Smore logo
remove_red_eye 112
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

6. tbl. 7. árg. - júní 2026

FréttabréfGrenivíkurskóla6. tbl. 7. árg. - júní 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Þá er skólaárinu lokið og langþráð sumarfrí tekið við, sem verður vonandi sólríkt og skemmtilegt!


Síðasti mánuður skólaársins var að vanda fjörugur og skemmtilegur. Runólfur, kveðjuhátíð 10. bekkjar, var á sínum stað, nemendur fóru í fjöruferðir, hjólatúra og alls konar útiveru, við fórum í frábæra heimsókn í Laufás á útivistardögum og ótal margt fleira. Grenivíkurskóla var svo slitið föstudaginn 5. júní sl. Um eitthvað af þessu má lesa nánar hér að neðan, en einnig má finna myndir úr skólastarfinu neðst í fréttabréfinu.


Skóli hefst á nýjan leik að loknu sumarfríi þann 24. ágúst næstkomandi. Hér má skoða skóladagatal komandi skólaárs.


Fyrir hönd starfsfólks skólans þakka ég ykkur fyrir liðið skólaár og óska ykkur gleðilegs sumars!


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Skólaslit og útskrift nemenda í 10. bekk Skólaslit og útskrift nemenda í 10. bekk

User uploaded image
zoom_out_map

Skólaslit Grenivíkurskóla fóru fram þann 5. júní síðastliðinn. Athöfnin var skemmtileg, nemendur fluttu tónlistaratriði og fulltrúar útskriftarnemenda, Katla Eyfjörð og Selma Lind, fluttu fallega ræðu. Við lok skólaslitanna fluttu nemendur og starfsfólk skólans svo lagið "Ég lifi í draumi", en þau Katla Eyfjörð, Björg Guðrún, Ari Logi, Páll Þórir og Kári Eyfjörð skipuðu hljómsveit sem spilaði undir.


Sjö nemendur útskrifuðust úr 10. bekk að þessu sinni og verður mikil eftirsjá að þeim flotta hópi. Við óskum útskriftarnemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju með tímamótin og hlökkum til að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Gjöf frá Kvenfélaginu Hlín Gjöf frá Kvenfélaginu Hlín

User uploaded image
zoom_out_map

Skólinn fékk á dögunum veglegan styrk frá Kvenfélaginu Hlín til kaupa á nýrri saumavél fyrir handmenntakennslu. Fyrir valinu varð Brother Airflow 3000 Overlock vél, sem er glæsilegt tæki og á örugglega eftir að nýtast vel næstu árin. Við þökkum Kvenfélaginu Hlín kærlega fyrir veittan styrk, en félagið hefur reglulega reynst skólanum öflugur bakhjarl í gegnum tíðina.

Runólfur Runólfur

User uploaded image
zoom_out_map

Runólfur, kveðjuhátið 10. bekkjar, var haldin þann 27. maí síðastliðinn. Runólfur á sér langa sögu, en á þessari hátíð eru nemendur 10. bekkjar í sviðsljósinu og eru það samnemendur þeirra á unglingastigi, ásamt kennurum, sem sjá um að undirbúa daginn. Hátíðin var hin besta skemmtun, farið var í leiki, sagðar sögur og ljúffengar veitingar voru á boðstólum.

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins ætlum við nú að deila með ykkur skemmtilegum verkefnahugmyndum. Þetta eru verkefni sem eru ætluð til notkunar í skólastarfi, en geta sannarlega líka nýst fjölskyldum sem vilja njóta saman gæðastunda þar sem náttúran og náttúruverndarmál eru í forgrunni.


Verkefni mánaðarins kallast votlendisbingó. Markmið verkefnisins er að kveikja áhuga, festa og miðla þekkingu um votlendi.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "gleðiríki júní". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Útskriftarmyndataka - 13. maí.
  • Ágúst Brynjarsson með tónleika - 13. maí.
  • Reiðhjóla- og hjálmaskoðun - 19. maí.
  • Fatasund - 21. maí.
  • Fjöruferð hjá 1.-4. bekk - 22. maí.
  • Útivistardagar - 3. og 4. júní.
  • Skólaslit - 5. júní.
  • Eitt og annað úr skólalífinu.

Á döfinni í júní / ágúst Á döfinni í júní / ágúst

  • 3. júní: Útivistardagur.
  • 4. júní: Útivistardagur.
  • 5. júní: Starfsdagur - frí hjá nemendum. Skólaslit kl. 17:00. Nemendur komnir í sumarfrí að loknum skólaslitum.
  • 8. júní: Starfsdagur.
  • 9. júní: Starfsdagur.
  • 17. júní: Þjóðhátíðardagur Íslands.


  • 24. ágúst: Skólasetning / útivistardagur.
  • 25. ágúst: Útivistardagur.
  • 26. ágúst: Valgreinar - 1. lota hefst.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter