Smore logo
remove_red_eye 251
page background

Fréttabréf Flóaskóla

ágúst 2026

Fréttabréf Flóaskólaágúst 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Senn líður að skólabyrjun, allir starfsmenn skólans eru mættir til vinnu og undirbúningur skólastarfs gengur vel. Vonandi hafið þið átt ánægjulegt sumar. Við hlökkum til að hitta ykkur öll, nemendur og foreldra, á skólasetningu 25. ágúst. Það eru mörg spennandi verkefni framundan og tilhlökkun að takast á við komandi vetur.

bestu kveðjur úr Flóaskóla

Þórunn Jónasdóttir

Skólasetning og skólabyrjun

Skólasetning Flóaskóla verður þriðjudaginn 25. ágúst kl 10:00 í Þjórsárveri, gert er ráð fyrir að nemendur mæti með sínum forráðamönnum.

Að loknu stuttu ávarpi skólastjóra fylgja nemendur umsjónarkennurum í heimastofur. Kennarar kynna skipulag skólastarfs komandi vetrar, fara yfir fyrirkomulag náms og aðra mikilvæga þætti í skólastarfinu.

Skólahald og skólaakstur hefst síðan samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst.

Sumarfrístund

Sumarfrístund er í boði fyrir nemendur í 1.-4. bekk og hófst hún mánudag 17.8. kl 10:00. Síðan er opið frá 8.00-16:00 fram að skólabyrjun. Skráð var sérstaklega í þessa vistun.

Frístund í Flóaskóla

Líkt og undanfarin ár er lengd viðvera eftir skóla - frístund - í boði fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Mánudaga til fimmtudaga er opið frá 14:00-16:30 og föstudaga til 16:00.

Starfsmenn í frístund á komandi skólaári eru Maríanna Rún M Friðmundardóttir, Þórunn Sturludóttir Schacht og Jóhanna Sól Pálmadóttir.

pdf
insert_drive_file
reglur-fyrir-fristundarheimili-floaskola.pdf
Download
679.7 KB
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Fjölskyldudagur og Flóamót föstudaginn 28. ágúst - möguleiki að mæta á hestum í skólann

Föstudaginn 28. ágúst ætlum við að vera með fjölskyldudag í skólanum og á sama tíma verðum við með hið árlega Flóamót í samstarfi við Ungmennafélagið Þjótanda.


Þá eru nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsfólk hvött til að koma ríðandi á hestum í skólann.Jón í Villingaholti lánar skólansum girðingu þar sem hægt er að geyma hrossin á skólatíma. Hópreið verður frá Lyngholti kl 8:30 og eru allir sem áhuga hafa velkomnir að taka þátt í henni. Eins fer hópur frá Egilsstaðakoti. Þeir sem vilja vera með í þessum hópum koma sér sjálfir, með sína hesta, þangað fyrir þann tíma. Fólk sem kemur ríðandi úr öðrum áttum er hvatt til að tala sig saman. Gott er að miða við að vera mætt í skólann um kl 9:00.


Aðrir nemendur koma með skólabílum en þeir koma í skólann um kl 9:00 þennan dag.


Fjölskyldur nemenda eru velkomnar í heimsókn til okkar hvenær sem er yfir daginn til að taka þátt í deginum með okkur.


Fjölskyldudagurinn er skertur nemendadagur í skólanum og því verða skólabílar á ferðinni á öðrum tíma en venjulega. Skóladagurinn hefst kl 9:00 og er heimkeyrsla skólabíla kl 13:00. Knapar fara að gera sig klára til heimferðar á sama tíma.


Dagskrá Fjölskyldudagsins hefst kl 9:30 og verður með fjölbreyttu sniði. Ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Boðið verður upp á andlitsmálningu, hestar verða teymdir undir börnum, farið verður í útileiki og fleira.

10. bekkur Flóaskóla hefur fjáröflun fyrir útskriftarferðina sína með því að bjóða til sölu kökur, kaffi og djús á sanngjörnu verði. Ath að ekki er posi á staðnum en hægt að greiða með pening eða millifærslu.


Kl 10:00 hefst Flóamótið sem er íþróttamót fyrir krakka 16 ára og yngri, haldið í samstarfið við Ungmennafélagið Þjótanda. Þar keppa krakkar í eftirtöldum greinum:

4. bekkur og yngri: 60 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk og kúluvarp

5. – 7. bekkur: 60 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk og kúluvarp

8. – 10. bekkur 80 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk og kúluvarp

Einnig verður keppt í sérstökum aðstandendaflokki fullorðinna í 60 m hlaupi. Þar geta foreldrar og aðrir fjölskyldumeðlimir látið ljós sitt skína og látið gamla keppnisdrauma rætast.

Krakkar skrá sig til þátttöku á staðnum og eru foreldrar hvattir til að rétta hjálparhönd við framkvæmd mótsins.


Myndataka af hópnum verður kl 11:55 og síðan klukkan 12:05 býður Flóaskóli öllum upp á grillaða hamborgara.


Við vonum að sem flestir sjái sér fært um að koma til okkar í Flóaskóla og hefja skólaárið með skemmtilegum og eftirminnilegum hætti. Hlökkum til að sjá ykkur.

Starfsfólk Flóaskóla skólaárið 2026-2027

Töluverðar breytingar hafa orðið á starfsmannahópnum okkar fyrir þetta komandi skólaár.

Sveinn húsvörður lauk störfum 15. júní síðastliðinn og ætlar nú að njóta efri áranna. Ólöf Kristín flutti á Austurlandið og sinnir kennslu þar. Freyja Kristín, Sara og Ragnar hættu öll störfum og hyggjast stunda nám á komandi vetri. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir gott samstarf og óskum þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum.

María Hödd verður í leyfi frá skólanum þetta skólaár og Pálína í leyfi amk fram að áramótum. Hjálmar ætlar að einbeita sér að meistaranáminu sínu á komandi vetri og er því í leyfi frá íslenskukennslunni en kemur að sérverkefnum við skólann og vinnu við uppsetningu leikrits á elsta stigi. Ósk er einnig á leið í nám og verður í lágu starfshlutfalli í vetur.


Nýir kennarar við skólann eru Brynja Dís Björnsdóttir sem verður umsjónarkennari á yngsta stigi, með aðalumsjón yfir 1. og 2. bekk, Oddný Bárðardóttir sem kemur inn í umsjón á yngsta stigi og tekur við umsjón 4. bekkjar þegar Snædís fer í fæðingarorlof, Eydís Birta Smáradóttir kennir textílkennsluna í vetur og verður með umsjón á miðstigi.


Eins og staðan er þá eigum við eftir að ráða smíðakennara.


Varðandi aðra starfsmenn skólans þá er það þannig að Rannveig og Anna Linda sjá um mötuneytið í Þjórsárveri líkt og í fyrra. Rut er skólaritari skólans og stjórnendur þeir sömu, Halla, Jóhanna og Þórunn.


Ráðinn hefur verið iðjuþjálfi að skólanum Auður Eiðsdóttir og námsráðgjafi skólans verður Guðný María Sigurbjörnsdóttir.


Í frístundina er komin nýr starfsmaður Maríanna Rún og hún sinnir einnig stuðningi á skólatíma. Í vor kom Þórunn Sturludóttir inn í stuðning og í frístund og kemur hún til með að sinna þeim verkefnum áfram í vetur. Jóhanna Sól Pálmadóttir sinnir afleysingu í frístund og verður stuðningsfulltrúi í skólanum. Aðrir stuðningsfulltrúar eru eins og í fyrra Auðbjörg, Ella Veiga, Guðmunda Bríet, Jónas og Kolbrún.


Þá urðu þær breytingar að ræstingafyrirtækið sem við skiptum við hætti störfum og réðum við inn ræstitækni, Lumi, sem er starfsmaður skólans.


Umsjónarkennarar á komandi skólaári eru:

1.-4. bekkur; Brynja Dís, Rakel Dóra, Snædís Mjöll og Oddný

5.-7. bekkur; Eydís Birta, Kristín Lilja, Unnur

8.-10. bekkur; Eva, Hafdís Gígja, Elmar

pdf
insert_drive_file
reglur-fyrir-skolamaltidir-vid-floaskola.pdf
Download
281.7 KB
pdf
insert_drive_file
Skóladagatal Flóaskóla 2026-2027 - drög
Skóladagatalið okkar er enn skráð sem drög af því ekki náðist að ganga endanlega frá því fyrir kosningar. Ný fræðslunefnd á eftir að samþykkja það.
Download
394.2 KB
Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter