Smore logo
remove_red_eye 815
page background
Logo

Í upphafi skólaárs

Upplýsingar til forsjáraðila barna í Hörðuvallaskóla

Í upphafi skólaárs Upplýsingar til forsjáraðila barna í Hörðuvallaskóla
Í upphafi skólaársUpplýsingar til forsjáraðila barna í Hörðuvallaskóla

Kæru forsjáraðilar Kæru forsjáraðilar

Vonandi hefur sumarið verið ánægjulegt og allir notið þess að vera í sumarfríi. Við vonum að börnin séu farin að hlakka til að koma aftur í skólann, hitta vini sína og kennara.

Við höldum áfram í vetur að efla jákvæðan skólabrag og leggja áherslu á að byggja upp traust og góð tengsl milli heimilis og skóla. Þátttaka ykkar skiptir máli og við hlökkum til ánægjulegs og árangursríks samstarfs.


Fyrir hönd stjórnenda

Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir

Skólastjóri

Nýir nemendur í 2.-7. árgangi Nýir nemendur í 2.-7. árgangi

Nýir nemendur ásamt forsjáraðilum í 2.-7. árgangi eru boðaðir í heimsókn í skólann mánudaginn 24. ágúst n.k. kl. 10:00. Við hittumst á sal skólans, skoðum skólann og nemendur hitta umsjónarkennara.


Nýir nemendur 1. árgangs hitta umsjónarkennara sína í einstaklingsviðtölum á skólasetningardag.

Skólasetning Skólasetning

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Þriðjudaginn 25. ágúst verður skólasetning. Nemendur 2.-7. bekkjar hittast á sal skólans samkvæmt ofangreindum tímasetningum. Í kjölfarið hitta nemendur umsjónarkennara sína og fá stundatöflu vetrarins afhenta. Forsjáraðilar eru hjartanlega velkomnir.


Nemendur 1. árgangs fara í einstaklingssamtöl ásamt forsjáraðilum hjá umsjónarkennurum. Viðtalsboð hafa verið send út.

Vöfflukaffi 25. ágúst Vöfflukaffi 25. ágúst

User uploaded image
zoom_out_map

Foreldrafélagið verður með fjáröflun á skólasetningardag og býður uppá rjúkandi heitar vöfflur og fleira góðgæti gegn vægu gjaldi. Við hvetjum öll til að staldra við, njóta og spjalla saman. Athugið að eingöngu er hægt að greiða með peningum eða leggja inná reikning á staðnum.

Skólabyrjun Skólabyrjun

Frístund opnar kl. 13:00, þriðjudaginn 25. ágúst fyrir skráða nemendur 1.-4. árgangs.


Skóli hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst.


Skólabyrjun nemenda 1.-4. árgangs er kl. 8:15 og kl. 8:30 hjá nemendum 5.-7. árgangs.


Skólahúsnæðið opnar kl. 8:00.


Forföll er hægt að tilkynna í gegnum Mentor eða á skrifstofu skólans í síma 4413600. Mikilvægt er að tilkynna forföll áður en skóli hefst. Skrifstofa skólans opnar kl. 8:00 og lokar kl.15:00 .


Á heimasíðu skólans má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um skólastarfið. Skólinn er einnig með Facebook síðu þar sem koma reglulega inn skemmtilegar fréttir og upplýsingar. Hlekkur á heimasíðuna og Facebook er hér fyrir neðan.

Heimasíða Hörðuvallaskóla
Facebook síða Hörðuvallaskóla

Hádegismatur og nesti Hádegismatur og nesti

Hafragrautur

Boðið er upp á hafragraut áður en skóli hefst á milli kl. 8:00 - 8:30 þriðjudaga - föstudaga fyrir nemendur skólans. Hafragrauturinn er gjaldfrjáls.

Nesti

Nestistími nemenda er í kringum fyrstu frímínútur að morgni. Nemendur koma með nesti að heiman og eru foreldrar/forsjáraðilar hvattir til að senda börn sín með hollt og gott nesti í skólann og vatn í brúsa. Umbúðum utan af nesti skulu nemendur fara með heim til flokkunar.


Hörðuvallaskóli er hnetulaus skóli.

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

Skólamáltíðir verða gjaldfrjálsar í grunnskólum Kópavogs frá upphafi skólaárs haustið 2024. Foreldrar og forsjáraðilar þurfa þó áfram að skrá nemendur í mataráskrift, meðal annars til þess að hægt sé að halda utan um nemendur með ofnæmi, óþol og sérfæði sem og til þess að halda utan um fjölda nemenda í mat. Þeir nemendur sem eru nú þegar skráðir í mat hjá okkur frá síðasta skólaári þurfa ekki að skrá sig aftur.

Skráning fer fram hér


Hildur Sigurðardóttir matreiðslumaður er yfirmaður skólaeldhússins.

Hádegismatur er eldaður í eldhúsi skólans og tekur matseðill mið af leiðbeiningum Lýðheilsustöðvar um hollustu og næringu. Matseðil fyrir hvern mánuð má nálgast á heimasíðunni. Auk hefðbundins matseðils er einnig boðið upp á grænkeraseðil.

Ýmsar upplýsingar Ýmsar upplýsingar

User uploaded image
zoom_out_map

Símar og símaúr

Símar og símaúr eru ekki leyfð í Hörðuvallaskóla. Foreldra eru hvattir til að láta börnin skilja símana og símaúrin eftir heima. Ef foreldrar þurfa að ná í börnin sín á skólatíma er þeim beint á skrifstofu skólans.

Ritföng og íþróttafatnaður

Kópavogsbær útvegar nemendum ritföng í skólanum. Nemendur þurfa að koma með íþróttaföt og sundföt. Mikilvægt að vera klæddur eftir veðri og yngstu börnin þurfa að vera með föt til skiptanna í töskunum sínum.

Góð ástundun er mikilvæg! Góð ástundun er mikilvæg!

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skólastjórnendur 2026 - 2027 Skólastjórnendur 2026 - 2027

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Hildur Jónasdóttir deildarstjóri yngsta stigs er í námsleyfi þetta skólaár og Soffía Ámundadóttir leysir hennar stöðu af.

Guðríður Elsa Einarsdóttir, skólaritari, er hætt störfum og í hennar stað kemur Inga Ragna Ingjaldsdóttir, skrifstofustjóri.

Frístund Hörðuvallaskóla - Hörðuheimar Frístund Hörðuvallaskóla - Hörðuheimar

Frístund Hörðuvallaskóla ber nafnið Hörðuheimar og er staðsett úti í Þorpi, fjórum skúrum á skólalóð. Starf 3. og 4. bekkjar, Kastalans, er staðsett á neðri hæð við endann á gula gangi.


Umsókn um Frístund fer fram í gegnum https://fristund.vala.is/umsokn/#/login


Frístund er fyrir börn í 1. - 4. bekk og er opin eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur, til kl. 16:30. Börnin eru sótt út í skóla af starfsmönnum Hörðuheima þegar skóladegi lýkur. Frístund er opin alla þá daga sem skólinn starfar en einnig allan daginn á starfsdögum skólans. Frístund er lokuð tvo starfsdaga yfir skólaárið. Þeir eru merktir inn á skóladagatal skólans. Frístund er ekki opin í vetrarfríum. Starfsemi í Hörðuheimum hefst á skólasetningardag kl. 13:00.


Forstöðumaður frístundar er Margrét Áslaug og aðstoðarforstöðumaður er Áróra Sjöfn. Margrét Áslaug er að leysa Thelmu Lind af sem tekur að sér umsjónarkennslu í vetur og er Áróra Sjöfn að leysa stöðu Margrétar af sem er aðstoðarforstöðumaður.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Hörðuvallaskóli Kópavogi
Hörðuvallaskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter