Útivistardagur vorannar
Hlíðarfjalli 21. mars 2018 kl. 12-16
Útivistardagur vorannar 21. mars
Áætlað er að vera með útivistardag vorannar miðvikudaginn 21. mars.
Þessi dagur er skipulagður sem langur dagur. Nemendur mæta í skólann á venjulegum tíma og verða í hefðbundinni kennslu fram að hádegi. Lagt verður af stað upp í Hlíðarfjall kl. 11.30 og verða nemendur í fjallinu fram að heimferð sem er kl. 15.30. Hægt er að velja milli þess að vera á skíðum, bretti eða tveimur jafnfljótum.
Nemendur fá hressingu (ostaslaufu og ávöxt) áður en haldið er í fjallið. Óli kokkur og Helga sjá svo til þess að allir fái grillaðar pylsur um kl. 13:00.
Enginn þarf að greiða lyftugjald. Skólinn sér öllum fyrir lyftukortum þennan dag. Þeir sem eiga árskort eru beðnir um að koma með þau með sér þennan dag.
Skíða- eða brettaleiga
Þeir nemendur sem þurfa að leigja sér skíði eða bretti þurfa sjálfir að greiða fyrir leiguna. Við sendum rukkun fyrir því í heimabanka foreldra fyrir skíða- eða brettaleigunni.
Það er hægt að leigja skíði og bretti í Hlíðarfjalli og leigan kostar 2200 krónur. Skólinn mun sjá um að panta skíði/bretti fyrir þá sem vilja. Ef nemendur ætla að nýta sér það eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að skrá það á eyðublað frá skíðaleigunni í Hlíðarfjalli. Það er hérna fyrir neðan. Smellið á það og skráið hvað þið viljið leigja. Athugið hver árgangur er skráður á sérstakan flipa í skjalinu. Það þarf að vera búið að ljúka við þessa skráningu á hádegi sunnudaginn 18. mars.
Þeir nemendur í 1.-4. bekk sem ætla ekki að framlengja leiguna frá skíðaskólanum eru beðnir um að láta Ingileif, umsjónarkennara eða Unnar vita af því.
Einnig er hægt að leigja skíði og bretti hjá Vidda í Skíðaþjónustunni. Þeir sem leigja skíðabúnað hjá Vidda þurfa að sjá um það sjálfir.