Smore logo
remove_red_eye 733
page background
Logo

Tæknótíðindi

25. mars 2026

Tæknótíðindi25. mars 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 25. mars - Páskabingó Skólavörðuholti

  • 25. mars - Klúbbakvöld NST
  • 26. mars - Páskabingó Háteigsvegi
  • 27. mars - Páskabingó Hafnarfirði
  • 30. mars - 7. apríl - Páskafrí
  • 8. apríl - Kennsla hefst á ný eftir páska

Páskabingó NST Páskabingó NST

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendafélagið heldur skemmtilegt páskabingó í matsalnum í vikunni. Viðburðurinn er ætlaður nemendum skólans sem eiga möguleika á að vinna gómsæt páskaegg.


Skólavörðuholt

Miðvikudaginn 25. mars kl. 12:15


Háteigsvegur

Fimmtudaginn 26. mars kl. 12:15


Hafnarfjörður

Föstudaginn 27. mars kl. 12:15

Verk og vit Verk og vit

User uploaded image
zoom_out_map

Stórsýningin Verk og vit fór fram í Laugardalshöll dagana 19.-22 mars. Að þessu sinni unnu tvær deildir innan Tækni­skólans að verk­efni í sam­starfi við BYKO sem snéri að því að hanna og byggja sauna­klefa sem var byggður á bás BYKO á sýningunni.


Viðbuðurinn var sérlega skemmtilegur, mikill fjöldi gesta lagði leið sína í höllina og stóðu smíðanemendur sig með mikilli prýði við að setja upp saununa.


Hér má sjá skemmtilegar myndir frá Verk og vit.

User uploaded image
zoom_out_map

Gengið frá samningi við nemendur hönnunar- og nýsköpunarbrautar

User uploaded image
zoom_out_map

Smíðanemendur

User uploaded image
zoom_out_map

Smíðanemendur og kennarar

User uploaded image
zoom_out_map

Sánan Bogi tekur á sig mynd

User uploaded image
zoom_out_map

Undirbúið fyrir klæðningu

User uploaded image
zoom_out_map

Margt um manninn

Skrúfudagurinn Skrúfudagurinn

User uploaded image
zoom_out_map

Skrúfudagurinn var haldinn hátíðlegur laugardaginn 21. mars í húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg.


Innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson setti daginn og Herbert Guðmundsson tónlistarmaður tók lagið. Skólanum voru veittar veglegar gjafir. Minningarsjóður Rafns Magnússonar gaf til að mynda tvo suðuherma og fyrirtækið Vélar og skip í samvinnu við Eimskip gáfu skólanum gír sem notaður verður til kennslu.


Það var einstaklega gaman að taka á móti þeim fjölmörgu gestum sem lögðu leið sína til okkar síðastliðinn laugardag og gerðu Skrúfudaginn 2026 að einstaklega vel heppnuðum degi. Nemendur í vélstjórn eiga stórt hrós skilið fyrir frábæran undirbúning dagsins og útgáfu á veglegu Skrúfublaði.

Ljósmyndir / Hulda Margrét

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Mikilvæg skilaboð frá skólasálfræðingi Mikilvæg skilaboð frá skólasálfræðingi

Benedikt Bragi Sigurðsson skólasálfræðingur skrifaði áhugaverða grein til nemenda skólans sem fjallar um mikilvægi góðrar geðheilsu.


Í greininni fjallar hann jafnframt um gagnleg ráð til að efla andlega líðan og bendir á einföld, raunhæf skref sem hægt er að taka í átt að betri geðheilsu.


Við minnum á að hægt er að panta tíma hjá Benedikt á Innu eða í gegnum netfangið hans bbs@tskoli.is

docx
insert_drive_file
Geðheilsa – ekki bara þegar eitthvað er að
Download
17.6 KB

Svefn skiptir máli Svefn skiptir máli

User uploaded image
zoom_out_map

Fjóla Helgadóttir hjúkrunarfræðingur sendir nemendum orðsendingu um mikilvægi svefns. Í grein sinni fjallar Fjóla um áhrif skjánotkunar á melatónínframleiðslu og mikilvægi þess að leyfa líkamanum að undirbúa sig náttúrulega fyrir hvíld.

Fjóla Helgadóttir hjúkrunarfræðingur skrifar:


Af hverju skiptir svefn svona miklu máli fyrir ungmenni?

„Bara einn þátt í viðbót.“ „Ég þarf aðeins að klára þetta á símanum.“ Þetta eru setningar sem fara í gegnum hugann hjá mörgum á kvöldin. Fyrir mörg ungmenni verður svefninn oft það sem víkur þegar dagurinn er fullur af skóla, æfingum, vinum og skjátíma. En svefn er ekki munaður – hann er ein af mikilvægustu undirstöðum góðrar heilsu.


Ungmenni þurfa yfirleitt 8–10 klukkustunda svefn á hverri nóttu. Á meðan við sofum vinnur líkaminn mikilvægt starf: heilinn vinnur úr upplýsingum dagsins, styrkir minni og nám, líkaminn endurnýjar sig og ónæmiskerfið eflist. Góður svefn hjálpar því ungmennum að einbeita sér betur, læra betur og líða betur bæði líkamlega og andlega.


Svefninn stjórnast einnig af innri lífklukku líkamans, svokölluðum sólarhringstakti. Hormónið melatónín, sem oft er kallað svefnhormónið, spilar þar lykilhlutverk. Framleiðsla þess eykst þegar dimmir á kvöldin, nær yfirleitt hámarki um miðja nótt og minnkar aftur þegar birtir að morgni. Hjá unglingum byrjar melatónínframleiðslan oft seinna á kvöldin en hjá yngri börnum og fullorðnum. Því eru margir unglingar ekki orðnir syfjaðir snemma á kvöldin – en þurfa samt að vakna snemma í skólann.


Bjart ljós frá símum, tölvum og spjaldtölvum getur seinkað melatónínframleiðslu enn frekar. Þess vegna er gott að draga úr skjánotkun síðustu klukkustundirnar fyrir svefn og leyfa líkamanum að undirbúa sig fyrir hvíld.


Sumir velta fyrir sér hvort taka eigi melatónín sem fæðubótarefni til að hjálpa til við svefn. Í flestum tilfellum er það ekki nauðsynlegt, þar sem líkaminn framleiðir hormónið sjálfur. Mikilvægast er að skapa góðar svefnvenjur: fara að sofa og vakna á svipuðum tíma, fá dagsbirtu og hreyfingu yfir daginn og hafa rólegt og dimmt umhverfi þegar komið er að svefni.

Svefn er einfaldlega ein besta fjárfesting sem ungmenni geta gert í eigin heilsu. Þegar við sofum vel höfum við meiri orku, betri einbeitingu og erum betur í stakk búin til að takast á við daginn.


Ef svefnvandamál eru viðvarandi er gott að leita ráðgjafar, til dæmis hjá skólahjúkrunarfræðingi, og skoða möguleika á að búa til svefnáætlun.

Páskafrí Páskafrí

User uploaded image
zoom_out_map

Páskafrí hefst 30. mars og stendur til og með 7. apríl. Skrifstofa og bókasöfn skólans verða lokuð í páskafríinu.


Kennsla hefst að nýju miðvikudaginn 8. apríl samkvæmt stundatöflu.


Tækniskólinn óskar öllum nemendum og starfsmönnum gleðilegra páska! 🐤🐤🐤

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter