Smore logo
remove_red_eye 1.2K
page background

Hvalrekinn

15. maí 2025

Hvalrekinn15. maí 2025
zoom_out_map
Ágætu foreldrar


Þá er þessu skólaári næstum lokið. Skólaslit nemenda í 1.- 9. bekk eru föstudaginn 6. júní og hjá nemendum í 10. bekk fimmtudaginn 5. júní. Sjá nánar hér fyrir neðan. Bjóðum við alla velkomna og vonandi sjáum við ykkur sem flest.

Ég óska þess að þið hafið það sem best í sumar. Njótið sumarsins, hlúum að okkar nánustu og mætum hress og kát þegar skólinn hefst að nýju mánudaginn 25. ágúst.


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.

zoom_out_map

Síðustu skóladagar þetta skólaárið

  • Dagskrá bekkja/ árganga má sjá á Mentor.
  • Nemendur í 7., 8. og 9. bekk þurfa að skila inn umsókn um valgreinar fyrir næsta skólaár ekki seinna en 31. maí. Valblað nemenda verður sent nemendum og foreldrum í tölvupósti.

  • Nemendur eiga að skila spjöldum / Ipödum, hleðslutækjum og snúrum og vera búnir að taka lykiloðið af spjaldinu, mánudaginn 2. júní
  • Íþróttadagur er þriðjudaginn 3. júní.

  • Skólaslit 1-9. bekkjar 6. júní og hjá 10. bekk 5. júní kl. 15:00.
zoom_out_map

Útskrift nemenda í 10. bekk

Útskrift nemenda í 10. bekk verður fimmtudaginn 5. júní. Athöfnin fer fram á sal skólans og hefst klukkan 15:00.

Myndataka verður af nemendum að lokinni athöfn.

Að lokinni athöfn er nemendum og gestum þeirra boðið að þiggja kaffiveitingar.


Föstudaginn 6. júní kl. 12:00 verða einkunnir nemenda í 10. bekk lesnar yfir í innritunarkerfi framhaldsskólans og birtar nemendum í umsókn þeirra til framhaldsskólanna.

zoom_out_map

Skólaslit nemenda í 1. - 9. bekk

Skólaslitin í Hvaleyrarskóla verða föstudaginn 6. júní. Mæting nemenda á sal er sem hér segir:

Yngri deild:

  • 1. og 2. bekkir kl. 8:30
  • 3. og 4. bekkir kl. 9:30

Miðdeild:

  • 5., 6. og 7. bekkir kl. 10:30

Elsta deild:

  • 8. og 9. bekkir kl. 11:30


Nemendur mæta á sal skólans en fara síðan í sínar heimastofur með umsjónarkennara. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir á skólaslitin með sínum börnum.

zoom_out_map

Hátíð á Holtinu - þriðjudagin 3. júní

Vorhátíð Foreldrafélags Hvaleyrarskóla og Hvaleyrarskóla verður haldin þriðjudaginn 3. júní milli kl. 17:00 og 19:00.
Margt skemmtilegt í boði. Hoppukastalar, matarvagnar, andlitsmálning, Candy floss, pylsur, Prettyboitjokkó mætir á svæðið og margt fleira.

open_in_new zoom_out_map

Sumarlestur - mikilvægt að lesa í sumar

Mikilvægt er að slá ekki slöku í lestrinum í sumar. Hér má finna sumarlestur í bingó formi. Við hvetjum nemendur til að lesa eins og vindurinn í fríinu. Skila síðan bingóspjaldinu til Sifjar á bókasafninu eftir sumarið. Mikilvægt að spjöldin séu útfyllt til að fá verðlaunum.

open_in_new zoom_out_map

Hvetjum alla krakka til að taka þátt í sumarlesti Bókasafns Hafnarfjarðar 🙂

Ef þið viljið lesa meira í sumar þá má hér finna efni frá bókasafninu . Sumarlestur með breyttu sniði frá Bókasafni Hafnarfjarðar.


Hversu margar blaðsíður ætlar þú að lesa í sumar? 🐱‍👓

Skákfréttir

Skákvertíðinni lauk í gær með Hafnarfjarðarmóti 8.-10. bekkjar sem haldið var í Setbergsskóla. Hvaleyrarskóli sigraði á mótinu, hlaut 18,5 vinninga af 20. Nú Framsýn var í öðru sæti með 12,5 vinninga og Víðistaðaskóli þriðji með 11 vinninga. Viðburðaríkur skákvetur að renna sitt skeið á enda. 🥰🌹

Fyrir viku síðan var Hafnarfjarðarmót miðdeildar 5.-7. bekkjar haldið í Hvaleyrarskóla. Á því móti var Hvaleyrarskóli með tvær sveitir. Þar var Hvaleyrarskóli í fyrsta sæti með 25 vinninga af 28, Víðistaðaskóli hreppti annað sætið með 23 vinninga og B-sveit Hvaleyrarskóla hrppti síðan þriðja sætið með 18 vinninga.
Glæsilegur skákvetur hjá okkar nemendum.

zoom_out_map

Sigurlið elstu deildar

zoom_out_map

Sigurlið miðdeildar A-sveit

zoom_out_map

B-sveit miðdeildar

zoom_out_map

Hreinsunardagur ~ skertur dagur

Föstudaginn 16. maí verðum við í Hvaleyrarskóla með hreinsunardag. Árgöngum við skipt á svæði í nágrenni skólans og voru allir úti að tína í 1-2 kennslustundir.

Við vitum að nemendur eiga eftir að standa sig með sóma og taka vel til hendinni. Síðan mun Kristján húsumsjónarmaður fara með það sem safnast af rusli á Sorpu.

Að loknu góðu verki verða grillaðar pylsur á eftir.


Deginum lýkur síðan fyrir kl. 12:00 hjá nemendum. Þeir nemendur sem skráðir eru í Holtasel fara þangað klukkan 12:00.

Hreinsunardagur - myndir frá síðasta ári Hreinsunardagur - myndir frá síðasta ári

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Hátíð á Holtinu - myndir frá í fyrra Hátíð á Holtinu - myndir frá í fyrra

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Frá árshátíðum nemenda í elstu- og miðdeild Frá árshátíðum nemenda í elstu- og miðdeild

zoom_out_map

Árshátíð elstu deildar

zoom_out_map

Vel skreytt anddyri

zoom_out_map

Árshátíð miðdeildar

zoom_out_map

Skóladagatal 2025-2026

Skóladagatal Hvaleyrarskóla fyirr komandi skólaár 2024-2025 var samþykkt í skólráði í lok mars. Í framhaldinu fór það til staðfestingar Fræðsluráðs.

Hér má sjá skóladagatalið.

Skólasetning næsta skólaárs verður mánudaginn 25. ágúst. Tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.

zoom_out_map

Sumarfrístund i Holtaseli 2025

Miðvikudaginn 11. júní hefst sumarfrístund í Holtaseli.

Sumarfrístund fyrir 7-9 ára.
Sumarnámskeið eru starfrækt í frístundaheimilum Hafnarfjarðar. Sumarfrístund inniheldur fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af skapandi verkefnum, leikjum, hreyfingu, spennandi ferðum, sundferðum og sameiginlegum viðburðum.

Í Holtaseli, frístundaheimili Hvaleyrarskóla verður sumarfrístund í boði frá 11.-27. júní.

Miðlæg námskeið verða í tveimur grunnskólum Hafnarfjarðar og eru í boði frá 30. júní – 18. júlí. Opið er fyrir skráningu.


  • Leiðbeiningar fyrir skráningu
  • Dagskrá Sumarfrístundar


Skráning og framboð- https://sumar.vala.is/

Sjá nánar á heimasíðu skólans.

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter