Smore logo
remove_red_eye 872

Hvalrekinn

12. október 2021

Hvalrekinn12. október 2021

Það líður að vetrarfríi ....

Ágætu foreldrar,


Þá er liðið vel á þetta skólaárið og hefur skólastarfið gengið mjög vel ef frá eru taldir nokkrir fyrstu dagar skólaársins. Eldgosið sem við höfum verið svo heppin að geta fylgst með frá skólanum okkar hefur legið í dvala undanfarnar vikurnar. Eigum við ekki að vona að veiran sem verið hefur að stríða okkur á undanförnum mánuðum fylgi nú eldgosinu og láti ekki meira á sér kræla í bráð.


Vetrarfrí verður á komandi fimmtudag og föstudag. Vonum svo sannarlega að allir eigi eftir að eiga góðar stundir með sínum börnum. Föstudaginn 22. október verður síðan námsviðtalsdagur, sjá nánar um hann hér neðar


Ég vil óska nýrri stjórn foreldrafélagsins til hamingju en hún var kosin á aðalfundi foreldrafélgsins í byrjun september. Veit ég að það á eftir að vera gott samstarf við stjórn foreldrafélagsins nú eins og endranær.


Enn og aftur vil ég hvetja ykkur foreldra til að fylgjast vel með heimanámi ykkar barna, því áhugi ykkar getur skipt sköpum hvað varðar námsárangur, áhuga og viðhorf nemenda til náms. Áhugi og jákvæðni ykkar á nám nemenda á aðeins eftir á efla hjá þeim getu, seiglu og þrautsegju. Seigla gengur út á að gefast ekki upp og með þrautsegju eflast nemendur við hverja raun.


Vonandi eigið þið eftir að hafa það sem best í vetrarfríinu og helgina strax á eftir.

Munum öll að njóta saman.

Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri

zoom_out_map

Hvaleyrarskóli er hnetulaus skóli

Þar sem nemendur og starfsmaður skólans er með bráðaofnæmi fyrir hnetum er Hvaleyrarskóli hnetulaus skóli og biðjum við foreldra jafnt sem starfsfólk að virða það. Nemendur og starfsfólk mega því ekki koma með hnetur í skólann.

Vetrarfrí 14. og 15. október

Vetrarfrí verður í grunnskólum Hafnarfjarðar, fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15. október. Við vonum að nemendur og fjölskyldur þeirra hafi það gott í fríinu.

Hafnarfjarðarbær hefur tekið saman heilt stafróf af hugmyndum til að skapa þér og þínum fjölbreytt verkefni heimavið eða í næsta nágrenni.

Autumn brake in Hafnarfjörður.


Hér má finna fleiri hugmyndir að útivist.


There will be a Winter break on Thursday the 14th and Friday the 15th of October. We hope all our students and their families will enjoy their winter break.

zoom_out_map

Námsviðtöl föstudaginn 22. oktober

Það líður að námsviðtölunum sem verða föstudaginn 22. október. Á morgun, miðvikudaginn 13. október verður opnað fyrir skráningu í Mentor þar sem þið getið valið ykkur tíma sem eru lausir og hentar ykkur best. Síðasti dagur skráningar er þriðjudaginn 19. október.
Þeir foreldrar sem þurfa á túlkaþjónustu að halda geta ekki valið sér tíma, heldur verður þeim úthlutaðir tímar sem raðaðir eru upp fyrir túlkaþjónustuna.


Viljum minna á að til að viðtöl foreldra, nemenda og kennara verði markvissari er mikilvægt að foreldrar og nemendur séu vel undirbúnir. Að þessu sinni leggjum við áherslu á að ræða hvernig nemandanum líður í leik og starfi í skólanum. Til þess ætlum við að skoða nokkra þætti lykilhæfni aðalnámskrár. Þeir þættir sem við leggjum áherslu á að skoða að þessu sinni eru:

  • Samskipti og samvinna
  • Ábyrgð og sjálfstæði

Hér má nálgast spurningar sem nemendur eru beðnir um að svara með foreldrum sínum fyrir viðtölin og koma með sér útfyllt í viðtalið.

  • Yngsta stig, 1. - 4. bekkur
  • Miðstig, 5. - 7. bekkur
  • Elsta stig, 8. - 10. bekkur


Þá viljum við biðja foreldra og nemendur um að skoða námslega stöðu á Mentor. Í dagbók er nú einungis skráðar færslur ef kennari vill koma ákveðnum upplýsingum á framfæri við nemanda og foreldra.

Foreldrar og nemendur geta skoðað stöðuna í Mentor-appinu, sjá leiðbeiningar hér.

Ef þið hafið einhverjar óskir fram að færa eða athugasemdir, þá er ykkur velkomið að koma þeim á framfæri við okkur á skrifstofunni og við munum sjá hvort hægt sé að bæta úr eða koma þeim áleiðis til umsjónarkennara barnanna.
zoom_out_map

Fræðsla fyrir nemendur í 10. bekk

Þorgrímur Þráinsson kom í lok september í heimsókn til nemenda í 10. bekk með erindi sitt Verum ástfangin af lífinu. Í erindinu brýndi Þorgrímur meðal annars fyrir nemendum mikilvægi þess að bera ábyrgð á sjálfum sér, sýna samkennd og þrautseigju, koma fallega fram og sinna litlu hlutunum dags daglega.
zoom_out_map

Heimsókn frá Danmörku

Í vetur stóð nemendum í 10. bekk til boða valáfanginn norrænt samstarf. Alls eru 25 íslenskir nemendur skráðir í verkefnið og halda kennararnir Bryndís Kolbrún Sigurðardóttir, Grétar Birgisson og Gunnur Baldursdóttir utan um verkefnið.


Samstarfið er styrkt af Nordplus Junior. Markmið samstarfsins er að skapa tengsl nemenda í löndunum og um leið bæta gæði kennslu. Samstarfið fer annars vegar fram með rafrænum samskiptum milli skólanna auk gagnkvæmra heimsókna milli landanna. Norrænt samstarf er orðið snar þáttur í skólaþróun Hvaleyrarskóla. Að þessu sinni vinna skólarnir að því að bæta upplýsingatækni í skólastarfi.


Að þessu sinni er Hvaleyrarskóli í samstarfi við Sct. Nicolai Skole í Køge Danmörku. Í liðinni viku tóku íslensku nemendurnir á móti nemendum frá Danmörku. Dagskráin var fjölbreytt og innihélt meðal annars hópefli, skoðunarferðir, „Pálínuboð“ sem nemendur og foreldrar buðu til að ógleymdu balli á vegum Versins. Á skólatíma unnu nemendur í teymum að gerð leikinna heimildamynda um skáldsöguna Grafarþögn.

Nemendur okkar í Hvaleyrarskóla og aðstandendur þeirra stóðu sig einstaklega vel í hlutverki gestgjafa og lögðu sig allir fram við að gera heimsóknina sem ánægjulegasta fyrir gestina. Á vorönn fara nemendur í Hvaleyrarskóla ásamt kennurum til Køge og heimsækja skólann.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Leikhópurinn Lotta kom í heimsókn

Leikhópurinn Lotta kom í heimsókn til okkar og sýndi leikritið um Litlu gulu hænuna fyrir nemendur í 1. - 4. bekk. Allir skemmtu sér vel bæði nemendur og ekki síður starfsfólk. Leikritið höfðaði vel til nemenda enda er boðskapurinn samvinna sem er eitt af gildum skólans. Munum að lífið verður svo mikið léttara ef við lærum að vinna saman og treysta hvort öðru.
zoom_out_map
Leikarar tóku á móti nemendum þegar þau komu í salinn.
zoom_out_map
Horft yfir nemendahópinn.
zoom_out_map
Leikhópurinn Lotta.

Forvarnardagurinn 6. október 2021

Hvaleyrarskóli hefur tekið þátt í Forvarnardeginum frá upphafi og var þetta því í 16. sinn sem nemendur í 9. bekk unnu verkefni í tilefni dagsins.

Á Forvarnardeginum ræddu nemendur í 9. bekk um verndandi þætti gegn áhættuhegðun. Áhersla var lögð á samveru með fjölskyldu, þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og að leyfa heilanum að þroskast. Nemendur unnu saman í hópum og skráðu hugmyndir sínar. Þá flutti hver hópur niðurstöður sínar á sal en síðan var svörum skilað inn.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Fréttir frá Bjargi

Starfið hjá okkur í Bjargi fer líflega af stað. Nú eru skráðir hjá okkur tólf nemendur frá sjö þjóðlöndum og eru þau á aldrinum 6 til 16 ára. Það er mjög gefandi og gaman að kynnast þessum krökkum sem eru öll þakklát fyrir að fá að ganga í skóla.


Námskráin fyrir börnin okkar er fjölbreytt og mikið stuðst við söng, dans og útikennslu. Kennarar leggja áherslu á að nemendur kynnist nánasta umhverfi og í raun bænum okkar Hafnarfirði. Mikilvægt er að börnin átti sig á því hvað bærinn okkar hefur upp á margt að bjóða sem kostar ekki neitt. Einn liður í því er að fara í Hellisgerði. Meðfylgjandi mynd er dæmi um glaða nemendur sem fóru þar í gegn í blíðunni um daginn.

zoom_out_map
Leikhópurinn Lotta kom og sýndi Litlu gulu hænuna fyrir nemendur í 1.-4. bekk.
zoom_out_map
Þriðji bekkur í bæjarferð.
zoom_out_map
Nemendur í 2. bekk fóru á myndlistarsýningu í Hafnarborg.
zoom_out_map

Ólympíuhlaup ÍSÍ

Ólympíuhlaup ÍSÍ fór fram þann 27. og 28. september hjá nemendum. Allir nemendur og starfsmenn skólans tóku þátt. Nemendur gátu valið að hlaupa/ganga 2,5 km, 5 km eða 10 km. Nemendur í yngstu deild fóru allir 2,5 km en einhverjir fóru 5 km. Á mið- og elsta stigi fóru nokkrir nemendur 10 km sem er glæsilegt. Alls hlupu nemendur og kennarar skólans 1200 km.

Nemendur stóðu sig afskaplega vel og voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.

zoom_out_map

Ný stjórn foreldrafélagsins

Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn rafrænn þriðjudaginn 7. september. Þar var ný stjórn kostin og hana skipa; Óskar Auðunn Finnsson, formaður. Aðrir í stjórn eru; Guðvarður Ólafsson, Inga Sigrún Kristinsdóttir, Jóhanna Ósk Snædal, Guðni Páll Sigurðarson, Dagný Rós Stefánsdóttir,

Reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar

Við minnum á samræmdar reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar en kynning á þeim er í kynningarglærum árganganna. Reglur og viðbragðsáætlun eru samræmdar þannig að ekki sé mismunun milli skóla bæjarins.


Starfsfólk skólanna í Hafnarfirði hefur áhyggjur af minnkandi skólasókn og fjölgun nemenda sem teljast falla undir skilgreiningar um skólaforðun. Í reynd eru allar fjarvistir frá skóla óheppilegar af ýmsum ástæðum og því er ekki gerður greinarmunur á fjarvistardögum þótt greinarmunur sé gerður á tilefni fjarvista. Eftir því sem skólasókn fer minnkandi taka við aukin viðbrögð af hálfu skóla til að koma sem lengst í veg fyrir að námsárangur nemenda versni vegna slakrar skólasóknar og vanlíðan aukist.

Meginefni reglanna er:


1. AÐ VIRÐING SÉ BORIN FYRIR SKÓLASÓKN

Allt skólasamfélagið (forsjáraðilar, nemendur, starfsfólk skóla) verður að bera virðingu fyrir mikilvægi skólasóknar alla 180 skóladaga nemenda í grunnskóla á hverju skólaári.


2. AÐ SKÓLA BERI ENGIN SKYLDA TIL SÉRSTUÐNINGS VEGNA LEYFA

Starfsfólk skóla ber ekki skylda til að þjónusta einstaka nemendur sérstaklega vegna fjarvista frá skóla, hverju nafni sem þær nefnast, og skulu forsjáraðilar ekki óska eftir slíkri þjónustu (t.d. að kennarar gefi út sérstaka heimavinnu eða skilaboð þegar um er að ræða persónuleg leyfi fjölskyldna).


3. AÐ SKRÁÐ SÉ RAUNSKÓLAMÆTING Í LOK SKÓLAÁRS Á VITNISBURÐARBLAÐ NEMANDA

Allar fjarvistir, hverju nafni sem þær nefnast, búa til eina raunmætingareinkunn sem gefin er á vitnisburðarskírteini nemenda í lok skólaárs, sem prósentuhlutfall af skólasókn yfir skólaárið.


4. AÐ GEFIN SÉ ÁRLEG LOKAEINKUNN (A-D) VEGNA SKÓLASÓKNAR Á VITNISBURÐARBLAÐ

Ástundun sem snýr að fjarvistum, seinkomum og brottrekstri úr kennslustundum mynda á einu skólaári skólasóknareinkunn sem hver nemandi fær á matskvarðanum A, B+, B, C+, C og D í samræmi við kvarða (sjá fylgiskjal póstsins).


5. AÐ VIÐBRÖGÐ SKÓLA OG BARNAVERNDAR VIÐ MINNKANDI SKÓLASÓKN SÉU SAMHÆFÐ

Þótt forsjáraðilar hafi víðtækar heimildir til að tilkynna veikindi og leyfi frá skóla munu skólar bregðast við öllu slíku sem „fjarvistum“ óháð tilefni, í samræmi við reglur. Allar fjarvistir frá skóla eru óheppilegar og miklar fjarvistir (umfram 10% kennslutímans eða 18 skóladaga á skólaári) geta hamlað námsárangri barna. Það er skylda nemenda að mæta í skóla nema að löggild forföll hamli. Umræddar reglur gilda um alla grunnskóla Hafnarfjarðar jafnt og færast með nemendum flytji þeir á milli skóla innan Hafnarfjarðar á skólaárinu.

zoom_out_map

Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum

Foreldrafélag Hvaleyraskóla hefur ákveðið að styrkja bekkjatengla fyrsta til fimmta bekkjar um hámark 5.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði er send á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Þar sem koma þarf fram nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekkjunum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjatengils. Gefum okkur um viku til að endurgreiða útlagðan kostnað.
zoom_out_map

Hverfisrölt

Flest ykkar hafið eflaust séð fréttir um liðna helgina um aukna ofbeldishegðun ungmenna í Hafnarfirði og Garðabæ.
Starfið í félagsmiðstöðvunum skiptir miklu máli í forvörnum og starfsfólk Versins gera hvað þau geta til að vera vel vakandi yfir þessum fréttum og grípa inní ef umræða fer af stað hér hjá okkur.
En við þurfum líka að leita til ykkar og fá ykkur foreldra/forráðamenn með okkur og skólanum í lið. Það hefur líklega aldrei verið eins mikilvægt að koma af stað hverfisrölti eins og nú.

Búið er að setja upp skipulag fyrir hverfisrölt hér á Holtinu og gert var skráningarskjal í gegnum Google sheet sem virkar þannig að foreldrar/forráðamenn sem viljið leggja okkur lið og taka þátt í hverfisröltinu skráið ykkur sjálf inní skjalið þá daga sem þið hafið tök á. Í lok hverrar vaktar biðjum við ykkur svo um að setja inn nokkur orð um hvernig gekk, hvað þið sáuð, hvert var farið og ef þið hafið einhverjar ábendingar eða athugasemdir.
Ef þið hins vegar verðið vör við hættulega eða ólöglega hegðun þá skal hringja beint í 112.

Byrjað verður á að setja inn mánudaga og föstudaga þar sem gert er ráð fyrir að allavega 2 aðilar fari í hvert skipti. Ef ekki næst að fylla einhverja daga fellur röltið niður þann dag. Öll samskipti fara í gegnum Margréti Heiðu deildarstjóra tómstundamiðstöðvar eða Dísu aðstoðarverkefnastjóri tómstundamiðstöðvarinnar í Hvaleyrarskóla. Hægt verður að nálgast gul vesti merkt foreldrarölti í félagsmiðstöðinni í Hvaleyrarskóla til kl. 22:00.
Fyrirkomulagið verður prófað til áramóta og sjá hvernig gengur. Eftir áramót myndum við mögulega hafa röltið á öðrum dögum en það kemur þá í ljós hvernig það verður.

Hér er hlekkur á skjalið: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1NMNCZe4F7N9dv2BracLYOPfqoGH4PuIoCqujkkccTZo/edit?fbclid=IwAR0sGFkyumQeh_BZuhZTkRHCo4TlCI8cdrpVDCnYS3_uNzBf90urCNC6f5o#gid=0

Ef þið hafið frekari spurningar bið ég ykkur vinsamlegast að okkur póst.

Með von um gott samstarf,
Margrét Heiða, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar Hvaleyrarskóla
margretm@hvaleyrarskoli.is
Dísa, aðstoðarverkefnastjóri Tómstundamiðstöðvar Hvaleyrarskóla
svandisg@hvaleyrarskoli.is

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter