Smore logo
remove_red_eye 129
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

DJÚPAVOGSSKÓLIHUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

OKTÓBER

CITTASLOW SUNNUDAGUR


  • 11.október Skipulagsdagur-frídagur nemenda.
  • 12.október Samskiptadagur - nemendur og foreldrar hitta umsjónarkennara.
  • 13.október Leikjadagur (áður keppnisdagar).
  • 14.október Leikjadagur.
  • 14.október Gunni og Felix koma í heimsókn.
  • 22.október - fyrsti vetrardagur.
  • 24.október Vetrarfrí.
  • 25.október Vetrarfrí.

NÆSTA VIKA


ATHUGIÐ AÐ Á SUNNUDAGINN TEKUR DJÚPAVOGSSKÓLI ÞÁTT Í CITTASLOW-SUNNUDEGI.


Mánudagur 10.október
  • Mætum hress og kát eftir gott helgarfrí.


Þriðjudagur 11.október - Skipulagsdagur - nemendur eiga frí í dag.


Miðvikudagur 12.október - Samskiptadagur - nemendur koma í viðtal til umsjónarkennara með forráðamanni.


Fimmtudagur 13.október - Leikjadagur

  • 14:20 - 15:50 Teymisfundur.


Föstudagur 14.október - Leikjadagur

  • Í dag fáum við góða gesti í samveru.
  • Nemendur fara í gott helgarfrí.

MARGT AÐ GERAST Í NÆSTU VIKU

Margt skemmtilegt var á dagskrá hjá okkur í þessari viku og það er margt að gerast hjá okkur í næstu viku.


  • Á Sunnudaginn tekur Djúpavogsskóli þátt í dagskrá á Cittaslow-sunnudegi. Vonandi sjáumst við sem flest þar.
  • Á máundag er kennsla samkvæmt stundarská.
  • Á þriðjudag eiga nemendur frí en starfsfólk skólans nýtir daginn til að undirbúa næstu daga og vikur.
  • Á miðvikudaginn mæta nemendur með forráðamanni í viðtal hjá umsjónarkennar og setja sér markmið og ræða saman.
  • Á fimmtu- og föstudag eru leikjadagar. Leikjadagar eru í raun gömlu keppninsdagarnir okkar. Nemendur hafa ítrekað beðið um að þessir dagar komi aftur inn á skóladagatalið. Við ætlum að breyta aðeins skipulaginu á þessum dögum, m.a. að setja minni áherslu á keppni og meiri áherslu á nám í gegnum skemmtilega leiki. Umsjónarkennarar senda ykkur skipulag leikjadaga í næstu viku.
  • Á föstudaginn fáum við góða gesti í samveru. Gunnar Helgason og Felix Bergson er á ferð um Austurlandið og auðvitað tökum við vel á móti þeim.

NÁMSSTEFNA SKÓLASTJÓRA

Námsstefna skólastjóra er haldin á hverju ári í byrjun október og Obba og Þórdís voru mættar á skólabekk í morgun. Í ár voru tveir frábærir fyrirlesarar, Dr. Jane Keise og Sean T. Slade.

Dr. Keise er ráðgjafi í leiðtogaþjálfun, kennsluþjálfun og markþjálfun. Hennar sérsvið er þar að auki tilfinningagreind og þjáfun í geðrækt.


Sean T. Slade er forstöðumaður hinnar alþjólegu menntastofnunar BTS SPARK North America sem hefur það að markmiði að þjálfa næstu kynslóð menntaleiðtoga.


Það er frábært tækifæri fyrir skólastjórnendur á Íslandi að fá svona fyrirlestra. Hér eru á ferð fyrirlesarar sem farar víða um heim og hafa mikla reynslu í sínu fagi.


Þau Keise og Sean ræddu m.a. um heildræna stjórnun og áhrif stjórnenda á velferð í skólastarfi. Námsstefnan heldur áfram á morgun.

PRJÓNAÞEMA

Þessa dagana er prjónaþema á mið- og unglingastigi. Það eru þær Heiða og Steinunn sem sjá um það.
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

ÚR HEIMILISFRÆÐI

Frá heimilisfræðinni - Steikt hrísrjón með kjúklingi, eggjum og grænmeti

Fyrir 2
½ bolli hrísgrjón
1 bolli vatn
1 msk olía
1 kjúklingabringa, elduð og rifin niður
½ laukur, saxaður
1 hvítlauksrif, pressað
2 msk grænar baunir, frosnar
2 gulrætur, skornar smátt
2 egg
2 msk soyasósa

1 msk hoisin sósa

  1. Sjóðið hrísgrjón í vatninu þar til þau eru fullelduð.
  2. Hitið olíu á pönnu við meðalhita. Bætið lauk, hvítlauk, grænum baunum og gulrótum út á pönnuna og steikið í 5-7 mínútur.
  3. Hrærið egg í glasi og blandið síðan saman við grænmetið.
  4. Bætið því næst hrísgrjónum, kjúklingi, soyasósu og hoisin sósu á pönnuna. Blandið vel saman.
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Bestu kveðjur og góða helgi.

Starfsfólk Djúpavogsskóla

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter