Smore logo
remove_red_eye 129
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

DJÚPAVOGSSKÓLI HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

MAÍ OG JÚNÍ


Vordagar og útikennsla.

03. júní - Skólaslit í Djúpavogsskirkju kl.17:00

Skipulagsdagar starfsfólks.

NÆSTA VIKA

Mánudagur 30.maí

  • Tökum vel á móti vordögum

Þriðjudagur 31.maí

  • 14:30 Teymisfundur

Miðvikudagur 1.júní

  • Gott að staldra við og njóta

Fimmtudagur 2.júní

  • 14:30 Teymisfundur

Föstudagur 3.júní

  • Kennsla samkvæmt stundarskrá
  • 17:00-18:00 Skólaslit

MATSEÐILL NÆSTU VIKU

SÍÐASTA VIKA FYRIR SUMARFRÍ

Næsta vika er síðasta vika áður en nemendur fá sumarfrí. Við ætlum að brjóta upp kennslu, vera meira úti, fara í ferðalög og bara aðeins að njóta okkar.

Við sjáum að skipulag vordaga er barn síns tíma, þetta var einfaldara þegar nemendur voru færri, við ætlum að endurskoða þetta eitthvað fyrir næsta vor.


Dagskrá vordaga er mismunandi eftir bekkjum.

Teymin hafa skipulagt dagskrá saman og umsjónarkennarar upplýsa foreldra og óskað eftir leyfi þar sem það á við.

NEMENDARÁÐ OG SKÓLASTJÓRI SKOÐA NIÐUSTÖÐUR SKÓLAÞINGS

Nemendaráð og Obba fóru saman yfir það sem kom fram á skólaþinginu. Við ræddum betur þessar hugmyndir og merktum við þær sem hægt er að leysa með mjög auðveldum hætti. Annað þarf að skoða aðeins betur og sumt er eitthvað sem við þurfum lengri tíma í að framkvæma.

Næstu skref verða að Obba og Þórdís taka þetta saman og upplýsa foreldra, í framhaldi tökum við næstu skref. Þetta verður svo unnið áfram næsta vetur með nemendum og foreldrum.

HÉRAÐSLEIKAR

Það var stuð á Héraðsleikum eins og myndirnar sýna.


  • Elsti hópurinn var í Egilsstaðarskóla þar sem allir fóru í fimleikahúsið, fótbolta, körfubolta, grilluðu brauð og fleira skemmtilegt og enduðu á diskó.
  • Í Fellaskóla voru yngstu nemendur og þar voru margir skemmtilegir leikir á fótboltavellinum, farið í gönguferð um skóginn og svo voru leiktækin á skólalóðinni vel nýtt.
  • Á Brúarási fengu nemendur að tefla, fara í tölvuleiki, skotbolta, baka lummur, hoppa á hoppudýnu, spila fótbolta, kríta listaverk og henda bolta yfir hús og grípa (sem í gamla daga hét Yfir :)


Í lokin fengu allir pylsur og ís, virkilega vel heppnaður dagur.


Meðan 1.-7.bekkur fór á Héraðsleikana var unglingadeildin heima. Þau gerðu margt skemmtilegt m.a. fóru þau í örnefna og sauðburðargöngu með Unni.

Þau fóru um Hótelshæð og upp Klifið, hvíldu sig á Hvíldarkletti. Fóru fram hjá Sólgerði og Sólheimum og upp Haraldarskarð og niður Löngulá þar sem þau kíktu í fjárhúsin við Olnboga. Þau fengu sér gott nesti áður en þau gengu til baka.

Frábært hjá þeim og einstaklega Cittaslow.

MYNDIR FRÁ HÉRAÐSLEIKUM

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

ÖRNEFNA OG SAUÐBURÐARGANGA

zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

CITTASLOW WORKSHOP Í TRYGGVABÚÐ

Í síðustu viku sagði ég ykkur frá doktorsverkefninu sem hann Adrien er að vinna og snýr að því að rannsaka Frugal abundance eða það sem við köllum hamingjurík nægjusemi.

Um síðustu helgi var hann með vinnustofu sem var öllum opin, ég var beðin um að segja frá Cittaslow í Djúpavogsskóla og ég sagði frá Cittaslow námskrá sem við höfum unnið hér í Djúpavogsskóla.

Það kom stjórnendum vinnustofunar skemmtilega á óvart að Djúpavogsskóli væri komin þetta langt og vildu jafnvel meina að við værum skrefi á undan í þessum efnum.


Síðan 2017 höfum við í rólegum skrefum verið að undirbúa okkar eigin Cittaslow námskrá sem nú er nánast tilbúin og sumir byrjaðir að vinna aðeins eftir. Þessi vinnustofa var okkur mikil hvatning til að halda áfram að þróa þá vinnu.

Obba

Bestu kveðjur og góða helgi, starfsfólk Djúpavogsskóla.

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter