Smore logo
remove_red_eye 1.3K
page background

Fréttamolar úr MS

6. október 2026

Fréttamolar úrMS6. október 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

User uploaded image
zoom_out_map

Fimmtudagur 22. okt.: Matsdagur

Föstudagur 23. okt.: Matsdagur

Mánudagur 26. okt.: Haustfrí

Föstudagur 6. nóv.: Síðasti kennsludagur haustannar

Mánudagur 9. nóv.: Matsdagur

Þriðjudagur 10. nóv.: Matsdagur

Miðvikudagur 11. nóv.: Einkunnaskil

Fimmtudagur 12. nóv.: Námsmatssýning

Föstudagur 13. nóv.: Annarlok

Mæting / raunmæting Mæting / raunmæting

Við minnum á mikilvægi góðrar mætingar en námið í MS byggir að miklu leyti á því að nemendur mæti vel og sinni náminu í skólanum.


Raunmæting eru þau skipti þegar nemandi er raunverulega á staðnum og er reiknuð án tillits til vottorða og leyfa. Raunmæting gildir til lokaeinkunnar í hverjum áfanga, að lágmarki 5%. Þegar nemendur eru veikir er þó vissulega mikilvægt að vera heima og ná heilsu og biðjum við foreldra að tilkynna veikindi nema undir 18 ára aldri samdægurs í gegnum Innu.


Fjarvistir án skýringa hafa áhrif á námsframvindu nemenda. Ef mæting er undir 85% við lok annar fá nemendur færri áfanga á næstu önn sem hægir á námsframvindu þeirra og útskriftarmöguleikum. Mæting undir 85% telst agabrot sem er formlega skráð af skólanum.


Almennt eru ekki veitt leyfi á skólatíma lengur en 1-3 kennslustundir í einu. Er það m.a. vegna þess verkefnabundna náms sem lögð er áhersla á í MS og stuttra anna. Nemendur sem fara í ferðalög eða missa úr daga á skólatíma geta ekki gert ráð fyrir að fá að vinna upp verkefni eða taka próf á öðrum tímum og missa þ.a.l. úr námsmat sem vegur upp í lokaeinkunn. Því mælumst við til þess að fólk skipuleggi ferðalög utan skólatíma.

Reglur um skólasókn

Miðannarmat Miðannarmat

User uploaded image
zoom_out_map
Miðannarmat (stöðumat) er nú aðgengilegt nemendum og forráðafólki í Innu.


Þeir nemendur sem fengu þrjú eða fleiri Ó eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við kennslustjóra eða námsráðgjafa.


Lesa má nánar um miðannarmatið hér.

Kemur þú á bíl í skólann? Kemur þú á bíl í skólann?

User uploaded image
zoom_out_map

Ef þú kemur á bíl í skólann þarftu að passa að leggja löglega. Reglulega eru bílstjórar sektaðir sem leggja utan skipulagðra bílastæða.

Íþróttavika Evrópu Íþróttavika Evrópu

User uploaded image
zoom_out_map

MS tók þátt í íþróttaviku Evrópu sem er forvarnarátak ætlað til að efla almenna heilsueflingu. Nemendur og kennarar gerðu ýmislegt skemmtilegt t.d. var badmintonmót í skólanum og handboltamót á vegum íþróttanefndar sem fór virkilega vel fram. Fyrirhuguð er svo ganga á Úlfarsfell í næstu viku og eru nemendur og forráðafólk hvött til að mæta. Nánar auglýst í næstu viku.


Bestu þakkir til allra þátttakenda í Íþróttaviku Evrópu!

Samtal í Menntaskólanum við Sund Samtal í Menntaskólanum við Sund

User uploaded image
zoom_out_map

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, efnir til samtals laugardaginn 10. október um allt land.


Menntaskólinn við Sund er staðarhaldari í verkefninu og eru nemendur ásamt forráðafólki hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu. Húsið opnar kl. 13:30 og hefst samtalið kl. 14:00.


Skráning fer fram á þessum hlekk.


Samtal byggir á þeirri hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.


Ungt fólk leiðir samtalið en þeim sem yngri og eldri eru, er boðið að taka þátt, til að skapa raunverulegt samtal kynslóða. Um allt land mun fólk hittast, hlusta hvert á annað og deila því sem skiptir okkur máli: vonum okkar, gildum og hugmyndum um framtíðina.

PASCH hátíð miðvikudaginn 14. október PASCH hátíð miðvikudaginn 14. október

User uploaded image
zoom_out_map

Miðvikudaginn 14. október verður haldin hátíð í tilefni af því að Menntaskólinn við Sund er orðinn PASCH skóli. Allir nemendur í þýsku við Menntaskólann við Sund eru boðnir velkomnir á viðburðinn sem fer fram í Holti kl. 13:30-15:00.

PASCH er alþjóðlegt net skóla sem stofnað var árið 2008 til að efla þýskukennslu og alþjóðlegt menningarsamstarf. Um 2000 skólar í 120 löndum eru hluti af PASCH netinu.


Hér má lesa má nánar um PASCH.

Stoðtímar í stærðfræði Stoðtímar í stærðfræði

User uploaded image
zoom_out_map

Stoðtímar í stærðfræði standa öllum nemendum í stærðfræði til boða endurgjaldslaust tvisvar í viku. Tímarnir eru haldnir á þriðjudögum kl. 14:40-15:40 og á fimmtudögum kl. 15-16 í stofu AÐA21.


Stærðfræðikennarar hvetja nemendur til að nýta þessa tíma. Þau sem ætla að mæta þurfa að skrá sig á skrifstofunni. Það er gert til að vita hversu margir kennarar þurfa að vera á staðnum.


Stærðfræðikennarar hvetja foreldra til að fylgjast með heimavinnu nemenda í stærðfræði. Samvinna foreldra og kennara getur skipt sköpum fyrir nemendur til að skipuleggja nám sitt.

Oxbridge - sumarnámskeið fyrir MS-inga í Cambridge Oxbridge - sumarnámskeið fyrir MS-inga í Cambridge

Áhugasömum MS-ingum gefst kostur á að sækja sumarnámskeið sumarið 2027 á vegum hinna virtu Oxford og Cambridge háskóla. Sumarið 2026 fór fjöldi nemenda úr MS á námskeiðið og voru þau afar ánægð með námskeiðið.


Haldinn verður upplýsingafundur fyrir áhugasöm föstudaginn 9. október kl. 12:05 í Bjarmalandi. Þau sem ætla að mæta á fundinn þurfa að skrá sig með því að smella á hlekkinn hér að neðan.


Nánari upplýsingar má lesa í meðfylgjandi bæklingi. Ef spurningar vakna má leita til konrektors á skrifstofu skólans.

Skráningarform fyrir fund um Oxbridge
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
pdf
insert_drive_file
Oxbridge Expedition Brochure (Iceland).pdf
Download
7.7 MB
Myndband um verkefnið

Stöðupróf í dönsku 10. nóvember Stöðupróf í dönsku 10. nóvember

User uploaded image
zoom_out_map

Stöðupróf í dönsku fyrir nemendur með bakgrunn í dönsku eða dönsku að móðurmáli fer fram í MS þriðjudaginn 10. nóvember kl. 12:00. Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Hildi Höllu námsráðgjafa. Athugið að stöðuprófið kostar 15 þúsund krónur.

Fréttir úr félagslífinu Fréttir úr félagslífinu

User uploaded image
zoom_out_map

Félagslífið er komið á fullt skrið í MS þennan veturinn. Í síðustu viku fór fram síðbúin nýnemavika þar sem ýmislegt var á dagksrá t.d. mætti trúbador á svæðið, handboltamót var haldið þar sem MS mætti MK og nýnemablaðið kom út.

Hápunkturinn var án efa nýnemadansleikurinn sem fór fram í Gamla bíó. Dansleikurinn fór vel fram og skemmtu nemendur sér konunglega klædd í litrík föt í anda tropical þemans eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.


Fyrr í haust fór góðgerðarvikan fram þar sem nemendur söfnuðu um 140 þúsund krónum fyrir SÁÁ. Einnig er búið að halda Morfís og Gettu betur prufur.

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter