Smore logo
remove_red_eye 644
page background
Logo

Tæknótíðindi

3. febrúar 2026

Tæknótíðindi3. febrúar 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 3. febrúar - Miðasala á árshátíð hefst
  • 4. febrúar - Klúbbakvöld Háteigsvegi
  • 9. febrúar - Miðspannarmat birt
  • 12. febrúar - Árshátíð Tæknó og MH

Árshátíð Tæknó og MH Árshátíð Tæknó og MH

Árshátíðarball nemendasambands Tækniskólans og nemendafélags MH verður haldið 12. febrúar í Kolaportinu. Þema árshátíðarinnar er Royal. Listamennirnir Sykur, BlazRoca, DJ Kollz, Inspector Spacetime og Saint Pete koma fram.


Miðasala á ballið hófst í dag 3. febrúar á NST.is. Upplýsingar um kvöldverð Tæknó á undan ballinu koma fyrir vikulokin með tölvupósti. Þetta er í annað skiptið sem þessir tveir skólar taka höndum saman um árshátíðarball en sameiginlega ballið í fyrra heppnaðist mjög vel.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Ytra mat Ytra mat

User uploaded image
zoom_out_map

Í næstu viku fer fram ytra mat á starfsemi Tækniskólans en slíkt mat er framkvæmt í framhaldsskólum á nokkurra ára fresti og er á vegum mennta- og barnamálaráðuneytis. Í þetta sinn fer ytra matið fram á Skólavörðuholti.


Matið fer fram með þeim hætti að matsaðilar fara í skoðunarferðir um skólann, koma í heimsóknir í einhverjar kennslustundir og taka viðtöl við hluta nemenda og starfsfólks.


Núna á fimmtudagsmorgun 5. febrúar fá allir nemendur skólans senda könnun í tölvupósti og er afar mikilvægt að þátttaka verði góð en könnunin veitir nemendum tækifæri til að láta rödd sína heyrast í ytra matinu.

Júlía Rós sigurvegari Átótjúnsins Júlía Rós sigurvegari Átótjúnsins

User uploaded image
zoom_out_map

Júlía Rós Kristinsdóttir, nemandi á hönnunar- og nýsköpunarbraut, sigraði söngkeppni Tækniskólans, Átótjúnið, sem fram fór miðvikudaginn 21. janúar í Mengi. Hún flutti lagið Still loving you eftir Scorpions sem hún segist hafa haldið haldið upp á í töluverðan tíma.


Júlí Rós verður því fulltrúi Tækniskólans í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram laugardaginn 11. apríl í Háskólabíói.


Í öðru sæti keppninnar hafnaði Yiannis Voulgarakis, nemandi á hljóðtæknibraut, sem flutti lagið My life með Imagine Dragons og í þriðja sæti varð Helga Lilja Eyþórsdóttir, nemandi á tölvubraut, sem flutti lagið lagið Maybe This Time úr söngleiknum Cabaret.


Dómnefnd skipuðu þau Ólafur Páll Gunnarsson, Klara Einarsdóttir og Brynja Gísladóttir, nemandi á málarabraut og sigurvegari í söngkeppni Tækniskólans 2025.


Hér má lesa meira um söngkeppnina.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Hönnunarsamkeppni Tækniskólans og BYKO Hönnunarsamkeppni Tækniskólans og BYKO

User uploaded image
zoom_out_map

Tvær deildir innan Tækniskólans taka þátt í samstarfsverkefni Tækniskólans og BYKO sem snýr að því að hanna og byggja sauna­klefa fyrir stórsýninguna Verk og vit sem verður haldin í Laugardalshöll dagana 19.-22. mars.


Verkefnið hófst á hönnunarsamkeppni þar sem fimm hópar, alls 22 nemendur á hönnunar- og nýsköpunarbraut, kynntu sérhannaða sauna­klefa fyrir dómnefnd skipaða fulltrúum Tækniskólans og BYKO.


Þær Matthildur Ingadóttir, Harpa Hua Zi Tómasdóttir og Svandís Halldórsdóttir sigruðu samkeppnina. Hönnun þeirra var mínimalísk og skemmtileg, með áherslu á útsýni og notagildi.

Sigurður Pálsson, for­stjóri BYKO, hitti nemendurna föstudaginn 30. janúar og spjallaði við þau um verkefnið og þakkaði fyrir vel unnar og vandaðar tillögur.


Hér má lesa nánar um hönnunarsamkeppnina.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter