Smore logo
remove_red_eye 1.3K
page background
Logo

Tæknótíðindi

22. ágúst 2025

Tæknótíðindi22. ágúst 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 26. ágúst - Fyrri nýnemaferð
  • 28. ágúst - Seinni nýnemaferð
  • 28. ágúst - Skráning til útskriftar
Skóladagatal Tækniskólans

Metfjöldi nýnema Metfjöldi nýnema

User uploaded image
zoom_out_map

Það var góður andi á þremur móttökum nýnema í Tækniskólanum í síðustu viku en þá tók starfsfólk skólans á móti fjölmennasta hópi nýnema við skólann frá upphafi. Alls 460 nemendur sem voru að ljúka grunnskóla í vor hefja nám í Tækniskólanum þetta haustið. Við viljum nota tækifærið og þakka nemendum kærlega fyrir virkilega góða framkomu og kurteisi.


Það er von okkar að námið í Tækniskólanum standi undir væntingum og að dvöl ykkar í skólanum verði uppbyggileg og skemmtileg.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Æfingar fyrir Euroskills Æfingar fyrir Euroskills

Um miðjan september fer Evrópumeistaramót ungs fólks í iðn- og starfsgreinum, Euroskills, fram í Herning í Danmörku. Að þessu sinni munu 13 íslensk ungmenni í jafnmörgum greinum etja kappi við þau bestu í Evrópu. 6 þessara ungmenna eru ýmist núverandi nemendur Tækniskólans eða útskrifuð frá Tækniskólanum.


Á myndinni hér fyrir neðan sjáið þið einn keppendanna, Hildi Magnúsd. Eirúnardóttur, sem mun vera fyrst Íslendinga til að keppa í málaraiðn á Euroskills. Hún hefur æft sig af kappi í allt sumar undir handleiðslu Halldórs Benjamíns kennara og notar hún nú síðustu vikurnar til þess að vinna æfingaverkefni úr fyrri keppnum. Myndin er tekin að aflokinni 3 daga törn þar sem Hildur vann verkefnið sem lagt var fyrir keppendur á síðasta Euroskills móti sem haldið var í Gdansk í Póllandi árið 2023.


Við hlökkum sannarlega til að fylgjast með keppendum og óskum þeim góðs gengis á lokametrum undirbúnings Euroskills.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Námsver og aukatímar Námsver og aukatímar

User uploaded image
zoom_out_map
Hlut­verk nám­svera er að styðja við og veita nemendum aðstoð í námi. Í nám­sverum geta nemendur m.a. fengið aðstoð við próf­töku og stuðning við heimanám sem og almenna aðstoð í grunn­greinum. Einnig er hægt að leita til nám­svera við verk­efna- og ritgerðasmíð. Námsver eru staðsett í aðalbyggingum skólans á Skólavörðuholti, á Háteigsvegi og við Flatahraun.

Allar helstu upplýsingar um kennara í námsveri og opnunartíma má finna HÉR

Stoðþjónusta við nemendur Stoðþjónusta við nemendur

User uploaded image
zoom_out_map

Sýnum alúð í verki

Tækni­skólinn leggur mikið upp úr öfl­ugri stoðþjón­ustu sem ætlað er að styðja við nem­endur og starfs­fólk skólans. Þjón­ustan er fjöl­breytt og nær meðal annars yfir aðstoð í námi, sér­kennslu, náms- og starfsráðgjöf, sálfræðiaðstoð, for­varnarstarf og aðstoð með félagsmál.

HÉR má finna hlekk á upplýsingasíðu náms- og starfsráðgjafa og HÉR er hlekkur á upplýsingasíðu sálfræðings skólans.

Nemendaskírteini Nemendaskírteini

User uploaded image
zoom_out_map

Prent- og aðgangskort

Allir nemendur Tækniskólans fá nemendaskírteini sem þeir eru beðnir um að hafa á sér í skólanum. Á skírteininu er mynd af nemandanum auk nafns og undirskóla sem viðkomandi er í (t.d. Tæknimenntaskólinn, Byggingatækniskólinn o.s.frv.). Skírteinið virkar einnig í sumum tilvikum sem aðgangskort að tilteknum rýmum.


Nemendaskírteinin eru jafnframt prentkort og fylgir þeim inneign sem dugar langflestum en hægt er að kaupa aukakvóta ef þarf á bókasöfnum. Nemendaskírteinin eru innifalin í skóla­gjöldum en það kostar 2.000 kr. að end­ur­nýja glatað kort.

Geymsluskápar Geymsluskápar

User uploaded image
zoom_out_map

Í Tækniskólanum eru geymslu­skápar til afnota fyrir nem­endur án end­ur­gjalds.

Regl­urnar eru ein­faldar:


  • Fyrstur kemur, fyrstur fær. Ef skápur er opinn er hann laus til notkunar.
  • Nota skal eigin lás.
  • Skápar skulu tæmdir og skildir eftir opnir í lok skólaárs.
  • Þann 1. júní ár hvert ár verður klippt á lása á lokuðum skápum og þeir tæmdir.
Bókasafn Tækniskólans

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter