Smore logo
remove_red_eye 369
page background
Logo

Tæknótíðindi

14. apríl 2026

Tæknótíðindi14. apríl 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 15. apríl - „Midnight Rave“ ball
  • 15. apríl - Opið hús
  • 17. apríl - Miðspannarmat
  • 22. apríl - Klúbbakvöld NST
  • 23. apríl - Sumardagurinn fyrsti

„Midnight Rave“ ball í Gamla bíó á morgun „Midnight Rave“ ball í Gamla bíó á morgun

Síðasti séns á að kaupa miða í dag!

„Midnight Rave“ ball verður haldið í samstarfi nemendafélaga Fjölbrautaskólans við Ármúla, Tækniskólans, Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og Borgarholtsskóla.


Ballið er haldið í Gamla Bíó miðvikudaginn 15. apríl.


Fram koma: Ragga Hólm, Tónhylur, Séra Bjössi, SZK og fleiri!


Nemendum er heimilt að bjóða einum gesti á ballið og þarf þá að skrá inn kennitölu nemendans í skólanum og svo upplýsingar um gestinn. Miðaverð er 4900 kr. fyrir nemendur FÁ, Tækniskólans, FMos og Borgarholtsskóla en 5900 kr. fyrir aðra. Það er takmarkaður fjöldi miða í boði og gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær.“


Nemendafélögin standa fyrir svokölluðum edrúpotti þar sem öllum gestum býðst að blása í áfengismæli til þess að taka þátt. Eftir ballið verða þrír nemendur dregnir út frá hverjum skóla og hljóta þeir 10.000 kr. gjafabréf. Einnig verður eitt 30.000 kr. gjafabréf dregið út af öllum nemendum skólanna.


Rétt eins og á öðrum viðburðum skólanna er öll neysla áfengis og annarra vímugjafa óheimil. Þá er einnig óheimilt að koma með tóbak (sígarettur, neftóbak eða munntóbak), nikótínpúða eða rafrettur inn á svæðið.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Hlekkur á miðsölu

Söngkeppni framhaldsskólanna 2026 Söngkeppni framhaldsskólanna 2026

Söngkeppni framhaldsskólanna fór fram laugardaginn 11. apríl í Háskólabíó.


Júlía Rós Kristinsdóttir nem­andi á Hönnunar- og nýsköpunarbraut stóð sig ákaflega vel og söng lagið „Elska þig enn“ fyrir hönd skólans.


Dómarar keppninnar í ár voru Bríet, Helgi Björns og Þormóður Eiríksson. Ágúst Þór Brynjarsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir voru kynnar keppninnar.


Hægt er að horfa á keppnina í spilara RÚV.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Söngkeppni framhaldsskólanna 2026

Opið hús hjá Tækniskólanum Opið hús hjá Tækniskólanum

Miðvikudaginn 15. apríl frá kl. 15:30 til 17:30.

Vekjum athygli á opnu húsi í Tækniskólanum.

Á þessum degi verður hægt að heim­sækja okkur á eft­ir­far­andi stöðum:

  • Tækniskólinn á Skólavörðuholti
  • Tækniskólinn á Háteigsvegi
  • Tækniskólinn við Flatahraun

Einnig verður hægt að koma í heim­sókn í flug­virkja­deild skólans við Árleynir 4 í Grafar­vogi.

Nem­endur og starfs­fólk taka vel á móti gestum og gang­andi sem fá hér ein­stakt tæki­færi til þess að kynna sér náms­framboð, félagslíf og aðstöðuna í Tækni­skól­anum.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skýrsla um ytra mat Skýrsla um ytra mat

Skýrsla um ytra mat Tækniskólans sem fram fór hjá okkur í febrúar hefur nú verið birt á vef stjórnarráðsins.


Í helstu niðurstöðum eru dregnir fram styrkleikar skólans og greind tækifæri til umbóta. Að öðru leiti er skýrslan byggð upp með sama hætti og matsviðmiðin fyrir gæðastarf í framhaldsskólum eru sett fram og skiptist því í eftirfarandi kafla:

  • Gæði náms og kennslu
  • Stjórnun og fagleg forysta
  • Innra mat og umbótastarf



Smellið á myndina hér að neðan til að nálgast skýrsluna.

User uploaded image
open_in_new zoom_out_map Show in original size

Miðspannarmat Miðspannarmat

Miðspannarmat verður birt seinni part föstudagsins 17. apríl á Innu.


Matið byggir fyrst og fremst á því náms­mati sem þegar hefur farið fram í viðkom­andi áfanga og er ætlað að veita leiðbein­andi upp­lýs­ingar um stöðu nem­enda í námi sínu.


Matskvarðinn fjórskiptur:

A = Ágætt. Nem­anda gengur vel.
B = Í lagi. Nem­andi hefur tök á efninu en má ekki slá slöku við.
C = Ábótavant. Nem­andi þarf að taka sig á til að ná áfang­anum.
X = Ekki forsendur til að gefa vitnisburð.

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter