Smore logo
remove_red_eye 134
page background

Fréttabréf Flóaskóla

apríl 2026

FréttabréfFlóaskólaapríl 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Marsmánuður var viðburðarríkur í skólanum okkar eins og sjá má hér fyrir neðan í máli og myndum. Veturinn ákvað loks að láta til sín taka, gular og appelsínugular viðvaranir settu strik í ýmislegt í skipulaginu okkar. En allt gekk þetta nú upp og börnin voru glöð að fá loks snjó til að leika sér í.


Tvær afar frambærilegar og vel heppnaðar leiksýningar settu svip sinn á marsmánuð. Það má með sanni segja að söng- og leiklistarstarf í skólanum sé í miklum blóma og við erum afar stolt af nemendum og öllu því starfsfólki sem leggur á sig ómælda vinnu til að skila þessum frábæru viðburðum sem bestum til áhorfenda.


Á öllu alvarlegri nótum voru matsferilsprófin en fyrirlögn þeirra tók drjúgan tíma í mars. Allir nemendur í 4.-10. bekk hafa nú lokið þeim prófum og niðurstöður ættu að verða aðgengilegar í skólalok í vor.


Í apríl er svo ýmislegt framundan þó sá mánuður telji ekki marga skóladaga.


Uppskeruhátíð miðstigskórsins okkar í samstarfi við jafnaldra þeirra í Hvolsskóla verður í Skálholtskirkju miðvikudaginn 15. apríl kl 17:00. Þar halda kórarnir sameiginlega tónleika sem spennandi verður að hlýða á og hvetjum við fólk til að taka frá tíma til að mæta í Skálholt.


Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk verður haldin í apríl. Þar erum við í samstarfi við skólana fimm í Uppsveitum Árnessýslu. Undankeppni í Flóaskóla verður haldin16. mánaðarins og úrslitin síðan mánudaginn 27. apríl. Að þessu sinni verða þau haldin í Flóaskóla og þangað mæta tveir fulltrúar frá hverjum skóla.


Í apríl er svo komið að yngsta stigi að setja upp leikverk. En þau ætla að takast á við hið sívinsæla verkefni Línu langsokk. Stefnt er að þeirra leiksýningu á skólatíma 22. apríl og er undirbúningur þegar hafinn. Þetta verður án efa skemmtileg sýning sem þið sjáið ykkur vonandi fært að mæta á.


Tveir starfsdagar eru í lok mánaðar 29. og 30. apríl. Þá ætlum við starfsfólk Flóaskóla að fara í námsferð í Eyjafjörðinn. Þar verða þrír skólar heimsóttir og við fáum að sjá hvernig sveitaskólar á Norðurlandi að svipaðri stærð og okkar haga starfi sínu og hvort við sjáum ekki og heyrum eitthvað áhugavert sem getur gagnast okkur við að gera okkar annars góða skóla enn betri. Þessa daga er frístund Flóaskóla lokuð.


Í maí er svo fyrirhuguð þátttaka í Skólahreysti, undankeppnin sem við tökum þátt í er á dagskrá annað hvort 6. eða 7. maí og verður auglýst þegar nær dregur.

bestu kveðjur úr Flóaskóla

Þórunn Jónasdóttir

Gjöf frá Foreldrafélagi Flóaskóla

Foreldrafélag skólans er öflugt og alltaf boðið og búið að styðja við skólann og þau fjölmörgu verkefni sem þar er tekist á við. Rétt fyrir páskana kom stjórnin færandi hendi með átta taflborð og taflmannasett og fjórar skákklukkur. Skákáhugi í Flóaskóla er töluverður og hefur vaxið umtalsvert í skólanum í kjölfar Suðurlandsmóts grunnskóla fyrr í mánuðinum. Þetta er því gjöf sem kemur sér afar vel til að styðja við þennan áhugasama hóp og kunnum við foreldrum hinar bestu þakkir fyrir.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Suðurlandsmót grunnskólaveita í skák

Suðurlandsmót grunnskólasveita fór fram í Félagsheimilinu á Flúðum þriðjudaginn 3. mars. Þar áttum við stóran hóp keppenda sem stóð sig mjög vel. Í yngri flokknum varð okkar A sveit í öðru sæti. Hana skipuðu þeir Anar Alex, Birnir Þór, Kristján Þórarinn og Þorkell Ólafur. Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Fulltrúar Flóaskóla á skákmóti grunnskólasveita 3. mars Fulltrúar Flóaskóla á skákmóti grunnskólasveita 3. mars

Elsta stig Flóaskóla sýndi Næturvaktina

Eins og fram kom í síðasta fréttabréfi höfðu unglingarnir í Flóaskóla unnið að uppsetningu leikrits frá áramótum. Það var svo sýnt 10. mars síðastliðinn. Tvær sýningar fyrir nær fullu húsi í bæði skiptin. Skyggnst var inn í störf þeirra félaga Georgs, Ólafs og Daníels á glænýrri bensínstöð við nýju Ölfusárbrúnna. Nemendur á elsta stigi, Hjálmar, Halla og allir starfsmenn sem komu að leiksýningunum eiga mikið hrós skilið fyrir frábæra vinnu og einstaklega vel heppnaða sýningu. Handritið hjá Höllu var algjör snilld, hnittið og skemmtilega staðfært að Flóanum. Krakkarnir voru hreinlega eins og útlærður leikarahópur undir stjórn Hjálmars, hvert öðru betra í sínum hlutverkum og allur texti skilaði sér mjög vel.Tæknivinna, fjáröflun, kynning og öll umgjörð sýninganna var síðan til fyrirmyndar hjá öllum sem að þeirri vinnu komu.

User uploaded image
zoom_out_map

Félagarnir Ólafur og Daníel hittast

User uploaded image
zoom_out_map

Georg kennir Daníel réttu handtökin við besnsíndæluna

User uploaded image
zoom_out_map

Foreldrar Daníels reyna að hafa vit fyrir syninum

User uploaded image
zoom_out_map

Hljómsveitin Sólin frá Sandgerði

User uploaded image
zoom_out_map

Fundur með yfirmanni stöðvarinnar

User uploaded image
zoom_out_map

Sonur Georgs kemur á bensínstöðina

User uploaded image
zoom_out_map

Söngvakeppni Samfés á Suðurlandi

Undankeppni Söngvakeppni Samfés á Suðurlandi var haldin í Þjórsárveri í byrjun marsmánaðar. Þetta var frábær skemmtun og þvílíkir sigrar sem krakkarnir unnu. Hvert atriðið á fætur öðru kom á svið, ýmist sungu þau ein, sem dúettar eða fleiri saman. Það voru alls 10 atriði flutt. Kynnarnir Bergþóra Dögg og Axel Örn stóðu sig afar vel, Ísak Nökkvi sinnti tæknimálum af alúð og svo voru söngvararnir sex, Ásta Björg, Elfa Rún, Garðar Þór, Guðni Bóas, Jón Oliver og Sigríður Svanhvít hvert öðru betra og hugrakkara á sviðinu. Dómarar voru Halldór Bjarnason gítarleikari og sviðslistamaður, Ragnar Þorri Vignisson bassaleikari í hljómsveitinni Sveitamönnum, Sigrún Hrefna formaður íþrótta-, æskulýðs- og menningarnefndar Flóahrepps og Hólmfríður Samúelsdóttir söngkona og lagahöfundur.

Niðurstaða dómnefndar var eftirfarandi:

1.sæti Garðar Örn með lagið When I come around (Green Day)

2.sæti Ásta Björg, Elfa Rún og Sigríður Svanhvít með lagið Í löngu máli (Una Torfa)

3.sæti Ásta Björg og Elfa Rún með lagið Love is an open door úr Frozen

Það var því Garðar Örn sem mætti sem fulltrúi Flóaskóla í undankeppnina á Flúðum 21. mars og stóð sig þar með prýði.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skíðaferð elsta stigs

Elsta stig skólans stefndi á þriggja daga skíðaferð norður í land á skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók um miðjan mars. Ekki gekk það alveg eftir en í vikunni fyrir páska kom smá gluggi milli lægða og þá var rokið af stað. Aðeins náðist að fara í brekkurnar seinnipart og kvöld á þriðjudeginum og miðvikudagurinn var tekinn með stæl og svo haldið af stað heim undir kvöld. Hópurinn skilaði sér svo í Flóann rétt eftir miðnætti, á undan appelsínugulri viðvörun. Allt gekk mjög vel og mikil ánægja meðal nemenda en ferðina þurfti þó að stytta um eina nótt vegna veðurs.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Sýning miðstig á söngleiknum Mamma Mia

Síðasta dag fyrir páska enduðu miðstigsnemendur öflugan listamánuð með sýningu á Mamma Mia sem byggði á samnefndum söngleik um Donnu, dóttur hennar Sophie og leit hennar að föður sínum. Skemmst er frá því að segja að þau gáfu elstu nemendunum ekkert eftir í leikgleði og faglegri framsetningu. Leikmynd, tónlist og söngur, leikur og öll umgjörð, allt var þetta til mikillar fyrirmyndar og bar vitni um þann mikla metnað sem allir hlutaðeigandi, nemendur og starfsmenn, sýndu við allan undirbúning og framsetningu. Það voru umsjónarkennarar miðstigs þær Eva, Iðunn og Unnur, ásamt Erlu myndmenntakennara og Eyrúnu tónmenntakennara og kórstjóra sem höfðu veg og vanda að þessari frábæru sýningu. Nemendur miðstigs tóku einnig virkan þátt í öllu ferlinu.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Vetrarræktun matjurta

Iðunn og Ella Veiga eru að vinna að mjög spennandi verkefni með nemendum á yngsta stigi. Nemendur eru að sá fræjum matjurta í fernur sem eru svo geymdar í plastkössum úti í útikennslustofunni. Þetta er svokölluð vetrarsáning og verður mjög fróðlegt að fylgjast með hvernig tekst til. Nemendur voru mjög áhugasamir.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter