Smore logo
remove_red_eye 482
page background

Fréttamolar úr MS

11. september 2023

Fréttamolar úr MS 11. september 2023

Frábærir nýnemadagar að baki Frábærir nýnemadagar að baki

zoom_out_map

Kæru nemendur.


Fyrstu dagar skólaársins hafa verið ansi fjörugir með nýnemadagskrá, nýnemaballi, nýnemaviðtölum o.s.frv. Stjórn skólafélagsins hefur staðið í ströngu við að undirbúa þetta allt saman og á mikið hrós skilið fyrir vel unnið starf.

zoom_out_map

Nýnemaballið var frábært og MS ingar sýna það og sanna að þeir kunna svo sannarlega að skemmta sér.


Það var metþátttaka í edrúpottinum og verður dregið úr honum í hádeginu á mánudaginn. Það er til mikils að vinna svo mætið í matsalinn kl. 12:05!

Frábærir foreldrar á foreldraröltinu við ballið 🥰🤩

Stoðtímar í stærðfræði Stoðtímar í stærðfræði

zoom_out_map

Boðið verður uppá stoðtíma í stærðfræði á haustönn 2023.


Tímarnir verða á þriðjudögum kl 14:40-15:40 og á fimmtudögum kl 15-16 í stofu AÐA21 og er fyrsti tíminn þriðjudaginn 12. september.


Athugið að skráning er nauðsynleg - sendið póst á ileanam@msund.is til að skrá ykkur eða skráið ykkur á skráningarform á skrifstofu.


Tímarnir eru fyrir alla nemendur í stærðfræði og eru sérstaklega hugsaðir fyrir þau sem þurfa aukinn stuðning. Ef spurningar vakna getið þið haft samband við ykkar stærðfræðikennara eða námsráðgjafa.


Hvetjum ykkur til að nýta ykkur stærðfræðiaðstoð!

Ert þú í tæknivandræðum? 💻🖥️🖨️ Ert þú í tæknivandræðum? 💻🖥️🖨️

zoom_out_map

Ert þú í tæknivandræðum? Á heimasíðu skólans má finna lausn á ýmsum tæknivandamálum með ítarlegum leiðbeiningum um kerfin sem við notum í MS. Endilega skoðið leiðbeiningarnar vel og vandlega og svo er hægt að leita til Jóhanns tölvuumsjónarmanns á bókasafninu ef frekari aðstoðar er þörf.

💻🖥️🖨️ ➡️ Smelltu hér fyrir heimasíðu tölvuumsjónar ⬅️ 💻🖥️🖨️

Stöðupróf í tungumálum Stöðupróf í tungumálum

MS heldur reglulega stöðupróf í tungumálum fyrir nemendur sem þess óska. Nemendur sem tala annað tungumál, t.d. móðurmál eða vegna búsetu erlendis, geta óskað eftir að fá tungumálakunnáttu sína metna til allt að 20 eininga. Einnig eru iðulega haldin stöðupróf í öðrum skólum og MS leitast við að auglýsa þau vel og vandlega meðal nemenda.


Á matsdögum í september verða haldin stöðupróf í dönsku og spænsku í MS.

Smellið hér til að lesa meira um stöðupróf í spænsku og dönsku

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter