Smore logo
remove_red_eye 1.1K
page background
page background

Hvalrekinn

5. desember 2024

Hvalrekinn5. desember 2024

Jólakveðja frá starfsfólki Jólakveðja frá starfsfólki

zoom_out_map

Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleði- og hamingjuríkra jóla.


Megi gæfa og góð heilsa umvefja ykkur um hátíðina og á nýju ári.


Með kærleikskveðju,

stjórnendur og starfsfólk Hvaleyrarskóla.

zoom_out_map

Föstudagurinn 6. desember - rauður dagur

  • Jólapeysudagur - bæði starfsfólk og nemendur eru hvattir til að koma í jólapeysum og/eða einhverju rauðu.

Miðvikudagurinn 18. desember

  • Jólamatur frá Skólamat verður þennan dag.
  • Við hvetjum nemendur og starfsfólk til að mæta í jólapeysunum sínum og/eða einhverju rauðu.
zoom_out_map

Litlu-jólin föstudaginn 20. desember

Nemendur mæta sem hér segir:

  • Kl. 8:20 - 10:30, nemendur í 1. og 2. bekk
  • Kl. 9:00 - 11:00, nemendur í 3. og 4. bekk
  • Kl. 9:50 - 11:50 nemendur í 5., 6. og 7. bekk
  • Kl. 9:15 - 11:15 nemendur í 8., 9. og 10. bekk
  • Gæsla verður fyrir þá nemendur í 3. og 4. bekk sem þurfa frá kl. 8:20 - 9:00.
  • Umsjónarkennarar munu fylgja þeim nemendum sem skráðir eru í Holtasel þangað að litlu jólum loknum.
  • Athugið að það er ekki hádegismatur þennan dag og mikilvægt að nemendur sem fara í Holtasel komi með hádegisnesti. Það verður síðan síðdegishressing.
zoom_out_map

Öðruvísi jóladagatal hjá nemendum í yngstu deild

Nemendur í yngstu deild taka þátt í „Öðruvísi jóladagatali“ sem er á vegum SOS barnaþorpa. Þetta er sjötta árið í röð sem við tökum þátt í verkefninu. Í fyrra söfnuðust 100 þúsund krónur sem fóru í að styrkja nýtt fjölskyldueflingarverkefni SOS barnaþorpana í Malaví og í ár verður áfram safnað í fjölskylduverkefnið. Tilgangurinn með fjölskyldueflingunni er að hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum að standa á eigin fötum.

Jóladagatalið gengur út á það að á hverjum degi sjá nemendur myndbönd frá ólíkum löndum í heiminum.

Í ár fékk SOS styrk frá Utanríkisráðuneytinu til að fjalla sérstaklega um barnaþorpið Jorpati í Nepal en það barnaþorp sérhæfir sig í að taka á móti börnum með fötlun sem eiga engan að. Í jóladagatalinu í ár eru því fjórir gluggar sem leiða okkur þangað.

Hverj­um degi fylgja um­ræðupunkt­ar til að nem­end­ur geti rætt sam­an um efni dags­ins og einnig verð­ur hægt að vinna ýmis verk­efni í tengsl­um við hvern dag.

Holtasel - jólasmiðjur. Smellið á myndirnar. Holtasel - jólasmiðjur. Smellið á myndirnar.

open_in_new zoom_out_map

Dagskrá á íslensku

zoom_out_map
open_in_new zoom_out_map

Dagskrá á ensku

Kennsla hefst að loknu jólafríi samkvæmt stundaskrá mánudaginn 6. janúar 2025 Kennsla hefst að loknu jólafríi samkvæmt stundaskrá mánudaginn 6. janúar 2025

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Á döfinni í janúar 2025

  • Kennsla hefst mánudaginn 6. janúar

  • Lesferill – allir nemendur prófaðir í 1. – 10. bekk

  • Orðarún – nemendur í 3. – 8. bekk prófaðir

  • Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk

  • Valgreinar vorannar hefjast 13. janúar

  • Námsviðtöl miðvikudaginn 5. febrúar

zoom_out_map

Skákmót miðdeildar

Skákmót miðdeildar (5. – 7. bekkur) Hvaleyrarskóla fór fram dagana 13. og 20. nóvember síðastliðinn. Að loknum undanrásum, þar sem þátt tóku 23 nemendur, tefldu átta nemendur til úrslita. Katrín Ósk Tómasdóttir 5. bekk stóð uppi sem sigurvegari með 6,5 vinninga og bekkjarbróðir hennar, Finnur Dreki Óskarsson, fylgdi fast á eftir með 6,0 vinninga. Þriðji var Þröstur Elímar Eldar Svansson. Þess má geta að Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands voru sérstakir gestir mótsins og Gunnar stýrði jafnframt mótinu.

Hér má sjá fleiri myndir frá mótinu.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Slökkviliðið í heimsókn

Þriðjudaginn 19. nóvember kom slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í heimsókn til okkar í Hvaleyrarskóla. Þetta er árviss heimsókn slökkviliðsins í grunnskóla höfuðborgarsvæðisins í þeirra eldvarnarátaki. Nemendur fengu fræðslu á sal og síðan var haldið út þar sem sjúkrabíll og slökkviliðsbíll voru skoðaðir.

Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni.

zoom_out_map

Lestrarsprettur í nóvember

Lestrarspretti 2024 „Lestrartré“ lauk þann 29. nóvember og stóðu krakkarnir sig mjög vel. Í tilefni þess var haldin uppskeruhátíð hér í skólanum.


Við þökkum ykkur góðan lestrarsprett og hvetjum ykkur til að halda áfram að lesa með barninu/börnunum ykkar.

Hér má sjá myndir af öllum Lestrartrjánum.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Spilatímar í hádegishléi

Eftir að notkun farsíma var bönnuð í skólum Hafnarfjarðar núna í haust komu kennarar með þá hugmynd að vera með opið inn í tvær bekkjarstofur fyrir nemendur í hádegishléum. Í annarri stofunni geta nemendur komið inn og lært, undirbúið sig fyrir næstu tíma eða slakað á. Í hinni stofunni eru spilatímar tvisvar í viku, þá er kennari með 2-4 spil uppivið og nemendur geta komið og spilað við samnemendur.

Myndir frá skólastarfinu Myndir frá skólastarfinu

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Pókó

zoom_out_map

Spilatími í frímínútum

zoom_out_map

Frímínútur hjá yngstu deild

zoom_out_map

Náttúrugreinar

zoom_out_map

Náttúrugreinar

zoom_out_map

Náttúrugreinar

zoom_out_map

Piparkökumálun foreldrafélagsins

Laugardaginn 30. nóvember hélt foreldrafélagið piparkökudag með piparkökumálun á sal skólans. Málunin stóð frá kl. 11:00 til 13:00. Viðburðurinn var fyrir nemendur úr öllum bekkjum skólans og fjölskyldur þeirra.

Foreldrafélagið bauð upp á piparkökur og glassúr. Einhverjir mættu líka með sitt eigið kökuskraut.


Þá var 10. bekkur með fjáröflun fyrir vorferð. Þau seldu kaffi, kakó, muffins og vöfflur.


Mjög góð mæting var á þennan viðburð.

Dagskrá Versins í desember 2024 Dagskrá Versins í desember 2024

open_in_new zoom_out_map
zoom_out_map
open_in_new zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum

Eins og undanfarin ár hefur Foreldrafélag Hvaleyraskóla ákveðið að styrkja bekkjartengla í 1. - 5. bekk um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig að kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði eru sendar á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Það sem fram þarf að koma er; nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekknum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjartengils. Foreldrafélagið endurgreiðir útlagðan kostnað eftir um viku.

Það er mikilvægt að efla starfið í foreldrafélaginu og í kringum börn okkar.

Skólasöngur Hvaleyrarskóla - Hvaleyrarskóli 30 ára

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter