skriðþunga, þrýsting og ljósgeislafræði. Áhersla verður á skilning nemandans á efninu og að hann geti tengt það við raunveruleg vandamál.

Almenn efnafræði - EFNA2AE05

Brautarkjarni / Valáfangi

Undanfari: NÁTT1GR05 eða sambærilegur áfangi

Í þessum áfanga er fjallað um frumatriði almennar efnafræði. Til umfjöllunar er bygging atóma/frumeinda, lotukerfið, efnatengi, nafngiftareglur, efnahvörf, oxun/afoxun, ástand efna, lausnir, sýru/basar og orka í efnahvörfum.

Borðspil - SPIL2BS03

Valáfangi - Bara í dagsskóla

Undanfari: Enginn

Í áfanganum er spila nokkur af flóknari borðspilum. Þessa kunnáttu er hæglega hægt að taka með út í félgaslíf ykkar.

Föll, deildun og markgildi - STÆR3DF05

Brautarkjarni / Valáfangi

Undanfari: STÆR2HV05 eða sambærilegur áfangi

Efni áfangans er stærðfræðigreining á margliður, vísis- og lograföll, markgildi og deildun algengra falla. Hagnýt verkefni leyst með deildareikningi. Áhersla er lögð á að nemendur fái góða innsýn í deildareikning og geti rökstutt helstu reglur þar að lútandi. Gert er ráð fyrir að nemendur kanni föll með vasareiknum og tölvuforritum en einnig án þeirra.

munið að huga að undanförum!! munið að huga að undanförum!!

Verkefnalíffræði - LÍFF3VE05

Brautarkjarni / Valáfngi

Undanfari: LÍFF2LE05 eða LÍFF2VF05 eða sambærilegur áfangi.

Í þessum valáfanga í líffræði fyrir náttúruvísindabraut er lögð áhersla á að nemandinn samþætti þá þekkingu og færni sem hann hefur tileinkað sér í fyrra námi, með sérstakri áherslu á líffræði. Meginmarkmið áfangans er að brjóta niður veggi milli fyrri áfanga og setja efni þeirra í víðara samhengi en áður hefur verið gert. Hver nemandi vinnur a.m.k. eitt stórt einstaklingsverkefni og fleiri minni verkefni ýmist einn eða í hóp. Efnisþættir eru valdir í samráði við nemendur hverju sinni.

Erfðafræði - LÍFF3EF05

Bundið áfangaval / Valáfangi

Undanfari: NÁTT1GR05 eða sambærilegur áfangi

Í áfanganum er fjallað um sögu erfðafræðinnar, stöðu hennar og mikilvægi í nútíma samfélagi. Farið er í helstu grunnhugtök og viðfangsefni erfðafræðinnar. Erfðafræðikenningar Mendels eru skoðaðar og tengdar við þekkingu okkar í dag. Mismunandi litninga- og genabreytingar eru kynntar. Próteinmyndun er rakin frá DNA og uppbygging erfðaefnisins skoðuð ítarlega. Virkni gena, erfðatækni og siðferði erfðarannsókna eru einnig umfjöllunarefni. Lögð er áhersla á að nemendur skilji hvernig erfðaefnið er uppbyggt, hvernig það flytur upplýsingar frá einni kynslóð til annarrar og hvernig einföld erfðalögmál virka. Áhrif erfðaefnis á fjölbreytileika lífvera og þróun er einnig áhersluatriði auk þess að nemendur þekki nokkra algengustu erfðasjúkdóma mannsins. Fjallað er um mikilvægi grundvallarþekkingar á erfðafræði í daglegu lífi, hraða þróun erfðatækni og möguleika framtíðarinnar.

Fötlun og samfélag - FÉLA2FÖ05

Valáfangi (Bara kenndur í fjarnámi)

Undanfari: Enginn

Lögð er áhersla á kynningu á ýmiss konar frávikum í andlegum og líkamlegum þroska. Farið verður í skilgreiningar á ýmsum tegundum fatlana, einkennum og orsökum. Leitast verður við að skoða hvaða áhrif mismunandi fötlun hefur á félagslega stöðu og skólagöngu fatlaðs fólks. Fjallað verður um mikilvægi frumgreiningar og snemmtækrar íhlutunar ásamt því að skoða þjálfunar- og meðferðarþarfir þeirra sem búa við fötlun. Fjallað verður um hvaða áhrif fötlun hefur á einstaklinginn og fjölskyldu hans, mikilvægi réttrar aðstoðar og stuðnings og hvernig eigi að leita eftir þeim rétti sem fólki ber í þessu sambandi. Áhersla er lögð á að efla skilning nemenda á margbreytileika mannlegra aðstæðna og virðingu fyrir öllu fólki.

VAltímabil 8.mars - 26.mars

Kenningar og rannsóknaraðferðir - FÉLA2KR05

Brautarkjarni / Valáfangi

Undanfari: FÉLV1ÞF05 eða sambærilegur áfangi

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að fjalla um frumkvöðla félagsfræðinnar og helstu kenningar greinarinnar. Fjallað er um tiltekna þætti samfélagsins í ljósi mismunandi kenninga og nokkrar alþekktar rannsóknir á sviði félagsvísindanna teknar til skoðunnar. Áhersla er lögð á að nemendur noti félagsfræðileg hugtök og félagsfræðilegt innsæi við túlkun samfélagslegra málefna. Eitt helsta markmið áfangans er að nemendur öðlist nánari og dýpri skilning á hugtökum, kenningum og rannsóknaaðferðum greinarinnar.

PASSIÐ UPP Á ÞREPASKIPTI!!

Námsbrautin skiptist í kjarna og frjálst val. Kjarninn samanstendur af áföngum sem nemendur á öllum stúdentsbrautum taka . Gæta þarf að því að kröfum um fjölda eininga á hæfniþrepi sé fullnægt.


  • Einingar á fyrsta hæfniþrepi mega vera 17 - 33%
  • Einingar á öðru hæfniþrepi mega vera 33 - 50%
  • Einingar á þriðja hæfniþrepi þurfa að vera 17 - 33%

Kyngervi, jafnrétti, klámvæðing - KYNJ2KJ05

Brautarkjarni / Valáfangi

Undanfari: FÉLV1ÞF05 eða sambærilegur áfangi

Kyn er grundvallarstærð í tilverunni og eitt af því sem skapar margbreytileika mannlegs samfélags rétt eins og þjóðerni, kynhneigð, aldur, stétt, fötlun og fleiri félagslegir áhrifaþættir og því varða jafnréttismál alla. Markmið áfangans er að nemendur þjálfist í að skoða heiminn með kynjagleraugum og nái tökum á helstu hugtökum kynjafræðinnar. Meðal efnisþátta er staða kynjanna á Íslandi og erlendis, saga jafnréttisbaráttunnar, klám og klámvæðing, kynbundið ofbeldi, völd og stjórnmál, staðalmyndir og birtingamynd kynjanna í afþreyingarefni og fjölmiðlum. Eitt af meginmarkmiðum áfangans er að vekja ungt fólk til meðvitundar um réttindi sín hvað varðar jafnréttismál.

Þú getur fengið aðstoð við valið!
Hægt er að fá aðstoð við valið hjá umsjónarkennurum, náms- og starfsráðgjafa eða aðstoðarskólameistara.

Aðferðafræði - FÉLV3KF05

Bundið áfangaval / Valáfangi

Undanfari: 10 einingar á 2. þrepi

Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna helstu rannsóknaaðferðir félagsfræðinnar. Einnig er vakin athygli á þeim tengslum sem ríkja á milli kenninga greinarinnar og rannsóknaaðferða. Fjallað verður um kosti og galla rannsóknaaðferða og siðferðileg vandamál sem geta komið upp við félagsfræðilegar rannsóknir.

Almenn þjóðhagfræði - HAGF2AÞ05

Bundið áfangaval / Valáfangi

Undanfari: FÉLV1ÞF05 eða sambærilegur áfangi

Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og innbyrðis tengsl þeirra. Helstu vandamál efnahagslífsins svo sem verðbólga, atvinnuleysi, viðskiptahalli, erlend og innlend skuldasöfnun eru tekin til skoðunar og farið er yfir kenningar um orsakir þeirra og leiðir til lausnar vandans eru ræddar. Fjallað verður um hlutverk Seðlabankans. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun vísitalna og fleiri algengar aðferðir við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum. Íslenskt efnahagslíf, breytingar þess og þróun undanfarna áratugi, er einnig verkefni áfangans. Fylgst er með efnahagsmálaumræðu í fjölmiðlum, á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Almenn stjörnufræði - STJÖ2SH05

Bundið áfangaval / Valáfangi

Undanfari: NÁTT1GR05 eða sambærilegur áfangi

Viðfangsefni þessa áfanga er stjörnuhimininn og þau fyrirbæri sem þar finnast. Fjallað er um eiginleika rafsegulbylgja og aðferðir stjörnufræðinga við rannsóknir með þeim, mismunandi gerðir sjónauka, reikistjörnur og önnur fyrirbrigði sólkerfisins, eðli sólarinnar, líf sólstjarna frá fæðingu til dauða, vetrarbrautir, fjarfyrirbrigði, heimsmynd nútímans og leit að lífi á öðrum hnöttum. Nemendur læra að lesa á stjörnukort og nýta sér upplýsingatækni við stjörnuathuganir og stjörnuskoðun. Einnig er fjallað um sögu stjörnufræðinnar, geimrannsóknir og geimferðir.

Passið upp á þrepaskipti!

Námsbrautin skiptist í kjarna og frjálst val. Kjarninn samanstendur af áföngum sem nemendur á öllum stúdentsbrautum taka . Gæta þarf að því að kröfum um fjölda eininga á hæfniþrepi sé fullnægt.


  • Einingar á fyrsta hæfniþrepi mega vera 17 - 33%
  • Einingar á öðru hæfniþrepi mega vera 33 - 50%
  • Einingar á þriðja hæfniþrepi þurfa að vera 17 - 33%

Barnabókmenntir - ÍSLE2BB05

Valáfangi (Bara kenndur í fjarnámi)

Undanfari: Einkunnin B við lok grunnskóla eða ÍSLE1LL02, ÍSLE1MF01 og ÍSLE1ST02 eða sambærilegt.

Í áfanganum fá nemendur yfirlit yfir sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabóka. Auk þess kynnast ýmsum flokkum barnabóka, svo sem þjóðsögum og ævintýrum, myndabókum, bókum fyrir stálpuð börn, myndasögum og unglingabókum. Í áfanganum eru því lesnar margar barnabækur, íslenskar og þýddar, af ýmsum gerðum auk fræðigreina um efnið. Einnig er barnaefni skoðað í tengslum við bókmenntirnar. Markmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir gildi barnabóka og þeim möguleikum sem markvisst starf með þær býður upp á. Í tengslum við efni áfangans fá nemendur þjálfun í notkun spjaldtölva í starfi með börnum.

Líffæra og lífeðlisfræði - LÍOL2SS05

Bundið áfangaval / Valáfangi

Undanfari: NÁTT1GR05 eða sambærilegur

Farið er í grundvallarhugtök líffærafræðinnar út frá latneskri nafngiftafræði og lífeðlisfræðileg ferli útskýrð. Fjallað er um svæðaskiptingu líkamans, áttir, líkamshol, skipulagsstig, byggingu og starfsemi frumna og vefja, flutning efna yfir himnur, jafnvægishneigð og afturvirk kerfi. Farið er í byggingu og starfsemi þekjukerfis: lagskipting húðar og líffæri; beinakerfis: beinmyndun, flokkun beina, beinagrind, brjósk, liðir og hreyfingar; vöðvakerfis: innri og ytri gerð vöðva, vöðvasamdráttur, helstu vöðvar líkamans; taugakerfis: taugavefur, taugaboð, taugaboðefni, flokkun taugakerfis og starfsemi, skynfæri og skynjun; innkirtlakerfis: innkirtlar og virkni hormóna.

Hugmynd og hönnun - NÝFR2HH05

Valáfangi

Undanfari: Enginn

Markmið áfangans er að nemandinn kynnist aðferðafræði og hugmyndafræði nýsköpunar og fái tækifæri til vinna með eigin hugarsmíð. Farið er í gegnum ferli sem byggir á að vinna á skapandi hátt hugmyndavinnu þar sem skilgreind er þörf, unnið að lausnum og stefnt að afurð. Markmiðið er að nemendur þjálfist í að hugsa um marga þætti samtímis og að vinna að einni heild. Vinnuferlið frá hugmynd til verks verður þjálfað með áherslu á skapandi vinnubrögð í skissum og margs konar hönnun og líkanagerð með ýmsum efnum. Nemandinn kynnir verkefni sín og rökstyður lausnirnar.

Valtímabil 8.mars - 26.mars

Rúm- og tölfræði, líkinda- og viðskiptareikningur

Valáfangi

Undanfari: Einkunnin B við lok grunnskóla eða STÆR1GA05 + STÆR1RU05

Í áfanganum er fjallað um rúmfræði með teikningum, tölfræði, líkindareikning og viðskiptareikning.

Helstu efnisatriði:

• Grundvallarhugtök og reglur í evklíðskri rúmfræði.

• Mælingar í rúmfræði og mikilvægi nákvæmi

• Grunnatriði tölfræði og líkindareiknings: Myndrit, meðaltal, miðgildi, tíðasta gildi, staðalfrávik, spönnun, einföld líkindi og fleira

• Talningaraðferðir, flokkun gagnasafna og framsetning niðurstaðna

• Viðskiptareikningur: Prósentur, álagning, afsláttur, virðisaukaskattur, vextir, vísitölur og fleira

• Hagnýt verkefni um notkun viðskiptareiknings

Stafræn myndvinnsla - MARG2SM05

Valáfangi

Undanfari: Enginn

Nemendur læra á ljósmyndaforrit, teikniforrit og uppsetningarforrit ásamt öðrum forritum sem nýtast í framsetningu mynda.

Upplýsingatækni - UPPT1UT05

Valáfangi (Bara kenndur í fjarnámi)

Undanfari: Enginn

Í áfanganum læra nemendur að nota ritvinnsluhugbúnað til að skrifa ritgerðir og töflureikni og glæruforrit til að setja fram upplýsingar á margvíslegu formi við vinnslu verkefna í námi sínu. Fjallað um tölvubúnað og hvernig best má hagnýta hann í námi. Fjallað verður um almenn atriði upplýsingalæsis, m.a. er farið yfir gögn um upplýsingaöflun, útgáfuform upplýsinga, bókasöfn, handbækur og tölvusamskipti.

Þroski og hreyfing - ÍÞRF2ÞH05

Valáfangi (Bara kenndur í fjarnámi)

Undanfari: Enginn

Í áfanganum læra nemendur um þroska barna á leik- og grunnskólaaldri. Fjallað er um alla helstu þroskaþættina en einkum er horft til skyn- og hreyfiþroska, líkams- og félagsþroska og hvar börn eru stödd á mismunandi aldursskeiði. Fjallað er um mikilvægi hreyfináms, áherslur í hreyfinámi út frá aldri og hvernig nýta má hreyfinám til að efla áðurnefnda þroskaþætti. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur kynnist notkun ýmiss konar áhalda og öðlist innsýn í hvaða leikir og þjálfun henta fyrir mismunandi aldursskeið. Fjallað er um áætlanagerð og skipulag hreyfináms ásamt fjölbreyttum möguleikum til hreyfináms með tilliti til mismunandi aðstæðna og umhverfis. Þroskapróf og tilgangur þeirra eru kynnt og fá nemendur innsýn í hvernig greina megi frávik frá eðlilegum líkams- og hreyfiþroska. Þeir fá einnig innsýn í kennsluhætti sérkennslu í íþróttum.

Uppeldis- og menntunarfræði - UPPE3UT05

Bundið val / Valáfangi (Bara kenndur í fjarnámi)

Undanfari: UPPE2UM05

Í áfanganum er fjallað um ýmis svið uppeldis og mennta á Íslandi. Nemendur skoða hugmyndafræði og markmið leik-, grunn- og framhaldsskóla og vinna verkefni sem tengjast þessum skólastigum. Einnig verkefni sem tengjast forvörnum, fjölmenningu, áhrif dægurmenningu og tómstundir barna og unglinga. Ýmsir áhrifaþættir í uppeldi eru skoðaðir svo sem kynhlutverk, sorg og viðbrögð við áföllum, skilnaður, einelti og ofbeldi. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennsluhætti og ábyrgð, virkni og áhuga nemenda.

Enski boltinn - ENSK2EB05

Valáfangi

Undanfari: Hafa lokið 10 einingum á 2. þrepi.

Í þessum áfanga munu nemendur kynna sér enska boltann frá ýmsum sjónarhornum. Lögð er áhersla á að nemendur tjái sig skriflega og á faglegan máta Nemendur þjálfast í að nota sérhæfðan orðaforða sem tengist íþróttum. Nemendur skrifa ýmiss konar texta sem tengjast enska boltanum og halda úti þar til gerðri heimasíðu. Skólastofan tekur á sig mynd fréttastofu þar sem fram fer teymis- og einstaklingsvinna.

munið að huga að undanförum!! munið að huga að undanförum!!

zoom_out_map

Verkmenntaskóli Austurlands

Email: va@va.is
Website: https://www.va.is/is
Location: Mýrargata 10, Neskaupstadur, Iceland
Phone: 477 1620
Facebook: https://www.facebook.com/Verkmenntaskoli.Austurlands
Twitter: @VerkAust

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter