Smore logo
remove_red_eye 204
page background

Fréttabréf Engidalsskóla nóv 2023

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

Fréttabréf Engidalsskóla nóv 2023 Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

Jólasamverustund foreldrafélagsins verður í Engidalsskóla kl. 12-14 þann 25.11 Jólasamverustund foreldrafélagsins verður í Engidalsskóla kl. 12-14 þann 25.11

Fréttabréf Engidalsskóla

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Hér gefur að líta nýjasta fréttabréf Engidalskóla. Í því er mikið af myndum af verkum nemendum sem við hvetjum ykkur til að skoða. Við erum ákvaflega stolt af því hversu skapandi nemendur eru.


Á hverju ári svara nemendur í 6. og 7. bekk spurningum úr Skólapúslinum og er hann einn af þeim tækjum sem notuð eru til að meta skólastarfið. Tvær kannanir eru á ári og erum við komin með niðurstöður úr fyrri könnuninni. Niðurstöður hafa verið kynntar fyrir skólaráði og starfsmönnum og farið verður yfir þær með nemendum 6. og 7. bekkjar. Helstu niðurstöður eru þær að líðan enemenda heldur áfarm að batna og er vellíðan er komin yfir landsmeðaltal, það á líka við um sjálfsálit, trú á eigin vinnubrögðum og flesta þætti er varðar skólar og bekkjaranda. Niðurstöðurnar segja jafnframt að hluti nemenda upplifi einelti og þó að munurinn sé ekki mælanlegur frá landsmeðaltali tökum við það alvarlega, stefnan er auðvitað að öllum líði hér vel. Ánægja af lestri meðal stúlkna er líka á niðurleið í báðum árgöngunum sem okkur þykir miður en þar geta foreldrar komið sterkir inn og hvatt þær til dáða.


Með bestu kveðju,

Skólastjórnendur Engidalsskóla.

Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar um læsi.
zoom_out_map

Aðalfundur foreldrafélagsins

Á Aðalfundi foreldrafélagsins í október var skólastjóri með stutta kynningu á uppeldi til ábyrgðar. Í framahaldi af erindi hans tóku fundarmenn þátt í að skilgreina hlutverk skóla og foreldra og velja þau gildi sem þeir vilja hafa í samskiptum bæði innan foreldrahópsins og í samskiptum við börn og skóla.

Þau gildi sem foreldrar telja mikilvæg eru meðal annars, Virðing, ábyrgð, heiðarleiki og traust. Þá sé líka mikilvægt að hlusta og sýna skilning þegar kemur að samskiptum við börnin.


Við lítum svo á að vinnunni sé alls ekki lokið og hér til hliðar er Qr kóði sem leiðir ykkur á vinnuspjaldið og hvetjum við ykkur til að setja ykkar mark á þessa vinnu. Við stefnum svo á að vinna sáttmála með stjórn foreldrafélagins úr niðurstöðunum.

Þemadagar í Engidalsskóla

Skemmtilegum þemadögum í Engidalsskóla voru að ljúka. Yngsta stig vann með álfa og tröll, nemendur unnu ýmis verkefni, fóru í ratleik og fengu rjúkandi kakó sem hitað var úti. Á miðstigi var þemað íslenskir tónlistarmenn. Ýmis verkefni voru unnin sem reyndu bæði á hug og hönd, eins og sjá má á meðfylgjandi myndefni.
zoom_out_map

Íslenskir tónlistarmenn

Verkefni á miðstigi
zoom_out_map

Sumargestur

Verkefni á miðstigi
zoom_out_map

Kakóstund

Á yngsta stigi

zoom_out_map

Kakóstund

Yngsta stig
zoom_out_map

Hver hittir í ginið á tröllinu

Yngsta stig

zoom_out_map

Hér er verið að mála tröll

Yngsta stig

Heimsókn frá slökkviliðinu

Nemendur í 3. bekk fengu fræðslu frá slökkviliðinu og eftir fræðsluna var nemendum boðið að skoða slökkvibíl og sjúkrabíl.

zoom_out_map
3. bekkur
zoom_out_map
3. bekkur
zoom_out_map
3. bekkur

Hvað er leiðsagnarnám

Í Engidalsskóla er nú verið að innleiða leiðsagnarnám. Við hófum þessa vegferð á síðasta ári, með lestri, námskeiðum og skólaheimsóknum innanlands og utan. Nanna K Christansen er sú sem best þekki leiðsagnarnám hér á landi hélt í hönd á okkur í þessum fyrstu skrefum. Kennarar byrjuðu að þreifa sig áfram á síðasta skólaári og munu halda því áfram í vetur. Á starfsdegi nú í nóvember voru settir upp nokkrir svokallaðir námsveggir sem sjá má hér fyrir neðan.


Í stuttu máli snýst leiðsagnarnám um að veita nemandanum leiðsögn sem hjálpar honum að ná þeim markmiðum sem hann stefnir að. Markmiðin þurfa að vera skýr og vel skilgreind svo nemandinn, kennarinn og aðrir sem að náminu koma hafi sama skilning á því hvað sé til marks um að markmiðunum sé náð.


Rannsóknir hafa leitt í ljós að það hvernig niðurstöður námsmats eru notaðar til að styðja við framfarir nemenda í náminu skiptir mun meira máli en námsmatið sjálft.


Niðurstöður námsmatsins verða þannig framvísandi, eins konar vegvísar sem beina námi nemendanna fram á við. Þetta hefur leitt til þess að athyglin hefur í ríkum mæli færst frá námsmatinu sjálfu yfir á áhrif þess á næstu skref í náminu.

Námsveggir Námsveggir

zoom_out_map
Tilfinningar
zoom_out_map
Lærdóms gryfjan
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar,

Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis.

Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is


Skýr mörk

Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.


Í Engidalsskóla viljum við:

  • Ekkert ofbeldi hvorki líkamlegt né andlegt

  • Engin barefli né önnur vopn

  • Engin ávana- eða fíkniefni þar með talið áfengi, tóbak og rafrettur

  • Engar alvarlegar ögranir eða hótanir

  • Engin skemmdarverk

  • Enga áhættuhegðun

  • Engan þjófnað

Verkefni nemenda úr smiðjum Verkefni nemenda úr smiðjum

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
1. bekkur
zoom_out_map
5. bekkur
zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map
1. bekkur
zoom_out_map
3. bekkur
zoom_out_map
1. bekkur
zoom_out_map
6. bekkur
zoom_out_map
6. bekkur
zoom_out_map
7. bekkur
zoom_out_map
4. bekkur
zoom_out_map
4. bekkur
zoom_out_map
2. bekkur
zoom_out_map
4. bekkur

Áhugasvið verkefni hjá 5. - 7. bekk Áhugasvið verkefni hjá 5. - 7. bekk

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
Skatgripir
zoom_out_map
Skatgripir
zoom_out_map
Skatgripir
zoom_out_map
Skatgripir
zoom_out_map
Skatgripir
zoom_out_map
Ítölsk matargerð
zoom_out_map
Ítölsk matargerð
zoom_out_map
Snúðagerð
Mentor leiðbeiningar fyrir foreldra
Á blaðsíðu tvö er að finna leiðbeiningar er varða póst stillingar - Persónuvernd - stillingar

Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter