Tæknótíðindi
5. desember 2025
Dagsetningar framundan
- 21. desember - Útskrift Tækniskólans
- 02. janúar - Stundatöflur birtar í INNU
- 05. janúar - Fyrsti kennsludagur á vorönn 2026
Jólasveinar Tækniskólans
Nú þegar jólaundirbúningurinn er í hámarki og íslensku jólasveinarnir koma til byggða einn af öðrum kynnum við ykkur fyrir öðrum sveinum sem verða á vegi okkar í skólanum.
Þessir sveinar eiga það sameiginlegt að hafa ástríðu fyrir fallegu handverki og hagnýtum fróðleik. Þessi heillandi flokkur sveina leggur alúð í öll sín verk og eru miklir fagmenn. Hér sjáið þið smíðasvein og myndasvein en restina af sveinunum má finna á facebook og Instagram síðum Tækniskólans.
Útskrift Tækniskólans
Útskrift Tækniskólans á haustönn 2025 fer fram í Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 21. desember. Athöfnin hefst stundvíslega kl. 13:00 og eru útskriftarnemendur beðnir um að mæta klukkustund áður en athöfn hefst, nánar tiltekið klukkan 12:00 í Eldborgarsal.
Útskriftarnemendum er úthlutað sæti við athöfnina og hver skóli útskrifar eina námsbraut í einu. Frjálst sætaval er fyrir gesti, en hver og einn nemandi, hefur leyfi til að bjóða þremur gestum með á athöfnina.
Fjölbreyttar sýningar nemenda í desember
Í desember stóðu yfir margar skemmtilegar sýningar í Tækniskólanum þar sem mátti sjá afrakstur fjölbreyttrar og skapandi vinnu nemenda yfir veturinn.
Nemendur í grafískri miðlun og bókbandi sýndu m.a. áhugaverðar útfræslur á umbúðalausnum og grafískri framsetningu. Nemendur í húsasmíði og húsgagnasmíði sýndu sérlega vönduð sethúsgögn og plötu- og grindarhúsgögn. Einar Páll Þórðarson, nemandi í húsasmíði og húsgagnasmíði kom í stutt viðtal í tengslum við þá sýningu. Sjá HÉR.
Þá tóku fjölmargir nemendur þátt í Samsýningu framhaldsskólanna, sem fram fór í Háskóla Íslands, dagana 28. nóvember til 4. desember. Markmið sýningarinnar er að sýna fram á mikilvægi þess að styðja við og efla STEAM samþættingu í íslensku samfélagi og menntun á sviði sjálfbærni og nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs.
Opnunartími skrifstofu yfir jólahátíðina
Lokað verður á skrifstofu og bókasafni Tækniskólans á Skólavörðuholti frá og með 23. desember. Opnað verður á ný mánudaginn 5. janúar kl. 10:00.
Bókasöfn á Háteigsvegi og í Hafnarfirði verða lokuð frá og með 17. desember og opna aftur 5. janúar.
Húsnæði Tækniskólans er lokað í samræmi við lokanir á bóksöfnum.
Þeir sem ekki komast á ústkrift geta sótt útskriftarskírteinið sitt í móttöku skólans á Skólavörðuholti 22. desember til kl.15:00 og svo frá og með 5. janúar 2026. Ósótt skírteini verða svo póstlögð 19. janúar.