Smore logo
remove_red_eye 736
page background
Logo

Tæknótíðindi

29. október 2025

Tæknótíðindi29. október 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 29. október - Útskriftarsýning hársnyrtibrautar í Ráðhúsi Reykjavíkur
  • 29. október - Halloween klúbbakvöld á Skólavöðruholti
  • 05. nóvember - Skólaglíma á Skólavörðuholti
  • 06. nóvember - Y2K skólaball í Gamla Bíói
SKÓLADAGATAL

Útskriftarsýning hársnyrtibrautar í kvöld Útskriftarsýning hársnyrtibrautar í kvöld

User uploaded image
zoom_out_map

Miðvikudaginn 29. október kl. 20:00 bjóða útskriftarnemendur í hársnyrtiiðn til glæsilegrar sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Þema sýningarinnar er litur. Nemendur hafa valið sér lit, litatóna eða litaflóru til að vinna módelin sín útfrá. Þetta er frábært tækifri til þess að sjá skapandi og fjölbreytt verk framtíðar hársnyrta!

Verið öll hjartanlega velkomin — frítt inn.

Fjarvistir nemenda felldar niður Fjarvistir nemenda felldar niður

User uploaded image
zoom_out_map
Veður og færð á höfuðborgarsvæðinu hefur heldur betur sett strik í reikninginn varðandi skólahald í dag og í gær. Af þeim sökum verður sett inn leyfi fyrir öll þriðjudaginn 28. október og fyrir fyrstu tvo tímana í morgun í innu.

Fjölbreytileiki ræður ríkjum í félagslífinu Fjölbreytileiki ræður ríkjum í félagslífinu

User uploaded image
zoom_out_map
Félagsstarfið er í fullum gangi í Tækniskólanum og ber þar fyrst að nefna Halloween klúbbakvöld sem er í kvöld með búningakeppni, hryllingsmynd og pub quiz!

Þann 5.nóvember kemur Skólaglíman í heimsókn í Tækniskólann á Skólavörðuholti þar sem nokkrir nemendur Tækniskólans fá að spreyta sig í glímu á móti leikmönnum Skólaglímunnar.

Y2K ball Tækniskólans, Borgó og FMOS er síðan daginn eftir þann 6.nóvember en ballið verður í Gamla bíói og þar munu hinir ýmsu listamenn stíga á stokk! Miðasalan fór af stað í dag kl 10:00 og við hvetjum nemendur til að tryggja sér miða.

Nemendur Tækniskólans eiga einnig kost á því að skrá sig á Ping Pong mót sem verður í Hafnarfirði en skráningu lýkur í dag. Þetta er mót sem þið viljið ekki missa af! Þið getið skráð ykkur með því að fara á story NST á instagram.
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
Vefsíða NST

Ertu á aldrinum 15-19 ára og fékkstu hlekk á framhaldsskólapúlsinn? Ertu á aldrinum 15-19 ára og fékkstu hlekk á framhaldsskólapúlsinn?

User uploaded image
zoom_out_map

Ert þú einn þeirra nemenda sem varst í úrtaki og fékkst sendan hlekk á framhaldsskólapúlsinn en átt eftir að svara? Ef svo er hvetjum við þig eindregið til þess að gera það strax í dag en ekki seinna en á föstudag.


Þátttaka í skólapúlsinum er mikilvægur hluti af innra mati Tækniskólans en í könnuninni er m.a. spurt um námsumhverfi, virkni í námi og líðan nemenda. Um 20 mínútur tekur að svara könnuninni og þökkum við þeim sem þegar hafa svarað kærlega fyrir. Frekari upplýsingar um framhaldsskólapúlsinn má finna hér.

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter