Smore logo
remove_red_eye 323
page background

Fréttabréf

Ágúst 2024

Fréttabréf Ágúst 2024

Kæru foreldrar og forráðamenn

Nú styttist í að skólinn hefjist og samkvæmt venju byrjum við á að kennarar, nemendur og foreldrar hittist og ræði saman um komandi vetur. Þið munið fá tölvupóst frá kennurum með upplýsingum um hvernig þig þið bókið samtal.


Fyrstu skóladagarnir einkennast af hópefli, vinnu við bekkjarsáttmála og útiveru. Þá er nauðsynlegt að rifja upp skólareglur og reglur sem gilda á skólalóðinni á skólatíma. Við þurfum að gera nemendum ljóst að reglur eru settar til þess að auka öryggi allra.


Í ágúst taka gildi nýjar samræmdar reglur um símanotkun nemenda í grunnskólum Akureyrarbæjar. Hér má kynna sér þær. Það skiptir miklu máli að við fullorðna fólkið stöndum saman og sýnum gott fordæmi hvað varðar símanotkun.


Í vetur verður gjaldfrjáls hádegismatur fyrir nemendur. Verið er að vinna að útfærslu varðandi skráningu. Áfram verður hægt að greiða fyrir mjólkur- og ávaxtaákrift.

Við skólabyrjun er úthlutað námsgögnum. Við viljum fara vel með gögnin og nýta þau á ábyrgan hátt. Það að útvega nemendum námsgögn stuðlar að jöfnuði, sparnaði og jákvæðum umhverfisáhrifum. Með fræðslu og aukinni meðvitund um umhverfið ættum við í sameiningu, skólinn, foreldrar og nemendur að geta náð árangri í að nýta gögnin vel.


Eins og staðan er núna eru um 440 nemendur í skólanum og um 75 starfsmenn. Við bjóðum nýja nemendur, foreldra og nýtt starfsfólk velkomið í hópinn okkar. Við erum fjölmennt samfélag sem þarf að standa vörð um skólastarfið og það gerum við m.a. með því að hafa einkunnarorð skólans í huga.

MENNTUN - GLEÐI - UMHYGGJA - FRAMFARIR

Með von um gott samstarf í vetur,

starfsfólk Brekkuskóla

zoom_out_map

Umferðaröryggi

Þegar skólinn byrjar fjölgar börnunum okkar í umferðinni. Við fullorðna fólkið þurfum að hjálpa þeim að fara varlega og það gerum við bæði með fræðslu og með því að vera góðar fyrirmyndir.

Hér má nálgast upplýsingar og myndbönd sem gott er að skoða með börnunum áður en skólinn byrjar.


Gott að hafa í huga:

# Hjálpum börnunum að velja öruggustu leiðina í skólann og kennum þeim að fara yfir götur, með og án ljósastýringar.

# Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir.

# Tökum tillit til annarra vegfarenda, sérstaklega í nánd við skóla.

# Tvímennum ekki á hlaupahjólum.


Brýnum fyrir börnunum að ganga vel og örugglega frá hjólum og hlaupahjólum við skólann.

Við bendum á að á skólatíma má ekki hjóla á skólalóðinni.

zoom_out_map

Á döfinni

  • Samtöl nemenda, foreldra og kennara dagana 22. og 23. ágúst.
  • 28. ágúst kl. 16:30 fræðsla/samtal um heimalestur ætlað aðstandendum barna í 1. - 3. bekk.
  • 4. september hefst verkefnið Göngum í skólann. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
  • 5. september Útivistardagur Nánari upplýsingar koma frá umsjónarkennurum.
  • Nemendur koma á sal næstu daga og farið verður yfir skólastarfið framundan.
  • Lesfimipróf lögð fyrir í september í öllum árgöngum.
  • 9. - 12. september Foreldrasamstarf 1 - 3 - 5 - 8.
  • 23. -26. september seinni hluti foreldrasamstarf 1 - 3 - 5 - 8.
  • 20. september fótboltamót 8. - 10. bekkur.
zoom_out_map

Mentor

Skólinn notar samskipta- og upplýsingakerfið Mentor. Þar er m.a. að finna bekkjarlista og hægt að senda tölvupósta. Á hæfnikortum birtist námsframvinda nemenda. Skólinn notar dagbók í Mentor til að skrá ýmsar upplýsingar og fundargerðir þegar það á við.


Foreldrar geta sjálfir skráð börnin veik í gegnum Mentor. Ef sækja þarf um leyfi fyrir nemendur þá er það gert með því að fara á heimasíðu skólans og óska þar eftir leyfi. Alltaf skal hafa samráð við umsjónarkennara þegar óskað er eftir leyfi.


Á heimasíðu Mentors er m.a. handbók fyrir aðstandendur þar sem hægt er að nálgast ýmsar gagnlegar upplýsingar og notkunarleiðbeiningar. Athugið að ekki er víst að skólinn nýti alla möguleika sem Mentor býður upp á - það er valkvætt hvernig skólar ákveða að nota kerfið.

zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar & áætlun gegn einelti

Í Brekkskóla höfum við valið okkur þessar tvær leiðir; Uppeldi til ábyrgðar og áætlun gegn einelti til að stuðla að öryggi og vellíðan nemenda.

Uppeldi til ábyrgðar - Uppbygging sjálfsaga. (Restitution - Self Discipline) Gengur í stuttu máli út á það að kenna börnum og unglingum sjálfsstjórn og sjálfsaga.


Nemendur læra:

  • Að setja sér markmið, gera uppbyggingaráætlanir, stunda sjálfsrannsókn

  • Að rækta og efla sinn innri áhuga

  • Að bera ábyrgð á eigin námi

  • Að læra leiðir til að hafa stjórn á eigin hegðun

  • Aðferðir við lausn ágreiningsefna

  • Að sinna þörfum sínum af ábyrgð gagnvart sjálfum sér og öðrum.(Minni freisting að taka vonbrigði sín út á öðrum eða leggja aðra í einelti)

  • Að mynda tengsl við aðra

  • Að bera ábyrgð á eigin mistökum, leiðrétta þau og bæta fyrir þau

  • Að verða þeir sjálfir - þær manneskjur sem þeir vilja vera.

  • Að gera bekkjarsáttmála


Áætlun gegn einelti

Á heimasíðu Brekkuskóla er að finna áætlun gegn einelti sem er hugsuð til að fyrirbyggja einelti, bæta líðan og öryggi nemenda og bregðast við grun um einelti á fullnægjandi hátt. Því miður er einelti til staðar í skólanum og samfélaginu okkar og því verðum við í sameiningu að vinna hörðum höndum að fyrirbyggjandi aðgerðum og bregðast ákveðið við þegar upp kemur einelti.

zoom_out_map

Brekkuskóli er hnetulaus skóli

Við minnum á að Brekkuskóli er hnetulaus skóli. Það gildir bæði fyrir nemendur og starfsfólk.

zoom_out_map

Hafðu samband

Ábyrgðarmenn: Stjórnendur Brekkuskóla

Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 414-7900
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/

Brekkuskóli Brekkuskóli
Brekkuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter