Smore logo
remove_red_eye 205
page background

Fréttabréf skólanna

VIRÐING - VELLÍÐAN - ÁRANGUR

FréttabréfskólannaVIRÐING - VELLÍÐAN - ÁRANGUR

Febrúar 2023

Það hefur ýmislegt verið á döfinni síðastliðinn mánuð. Nemendur grunnskólans tóku þátt í Lífshlaupinu sem lauk í gær en keppnin tók tvær vikur og tóku flestir grunnskólar landsins þátt. Reykjahlíðarskóli lenti í 4. sæti í sínum flokki með 62.577 mín í hreyfingu. Það var mjög hörð keppni á milli skóla og nemendur Reykjahlíðarskóla stóðu sig með prýði.


Þorrablót grunnskólans var svo haldið með pompi og prakt þann 2. febrúar síðastliðinn. Það var virkilega góð mæting eða 112 manns, það var mikil gleði. Við þökkum foreldrum, starfsfólki og nemendum fyrir þessa frábæru skemmtun.
Íþrótta og ungmennafélagið Mývetningur kom færandi hendi með 20 pör af gönguskíðum, stöfum og skóm. Bæði leik- og grunnskólinn geta nýtt sér þennan búnað en hugsunin er að hægt sé að nýta skíðin jafnt í kennslu, frístund og sem hreyfitíma. Nú þurfa bara allir að leggjast á eitt að biðja veðurguðina um meiri snjó svo við komumst út á skíði :)


Í þessum mánuði var einnig töluverð fjölgun nemenda en tveir nýjir nemendur bættust í grunnskólann og einn nemandi við leikskólahópinn.

Þá ber einnig að nefna að Bylgja Dögg hefur verið ráðin aðstoðarleikskólastjóri. Við bjóðum þeim hjartanlega velkomin.


Nemendur leikskólans tóku á móti Blæ sem þið munið vonandi flest eftir frá námskeiðinu í vor. En Blær fékk far hjá slökkviliðinu sem vakti mikla lukku meðal nemenda.


Samkvæmt Námsvísinum okkar erum við að klára fyrstu lotuna á þessari önn þar sem við unnum með grunnþættina Heilbrigði og velferð þar sem nemendur skólanna unnu með þemað "Hver er ég". Í næstu lotu vinnum við með grunnþáttinn Læsi og þar tökum við þemað "Myglaðar miðaldir".

zoom_out_map

Samverustund

zoom_out_map

Blær kemur í leikskólann

Blær vinur okkar fékk far með slökkviliðsbílnum
zoom_out_map

Sveitin okkar skartar sínu fegursta

Reykjahlíðarskóli - Myndir
Leikskólinn Ylur - myndir á Karellen
Vinátta - Blær

Gildi Vináttu

Umburðarlyndi
Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og að koma fram við alla aðra af virðingu.

Á döfinni

17. feb Konudagskaffi í leikskólanum kl. 14:00
20. feb Bolludagur
21. feb Sprengidagur
22. feb Öskudagur - grunnskóla líkur 12.00
27.feb - 2. mars Áhugasviðsvika í grunnskóla

3.-6. mars Vetrarleyfi í leik- og grunnskóla
14. mars Dagur stærðfræðinnar
15. mars Skipulagsdagur hjá leik- og grunnskóla

zoom_out_map

Heimasíður skólanna


Heimasíða leikskólans: https://ylur.leikskolinn.is/

Heimasíða grunnskólans: https://reykjahlidarskoli.is/


Myndir, matseðill, upplýsingar um stoðþjónustu og fleira er að finna á heimasíðu skólanna.

Email: anna@reykjahlidarskoli.is
Phone: 464-4149 464-4375

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter