Fréttabréf
7.tbl. 17. árg.ágúst - september 2025
Kæra skólasamfélag
Naustaskóli hefur nú sitt 17. starfsár af miklum krafti og með gleði að leiðarljósi. Það er alltaf tilhlökkun að hitta nemendur okkar eftir sumarfrí og taka á móti nemendum í 1.bekk sem eru að hefja sína skólagöngu. Starfsfólk skólans hefur undirbúið skólaárið af kostgæfni frá 1. ágúst með endurmenntun og skipulagningu til að tryggja sem besta þjónustu við nemendur. Í upphafi skólaárs eru skráðir 334 nemendur og í ár er unglingadeildin fjölmennust hjá okkur.
Við viljum minna á að áfram er símafrí í Naustaskóla. Í skólanum eru læstir símaskápar sem nemendum á unglingastigi ber að geyma símann í á skólatíma, en einnig er það góður kostur að geyma hann heima. Nemendum á unglingastigi er þó heimilt að koma með síma á föstudögum og nota hann í frímínútum og hádegishléi.
Við hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur ef einhverjar áhyggjur eða spurningar eru sem snúa að velferð eða námi barna ykkar.
Megi góð samvinna heimilis og skóla einkenna þetta skólaár.
Stjórnendur Naustaskóla
Bryndís, Helga Ósk og Þuríður
Á döfinni
22. ágúst skólasetning
3. september: Verkefnið göngum í skólann hefst
1. september: 6. bekkur fer í vettvangsferð á sjó með Húna II
4. september: Útivistardagur
8.september: Dagur læsis
9. september: Ólympíuhlaupið
16. september: Dagur íslenskrar náttúru
26. september: Starfsdagur
22.-25. september verða haustfundir með kennurum um skólastarfið í vetur.
Teymi vetur 2025 - 2026
Stjórnendur
Bryndís skólastjóri
Þuríður deildarstjóri/ staðgengill
Helga Ósk deildarstjóri
Kristjana ritari
Eiríkur húsvörður
Haraldur tölvuumsjón
1. bekkur
Eydís Elva
Aníta
Andrea
Stuðningsfulltrúar: Sandra Dís og Guðfinna.
2. - 3. bekkur
Vala
Stella
Sigurður Óli
Berglind
Hrund
Inga Huld Byrjendalæsis leiðtogi
Stuðningsfulltrúar: Harpa Mjöll, Kolbrún
4. - 5. bekkur
Elsa
Hafdís
Birgitta
Rósa María
Stuðningsfulltrúar: Olga, Védís, Natalia
6.- 7. bekkur
Þórey
Unnur
Dagný Hlín
Sunna F
Stuðningsfulltrúar: Alma, Magda, Bríet
8. - 10. bekkur
Andri Snær
Ása Katrín
Paula María
Magnús Jón
Halla
Katrín Ágústa
Lovísa
Kolbrún stoðkennari
Stuðningsfulltrúar: Hallgrímur, Arna
Verkgreinateymi
Alda heimilisfræði
Paula Del Olmo hönnun og smíði
Brynja textílmennt
Gillian myndmennt
Svanbjörg tónmennt
Ísatteymi
Kristín Margrét
Hrönn
Sunna A.
Stoðteymi
Stefanía þroskaþjálfi og Verkefnastjóri stoðteymis
Anna Kristín þroskaþjálfi
Kolbrún Sigurgeirs. stoðkennari
Sigríður sérkennsla/ Logos
Dagný Björg náms – og starfsráðgjafi
Deildarstjóri Fornvarna – og frístundamála (vantar)
Félagsmiðstöðvarfulltrúi (vantar)
Íþróttateymi
Sigmundur
Daníela
Karl Kristján
Hér má sjá alla sem starfa í skólanum okkar.
Mentor, handbækur og leiðbeiningar
Mentor hefur tekið saman algengustu spurningar og svör fyrir InfoMentor kerfið sem nálgast má hér í þessum tengli . Einnig hvetjum við foreldra til að heyra í skólanum ef það eru einhver vandamál.
- ATH! Þið getið óskað eftir nýju lykilorði á innskráningarsíðunni með því að smella á Gleymt/nýtt lykilorð og þá færðu sent nýtt lykilorð í það netfang sem skráð er á þig sem aðstandenda.
Upplýsingar um mat í hádeginu og ávaxtaráskrift
Matur í hádegi er án kostnaðar fyrir alla nemendur.
Skráning verður áfram með óbreyttu sniði, þ.e. forráðamenn skrá börn sín í gegnum Völu-skólamatur/ https://vala.is og birtist þá 0 kr. kostnaður við þá skráningu.
Þeir sem eru skráðir nú þegar þurfa ekki að skrá sig aftur. Alla aðstoð má fá hjá ritara skólans: kristjana@akmennt.is eða 4604100
Ávaxta og mjólkuráskrift er einnig skráð í gegnum vala.is og þeir se
Virðum skólaskylduna
Við viljum hvetja foreldra sem eru að huga að fríi á skólaárinu að skoða vel skóladagatalið með það í huga að reyna nota þá frídaga sem eru til staðar samkvæmt skóladagatali svo barnið missi sem minnst úr skóla. Það getur komið niður á börnum námslega og félagslega ef þau eru mikið frá skóla. Hér má sjá fyrir skólaárið skóladagatal 2025 - 2026 .
- Hér má sjá hagnýtar upplýsingar "Að byrja í grunnskóla" á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Útivistardagur
Útivistardagur er áætlaður 4.september og munu upplýsingar berast frá kennurum um skipulag og hvað þarf að hafa í huga. Mikilvægt er að skoða vel veðurspá og að börn séu klædd og skóuð eftir veðri og því hvert ferð þeirra er heitið.
Hjúkrunarfræðingur
Viðvera hjúkrunarfræðings á þessu skólaári er á mánundögum, miðvikudögum og fimmtudögum einstaka þriðjudaga frá kl. 08:00-14:30. Utan þess tíma er alltaf hægt að skilja eftir skilboð hjá ritara eða senda póst á netfangið torgh@akmennt.is