Smore logo
remove_red_eye 140
page background

Fréttabréf Flóaskóla

september 2026

FréttabréfFlóaskólaseptember 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Skólastarf fer mjög vel af stað og við horfum með tilhlökkun til komandi vetrar.

Ég vil byrja á að þakka þeim fjölmörgu sem komu í Flóaskóla á skólasetninguna í Þjórsárveri 25. ágúst síðastliðinn. Eins var afar ánægjulegt að sjá allan þann fjölda foreldra og annarra aðstandenda sem komu í skólann og tóku þátt í Fjölskyldudeginum síðasta föstudag. Skólinn er hjarta samfélagsins og það gleður okkur sem störfum í honum afar mikið þegar við fáum tækifæri til að opna skólann fyrir fjölskyldum nemenda og efla samtal og samvinnu. Það var því einstaklega ánægjulegt að hefja skólastarfið með Fjölskyldudeginum.


Bestu kveðjur úr Flóaskóla,

Þórunn Jónasdóttir

Dagskráin í september

Fyrsta og annan september voru úti og grenndarnámsdagarnir okkar. 9.-10. bekkur fóru í Þórsmörk, 7.-8. bekkur fóru í Fljótshlíðina, 5.-6. bekkur á Flúðir og 1.-4. bekkur í Skagás og Lyngholt.


Fyrsta þema skólaársins er unnið út frá einum grunnþætti menntunar, heilbrigði og velferð. Áhersla verður á svefn, næringu, hreyfingu og góð samskipti auk þess sem nemendur undirbúa nemendastýrð viðtöl sem haldin verða um miðjan október.


Við höldum samstarfinu áfram við skólana í uppsveitum Árnessýslu og fyrstu smiðjur vetrarins verða haldnar 24. og 25. september. Þá fara nemendur miðstigs á Laugarvatn á fimmtudegi og elsta stigið fer á Flúðir báða dagana.


Fyrsti bekkur heimsækir Krakkaborg í næstu viku og samstarfsverkefnið Gullin í grenndinni þar sem yngstu grunnskólabörnin og elstu leikskólabörnin vinna saman í Skagási verður á sínum stað, fyrsti dagur þess verkefnis er 24. september.


Haustþing kennara á Suðurlandi verður haldið 2. október og er því starfsdagur þann dag í Flóaskóla.


Olympíuhlaupið er svo fastur liður í starfinu í september og verður valinn til þess góður dagur þegar líður á mánuðinn.


Árleg fyrirlögn lesfimiprófa verður einnig á sínum stað í september.

Reglugerð Mennta- og barnamálaráðuneytisins um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum

Eins og tæplega hefur farið fram hjá neinum undirritaði mennta- og barnamálaráðherra reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum í lok ágúst. Sú reglugerð tók gildi 1.september. Samkvæmt henni er notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis óheimil á skólatíma. Þetta á við um tímann frá upphafi fyrstu kennslustundar til loka síðustu kennslustundar hvers skóladags nemanda í grunnskóla, þar á meðal frímínútur, matarhlé, sem og tómstunda- og félagsstarf sem er liður í daglegu starfi á skólatíma. Til skólatíma teljast líka vettvangsferðir og ferðir á vegum skóla sem eru hluti af skyldunámi. Starfstími frístundaheimila telst einnig til skólatíma samkvæmt reglugerðinni.

Reglugerðin gengur því töluvert lengra en þær símareglur sem settar voru á vorönn 2024 í Flóaskóla og við höfum unnið eftir síðan. Við höfum leyft síma í vettvangsferðum og ferðum á vegum skólans þegar við höfum talið slíkt eiga við. Símar hafa einnig verið leyfðir sem afþreying hjá eldri nemendum í lengri skólabílaferðum t.d. í og úr sundi. Þá hafa símar verið leyfðir í verkefnavinnu undir stjórn kennara. Þessi notkun er samkvæmt reglugerðinni ekki lengur heimil.

Símar hafa einnig verið leyfðir í skólabílunum bæði á leið í skólann og á heimleið og sú notkun breytist ekki.


Við eigum eftir að rýna, skilgreina og fá upplýsingar um ýmis atriði sem skapa e.t.v. vanda, eins og þegar nemendur eru sóttir beint í Þingborg í lok dags og varðandi ferðir sem eru samvinnuverkefni félagsmiðstöðvar og skóla. Við upplýsum ykkur þegar við höfum nánari upplýsingar.


Kynnið ykkur endilega reglugerðina, hún fylgir hér fyrir neðan.

pdf
insert_drive_file
Reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnsk. og á frístundah.
Download
87.0 KB

Treyjudagur 4. september ! https://treyjudagur.is/ Treyjudagur 4. september ! https://treyjudagur.is/

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Fjölskyldudagur og Flóamót

Föstudaginn 28. ágúst héldum við Fjölskyldudag í Flóaskóla í blíðskaparveðri. Nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsmenn voru hvattir til að mæta ríðandi á hestum í skólann. Þátttaka var frábær, 60 knapar mættu í hlað í Villingaholti. Þar voru hestarnir í góðu yfirlæti í grasmiklu gerði yfir daginn í boði Jóns í Villingaholti meðan knapar tóku þátt í Fjölskyldudeginum. Flóamótið sem er samstarfsverkefni skólans og ungmennafélagsins var á dagskrá frá 10-12. Tvö tjöld voru reist á grasflötinni aftan við skólann, 10. bekkingar voru með kökusölu í öðru þeirra og í hinu var hægt að fá andlitsmálun. Dagskrá Fjölskyldudagsins var með fjölbreyttu sniði. Það voru glöð börn sem skruppu á hestbak, föndruðu, tóku upp grænmeti, fóru í Kubb og voru í frjálsum leik. Fullorðna fólkið var duglegt í kaffi og kökukaupum og breiddi svo úr teppum og sat í brekkunni að fylgjast með Flóamótinu. Stemmingin sem skapaðist minnti helst á fjölskylduvæna útihátíð. Þátttaka bæði barna og fullorðinna í Flóamótinu var mjög góð og keppnisskap fullorðna fólksins ekki minna en barnanna. Að þessu sinni kepptu fullorðnir í kúluvarpi. Hátíðin endaði svo á að öllum var boðið upp á grillaða hamborgara.

Kærar þakkir öll þið sem gáfuð ykkur tíma til að koma og verja deginum með okkur.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
pdf
insert_drive_file
Viðburðadagatal 2026-2027.pdf
Download
425.5 KB

Frá landssamtökunum Heimili og skóli

Við hjá Heimili og skóli – landssamtökum foreldra viljum kynna starfsemi samtakanna og kynna foreldrum þau mikilvægu úrræði og stuðning sem samtökin veita.

Landssamtökin Heimili og skóli vinna að því að efla samstarf heimila og skóla með það að markmiði að stuðla að farsæld, vellíðan og árangri barna. Við leggjum áherslu á að styrkja hlutverk foreldra í skólasamfélaginu, styðja foreldrafélög, veita ráðgjöf og fræðslu og skapa vettvang fyrir virkt og jákvætt samstarf foreldra og skóla.

Samtökin bjóða meðal annars upp á:

  • Fræðslu og ráðgjöf fyrir foreldra, foreldrafélög og skóla.
  • Vinnustofur og fyrirlestra um farsælt samstarf heimila og skóla.
  • Stuðning við stofnun og eflingu foreldrafélaga.
  • Upplýsingar um réttindi, skyldur og þátttöku foreldra í skólastarfi.
  • Verkefni og efni sem stuðla að öflugra skólasamfélagi.

Við trúum því að öflugt samstarf heimila og skóla hefst strax á fyrsta degi í skólagöngu barns.

Heimasíða Heimilis og skóla er www.heimiliogskoli.is (ný og endurbætt heimasíða er væntanleg á næstu dögum) og hægt er að fá ráðgjöf með því að hringja í 516-0100 eða senda tölvupóst á heimiliogskoli@heimiliogskoli.is

Saman getum við byggt upp sterkt skólasamfélag þar sem heimili og skóli vinna hönd í hönd að velferð barna.

Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter