Smore logo
remove_red_eye 551
page background

Fréttamolar úr MS

13. október 2023

Fréttamolar úr MS 13. október 2023

Miðannar-pepp 👊 Miðannar-pepp 👊

Tíminn flýgur og nú líður á seinni hluta annarinnar. Nú fer róðurinn e.t.v. að þyngjast og mikilvægt að halda vel á spöðunum, mæta áfram vel og sinna náminu vel - þá fer allt vel að lokum.


Nemendur sem fengu Ó í tveimur áföngum eða fleirum hafa fengið póst og eru eindregið hvattir til að skoða sín mál, bóka tíma hjá námsráðgjafa og ræða leiðir til úrbóta.



Við hvetjum nemendur til að skoða vel niðurstöður miðannarmats í Innu og nýta sér til gagns. Ýtið á hnappinn hér fyrir neðan til að skoða kvarða um miðannarmat og hvaða matið þýðir.

➡️ Meira um miðannarmat ⬅️

Dagsetningar framundan 📆 Dagsetningar framundan 📆

zoom_out_map

Sunnudagur 15. október: Síðasti dagurinn til að sækja um Jöfnunarstyrk námsmanna

Föstudagur 20. október: Ýmis stöðupróf í tungumálum í MH (sjá nánar hér neðan)

Fimmtudagur 26. október: Matsdagur

Föstudagur 27. október: Matsdagur

Mánudagur 30. október: Haustfrí

Stöðupróf í tungumálum 20. okt.🌎 Stöðupróf í tungumálum 20. okt.🌎

Við vekjum athygli á því að það verða haldin stöðupróf í ýmsum tungumálum í MH föstudaginn 20. október. Nemendur í MS geta tekið prófin og fengið einingar metnar á sinn námsferil hér í MS. Þetta er t.d. kjörið fyrir nemendur sem hafa búið lengi erlendis eða hafa annað móðurmál. Hægt er að fá færni í tungumáli metnar í stað 3. máls (frönsku / þýsku) eða sem val.


Athugið að nemendur þurfa sjálf að skrá sig í prófið í MH með því að senda tölvupóst sbr. auglýsingu hér að neðan.

Stjórnendur í MS Stjórnendur í MS

Í MS starfa fjórir stjórnendur sem nemendur geta leitað til með ýmis mál. Rektor og konrektor stýra skólanum, kennslustjóri sér um ýmis nemendamál og námsbrauta- og námskrárstjóri gerir stundatöflur og hefur umsjón með námsferlum nemenda.


Ykkur er velkomið að leita til okkar á skrifstofu MS!

MS hlýtur tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna MS hlýtur tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna

zoom_out_map

Það gleður okkur að tilkynna að Menntaskólinn við Sund er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir framúrskarandi þróunarverkefni. Skólinn hlýtur tilnefninguna fyrir starfendarannsóknir, sem hafa verið stundaðar við skólann síðan 2005. Lokamarkmið allra starfendarannsókna er að bæta nám nemenda, líðan og námsárangur þeirra.

Könnunin ungmenni og netmiðlar 💻 Könnunin ungmenni og netmiðlar 💻

zoom_out_map

Menntaskólinn við Sund tekur þátt í könnuninni Ungmenni og netmiðlar sem framkvæmd er af Menntavísindastofnun HÍ og Fjölmiðlanefnd.


Allir nemendur yngri en 18 ára fengu boð um að svara könnuninni í pósti í gær og við vonumst til að sem flest taki þátt. Þátttaka er valkvæð en svörun sem flestra er afar mikilvæg.

Njótið helgarinnar 🥰 Njótið helgarinnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter