Smore logo
remove_red_eye 300
page background

Fréttabréf Engidalsskóla ágúst 2025

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

Fréttabréf Engidalsskólaágúst 2025Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
Mentor leiðbeiningar fyrir foreldra
Á blaðsíðu tvö er að finna leiðbeiningar er varða póst stillingar - Persónuvernd - stillingar

Fréttabréf Engidalsskóla

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Nú styttist í skólabyrjun 2025. Við hefjum skólastarfið á samráðsfundum foreldra, nemenda og kennara þar sem farið er yfir væntingar til skólaársins og nemendur setja sér markmið í takt við aldur og þroska hvers og eins. Ekki er eiginleg skólasetning á sal en hefð hefur skapast fyrir því að skólastjóri sendir stutta kveðju í formi myndbands til foreldra/forsjáraðila á skólasetningardegi.


Fyrir nýja foreldra þá er vert að nefna að stjórnendur nýta þennan vettvang, fréttabréfin, til þess að segja frá skólastarfinu, viðburðum, koma upplýsingum á framfæri til foreldra/forsjáraðila ásamt því að lauma að ykkur hagnýtum ráðum, leiðbeiningum og fróðleik. Á síðasta skólaári byrjuðum við líka að nýta okkur Facebook og Instagram til að koma skilaboðum áfram og birta myndir úr skólastarfinu. Mjög skýrar reglur eru um notkun þessara miðla þegar kemur að myndefni þar sem nemendur sjást. Í fyrra fékk skólinn nýja heimasíðu engidalsskoli.is og er þar að finna töluvert af hagnýtum upplýsingum.


Síðustu ár höfum við kennt yngstu nemendunum sund í sundlauginni á Hrafnistu. Þegar við fórum í sumarfrí var það enn áætlunin en svo varð breyting í sumar þannig að ekki verður hægt að nýta laugina á Hrafnistu. Það er löngu búið að úthluta öllum tímum í sundlaugum sveitarfélagsins þannig að við verðum að þrengja að sundkennslunni í Sundhöllinni. Lendingin er að 1.-2. bekkur byrjar á að fara í sund tvisvar í viku í skólabyrjun og út september og svo aftur frá miðjum apríl og fram að skólalokum. 3.-7. bekkur verður svo í sundi frá lok september fram í miðjan apríl en á frí frá sundi þegar 1. og 2. bekkur eru í sundi. Með þessu móti fá allir lágmarksfjölda sundtíma sem eru 20 tímar á ári. Við munum svo reyna að bæta einhverjum hreyfitímum við á móti þessari skerðingu.


Síðustu haust höfum við haldið svokallaða líðanfundi með foreldrum, umsjónarkennurum og stjórnendum. Ánægja hefur verið með þessa fundi en í fyrra kom ósk um að seinka þeim aðeins og eru þeir á áætlun í lok september, hver og einn árgangur fær nánari upplýsingar um að síðar.


Við viljum nota þennan vettvang til að minna á reglur um notkun hjóla á skólatíma en þær er að finna á heimasíðu skólans.


Hagnýtar upplýsingar til foreldra:

Mikilvægt er að upplýsa skólann um forföll nemenda en hægt er að skrá veikindi beint inn á mentor.is auk þess sem hægt er að hringja í skólann í síma 5554433. Foreldrar geta ekki gefið leyfi í einstaka tímum og því þarf alltaf að hringja á skrifstofu skólans til þess að tilkynna leyfi.


Gæsla er í skólanum frá kl. 8:00 og kennsla hefst 8:20. Nemendur geta mætt 7:45 og fengið hafragraut að kostnaðarlausu. Grauturinn er í boði frá kl. 8:00 til kl. 8:15 og hefst afgreiðsla á honum 1. september.


Nýtt fyrirtæki tók við afgreiðslu á hádegismat fyrir nemendur í sumar. Fyrirtækið heitir Í Mat og er markmið þeirra að bjóða upp á fjölbreyttar og næringaríkar máltíðir fyir nemendur og starfsfólk grunnskólanna í Hafnarfirði. Verið er að leggja síðustu hönd á skráningarkerfið þeirra Matarstund en fyrstu dagana verður sendur matur fyrir alla nemendur en svo einungis fyrir þá sem skráðir eru í mat. Þið fáið nánari upplýsingar um það síðar.


Við leggjum sérstaka áherslu á að þau börn sem ekki verða í mataráskrift komi með hollt og næringarríkt nesti sem laust er við hnetur (sjá leiðbeiningar um nesti hér neðar í fréttabréfinu).


Engidalsskóli er heilsueflandi skóli og það birtist meðal annars í meiri hreyfingu, lengri útivist, aukinni geðrækt og áherslum á hollt og gott nesti. Við hvetjum foreldra til að passa upp á að nemendur fái nægan svefn og hvetjum starfsfólk, nemendur og foreldra til þess að ganga eða hjóla í skólann ef kostur er.


Við hlökkum til þess að sjá skólagangana fyllast af lífi og vonumst til ánægjulegs og farsæls samstarfs við ykkur foreldra/forsjáraðila.


Með bestu kveðju,

Skólastjórnendur Engidalsskóla.

Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar sem
User uploaded image
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar, Skýru mörkin

Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Reynsla okkar af síðasta vetri var góð og við hlökkum til að fara aftur yfir hlutverk hvers og eins með nemendum, skilgreina þarfir okkar og gera bekkjarsáttmála. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is


Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.


Í Engidalsskóla viljum við:

  • Ekkert ofbeldi hvorki líkamlegt né andlegt

  • Engin barefli né önnur vopn

  • Engin ávana- eða fíkniefni þar með talið áfengi, tóbak og rafrettur

  • Engar alvarlegar ögranir eða hótanir

  • Engin skemmdarverk

  • Enga áhættuhegðun

  • Engan þjófnað

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter