Fréttabréf Engidalsskóla okt. 2025
Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
Fréttabréf Engidalsskóla
Kæru foreldrar/forsjáraðilar.
Skólastarf í Engidalsskóla hefur gengið mjög vel það sem af er hausti. Haustið hefur farið vel með okkur og vel gekk að vera úti með íþróttir og margir hópar farið í allskyns útinám. Nú eru íþróttir komnar inn og mikilvægt að allir mæti með íþróttaföt og handklæði þá daga sem íþróttir eru á stundakrá. Við gerum ráð fyrir að nemendur fari í sturtu eftir íþróttir þar sem eitt af markmiðum Aðalnámskrár er að nemendur geti skilið mikilvægi hreinlætis í tengslum allar við íþróttir.
Nú er smá saman að komast betri reynsla á Í-mat og upplifun okkar hér í skólanum er að nemendur séu almennt að verðar sáttari og sáttari við Í-mat. Nú er ljóst að boðið verður upp á hafragraut á morgnanna en ekki alveg ljóst hvaða dag það byrjar. Það er mikilvægt að allir þeir sem velja að koma með nesti velji holt og gott nesti. Þetta á bæði við morgunnesti og hádegisnestið. Það er ekki í boði að koma með eitthvað sem er eins og snakk, eða ávaxtarúllur í pakka með myndum (má taka rúllurnar úr og setja í box) auðvitað alls ekkert með hnetum í. Neðst í fréttabréfinu eru góðar leiðbeiningar að hollu og góðu nesti. Þegar einn og einn fer ekki eftir leiðbeiningunum skapar það leiðindi og óarfa álag í bekknum og spennu milli barnanna, eitthvað sem við viljum ekki.
Það var brunaæfing hjá okkur 17. september og tók það okkur tæpar fimm mínútur að rýma húsið. Allir eru orðnir flinkir í þessu og fljótir að koma sér í sitt hólf en það tekur alltaf lengstan tíma að rýma efri hæðina í nýrri byggingunni þar sem margir þurfa að fara niður þröngan hringstiga á sokkunum.
Við vekjum athygli foreldra/forsjáraðila á glærum, sem fengnar eru frá Heimili og skóla, um miðlanotkun og er að finna hér neðar í fréttabréfinu. Þær eru bæði fróðlegar og geta verið leiðbeinandi, hvetjum ykkur til að skoða þær.
Fyrir tveimur árum breyttum við í Engidalsskóla hefðbundnum haustfundum með foreldrum/forsjáraðilum og settum áhersluna á líðan nemenda og það hvernig við öll sem að þeim komum getum haldið betur utan um þau saman. Þetta er því þriðja haustið sem við boðum til líðanfunda í hverjum árgangi.
Við byrjum fundina stutt á sal og förum svo í bekkjarstofur þar sem foreldrar geta borið saman bækur og rætt saman um sín börn. Í fyrra var bætt við farsældarsáttmála sem kemur frá Heimili og skóla og er uppfærsla af gömlu foreldrasáttmálum Heimilis og skóla ef einhverjir kannast við þá. Það er ósk frá stjórn foreldrafélagsins að við gefum okkur tíma í lok fundarins og gerum sáttmála í hverjum árgangi. Rannsóknir sína að þar sem foreldrar standa þétt saman vegnar börnum betur.
Hér fyrir neðan er slóð á heimasíðu Heimilis og skóla en þar er meðal annars hægt að lesa sér til um farsældarsáttmálann á nokkrum tungumálum.
Ýmiss konar fræðsluefni, það þarf aðeins að fletta niður til að finna efnið um farsældarsáttmálana: https://sites.google.com/view/heimiliogskli/fr%C3%A6%C3%B0sluefni
Fundartímar
Þriðjudagurinn 7. október kl. 17:30 3. bekkur og 4. bekkur
Þriðjudagurinn 7. október kl. 19:30 1. bekkur og 2. bekkur
Fimmtudagurinn 9. október kl. 17:30 5. bekkur, 6. bekkur og 7. bekkur
Það er mikilvægt að allir nemendur eigi fulltrúa á fundinum og því óskum við eftir skráningu.
Með bestu kveðju,
Skólastjórnendur Engidalsskóla.
Aðalnámskrá grunnskóla - skólanámskrá Engidalsskóla
Lestrarkeppni 15. sept - 15. okt 2025
Nú setjum við kraft í heimalestur.
Við í Engidlsskóla erum búin að skrá alla árganga í Svakalegu Lestrarkeppnina. Allar upplýsingar um keppnina er að finna hér. Það er von okkar að foreldrar/forsjáraðilar haldi vel utanum heimalesturinn og ekki gleyma að skrá heimalesturinn í læsir.
Þeir sem ekki eru búnir að skár nemendur inn í læsir endilega drífið í að gera það.
Lesfimin
Lesfimiprófin komu ágætlega út nú í september þar sem allir nema einn árgangur var á eða yfir landsmeðaltali. Við setjum markið auðvitað hátt og ætlum okkur að ná enn betri árangri í janúar og hvetjum því alla til að vera duglega til að æfa sig, æfingin skapar meistarann. Eins ungir nemendur og eru í Engidalsskóla þurfa stuðning og hvattningu til að ná sínum markmiðum og því er mikilvægt að forelrar/forsjáraðilar taki ábyrgð með þeim.
Jákvæð miðlanotkun
Uppeldi til ábyrgðar, Skýru mörkin
Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is
Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.
Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka
Útivistarreglur barna
Engidalsskóli
Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433