Fréttabréf Grenivíkurskóla
6. tbl. 7. árg. - júní 2026
Kæra skólasamfélag
Þá er skólaárinu lokið og langþráð sumarfrí tekið við, sem verður vonandi sólríkt og skemmtilegt!
Síðasti mánuður skólaársins var að vanda fjörugur og skemmtilegur. Runólfur, kveðjuhátíð 10. bekkjar, var á sínum stað, nemendur fóru í fjöruferðir, hjólatúra og alls konar útiveru, við fórum í frábæra heimsókn í Laufás á útivistardögum og ótal margt fleira. Grenivíkurskóla var svo slitið föstudaginn 5. júní sl. Um eitthvað af þessu má lesa nánar hér að neðan, en einnig má finna myndir úr skólastarfinu neðst í fréttabréfinu.
Skóli hefst á nýjan leik að loknu sumarfríi þann 24. ágúst næstkomandi. Hér má skoða skóladagatal komandi skólaárs.
Fyrir hönd starfsfólks skólans þakka ég ykkur fyrir liðið skólaár og óska ykkur gleðilegs sumars!
Með kveðju úr skólanum,
Þorgeir Rúnar Finnsson
skólastjóri Grenivíkurskóla
Skólaslit og útskrift nemenda í 10. bekk
Skólaslit Grenivíkurskóla fóru fram þann 5. júní síðastliðinn. Athöfnin var skemmtileg, nemendur fluttu tónlistaratriði og fulltrúar útskriftarnemenda, Katla Eyfjörð og Selma Lind, fluttu fallega ræðu. Við lok skólaslitanna fluttu nemendur og starfsfólk skólans svo lagið "Ég lifi í draumi", en þau Katla Eyfjörð, Björg Guðrún, Ari Logi, Páll Þórir og Kári Eyfjörð skipuðu hljómsveit sem spilaði undir.
Sjö nemendur útskrifuðust úr 10. bekk að þessu sinni og verður mikil eftirsjá að þeim flotta hópi. Við óskum útskriftarnemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju með tímamótin og hlökkum til að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Gjöf frá Kvenfélaginu Hlín
Skólinn fékk á dögunum veglegan styrk frá Kvenfélaginu Hlín til kaupa á nýrri saumavél fyrir handmenntakennslu. Fyrir valinu varð Brother Airflow 3000 Overlock vél, sem er glæsilegt tæki og á örugglega eftir að nýtast vel næstu árin. Við þökkum Kvenfélaginu Hlín kærlega fyrir veittan styrk, en félagið hefur reglulega reynst skólanum öflugur bakhjarl í gegnum tíðina.
Runólfur
Runólfur, kveðjuhátið 10. bekkjar, var haldin þann 27. maí síðastliðinn. Runólfur á sér langa sögu, en á þessari hátíð eru nemendur 10. bekkjar í sviðsljósinu og eru það samnemendur þeirra á unglingastigi, ásamt kennurum, sem sjá um að undirbúa daginn. Hátíðin var hin besta skemmtun, farið var í leiki, sagðar sögur og ljúffengar veitingar voru á boðstólum.
Grænfáninn
Í grænfánadálki fréttabréfsins ætlum við nú að deila með ykkur skemmtilegum verkefnahugmyndum. Þetta eru verkefni sem eru ætluð til notkunar í skólastarfi, en geta sannarlega líka nýst fjölskyldum sem vilja njóta saman gæðastunda þar sem náttúran og náttúruverndarmál eru í forgrunni.
Verkefni mánaðarins kallast votlendisbingó. Markmið verkefnisins er að kveikja áhuga, festa og miðla þekkingu um votlendi.
Heilsueflandi skóli
Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "gleðiríki júní". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.
Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.
Myndir úr skólastarfinu
Á döfinni í júní / ágúst
- 3. júní: Útivistardagur.
- 4. júní: Útivistardagur.
- 5. júní: Starfsdagur - frí hjá nemendum. Skólaslit kl. 17:00. Nemendur komnir í sumarfrí að loknum skólaslitum.
- 8. júní: Starfsdagur.
- 9. júní: Starfsdagur.
- 17. júní: Þjóðhátíðardagur Íslands.
- 24. ágúst: Skólasetning / útivistardagur.
- 25. ágúst: Útivistardagur.
- 26. ágúst: Valgreinar - 1. lota hefst.
Matseðill
Útgefandi: Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is
Sími: 414-5413
Facebook: Grenivíkurskóli