Fréttabréf Flóaskóla
október 2025
Kæra skólasamfélag
Skólastarf í Flóaskóla hefur farið vel af stað. Veðrið hefur verið okkur hagstætt og setti það sinn svip á skólastarfið í september.
Skólanum barst óvænt en kærkomin gjöf þegar Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps færði okkur 200 þúsund krónur til búnaðarkaupa. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þann hlýhug til skólans sem þessi gjöf lýsir og sendum okkar bestu kveðjur fyrir þessa veglegu gjöf.
Fyrstu vikuna í september voru úti- og grenndarnámsdagar. Vikan endaði svo með Fjölskyldudegi og Flóamóti. Hátt í 60 knapar komu ríðandi í skólann þann dag, nemendur alveg frá 1. bekkingum upp í 10. bekkinga, foreldrar, aðstandendur og starfsmenn.
Í anda hins góða samstarfs sem er á milli skólans og Ungmennafélagsins Þjótanda var ákveðið að halda Flóamótið þennan sama dag við góðar undirtektir. Fjölskyldudagurinn heppnaðist einstaklega vel og þökkum við gestum okkar kærlega fyrir komuna.
Hið árlega Olympíuhlaup var svo haldið 19. september, hlaupnir voru í heildina 467,5 km. Þar af voru 27 hlauparar sem fóru 10 km.
Í október kemur Jón Pétur danskennari til okkar í skólann, tekur upp þráðinn frá fyrra ári og þjálfar fótafimi og samhæfingu nemenda í skemmtilegum danstímum. Þeirri vinnu lýkur með danssýningu fyrir foreldra í lok mánaðar.
Líkt og í fyrravetur ætlum við að skipta skólaárinu í sex hluta þar sem í hverjum þeirra er kennt eitt þemaverkefni byggt á einum af grunnþáttum menntunar. Fyrsta verkefnið var tengt grunnþættinum heilbrigði og velferð. Hluti af því verkefni snýr að undirbúningi nemendastýrðra viðtala. Þar hafa nemendur skoðað styrkleika sína og veikleika, sett sér markmið, unnið með áhugamál sín og margt fleira tengt þeim sjálfum. Næstkomandi miðvikudag 8.10. verða svo viðtöl í skólanum, þar sem nemendur kynna verkefnið fyrir foreldrum sínum.
Næsta þema er tengt grunnþættinum læsi. Þar ætla nemendur elsta stigs vera með vísindavöku. Miðstigið vinnur að verkefni sem nefnist Forvarnir, miðlalæsi og vísindalæsi og yngsta stig vinnur með Dýraþema – húsdýr, villt dýr, skordýr og forsöguleg dýr. Nemendur gera síðan fræðibók í lok þema. Sannarlega metnaðarfull og spennandi verkefni framundan.
bestu kveðjur úr Flóaskóla
Þórunn Jónasdóttir
Haustleyfi er í Flóaskóla 23. og 24. október
Nemendastýrð viðtöl 8.10. og starfsdagur 10.10.
Miðvikudaginn 8.10. eru nemendastýrð viðtöl í skólanum, opnað hefur verið fyrir skráningu í viðtölin inni á Mentor. Nemendur eru þessa dagana að undirbúa viðtölin undir leiðsögn kennara og vonumst við til að sem flest ykkar gefi sér tíma til að koma og fá kynningu hjá ykkar barni/börnum.
Föstudaginn 10.10. er kennaraþing Kennarafélags Suðurlands og skólastjórnendaráðstefna Skólastjórafélags Íslands, þann dag er því starfsdagur í Flóaskóla.
Báða þessa daga er frístund opin fyrir þau börn sem þar eru skráð en mikilvægt er að láta vita ef fólk ætlar ekki að nýta vistun þessa daga. Skólabílar eru ekki í akstri þessa daga.
Mæting nemenda, skráning í Mentor, eftirfylgd af hálfu skólans
Í fyrravetur voru samræmd viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn í samstarfsskólunum sex, Flóaskóla og uppsveitaskólunum. Skóla- og velferðarsvið Árnesþings kom að þessu verkefni í samstarfi við skólana. Kynning og þessi viðmið voru send til ykkar foreldra í fyrravetur í fréttabréfi og síðan var unnið eftir þessum viðmiðum að hluta til á síðasta skólaári.
Í vetur ætlum við okkur að stíga betur inn í þennan verkferil. Við vinnum eftir þessum viðmiðum og til að upplýsa ykkur foreldra jafnóðum um stöðu ykkar barns/barna verður sent heim yfirlit yfir mætingar einu sinni í mánuði, fjórða fimmtudag mánaðar er viðmiðunardagurinn. Þetta yfirlit kemur til allra burtséð frá stöðu mætinga. Við verðum síðan í sambandi við þau heimili símleiðis þar sem þörf er á, út frá þessum viðmiðum. Fjarvera frá skóla getur verið af ýmsum toga: skipulögð leyfi sem skólastjóri hefur skrifað undir en þá hafa forráðamenn líka skuldbundið sig til að sinna námi barna sinna þann tíma sem þau eru fjarverandi, veikindi af ýmsum toga og svo önnur óútskýrð fjarvera. Viðmiðin eru fyrst og fremst hugsuð til að hjálpa okkur öllum að hafa góða yfirsýn yfir mætingar hvers nemanda og eiga þess þá frekar kost á að bregðast við ef þurfa þykir.
Svipmyndir frá Fjölskyldudegi og Flóamóti
Hátt í 60 knapar komu ríðandi í Flóaskóla á Fjölskyldudaginn. Hópur nemenda alveg frá fyrsta bekk og upp í tíunda bekk kom ríðandi, mörg ásamt foreldrum eða öðrum aðstandendum, jafnvel heilu fjölskyldurnar saman. Síðan kom þónokkur hópur starfsmanna ríðandi. Hestarnir voru settir í hólf í Villingaholti hjá Jóni meðan dagskrá fór fram. Eitt af því sem var svo boðið upp á á Fjölskyldudeginum var að fá að skreppa aðeins á hestbak og voru margir nemendur sem nýttu sér það.
10. bekkingar bökuðu ýmiskonar góðgæti fyrir Fjölskyldudaginn og seldu gestum kaffi og með því. Í lok dagskrár var svo öllum boðið upp á grillaða hamborgara.
Flóamótið var að þessu sinni hluti af Fjölskyldudeginum í Flóaskóla. Bryddað var upp á þeirri nýjung að foreldrar og aðrir fullorðnir kepptu í spretthlaupi. Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum var ekkert slegið af og sýndu keppendur mikil tilþrif á hlaupabrautinni.
Aðalfundur Foreldrafélags Flóaskóla
Aðalfundur Foreldrafélags Flóaskóla var haldinn mánudaginn 29. september síðastliðinn. Fanný Ólafsdóttir var kjörin ný í stjórn félagsins sem gjaldkeri og tekur hún við af Anný Ingimarsdóttir, sem gegnt hefur embætti gjaldkera félagsins frá árinu 2020. Ný í varastjórn félagsins var kjörin Eydís Rós Eyglóardóttir, en hún kemur í stað Axels Páls Einarssonar. Cathy Krentel var endurkjörin fulltrúi foreldra í skólaráði. Þakkar stjórn foreldrafélagsins Anný og Axel kærlega fyrir þeirra störf í þágu félagsins.
Dansnámskeið - Jón Pétur í Flóaskóla
Dagana 20., 21., 22., 27. og 28. október verður Jón Pétur í Flóaskóla með danskennslu fyrir alla nemendur skólans. Námskeiðið endar á danssýningu þriðjudaginn 28. október kl 13:10 í Þjórsárveri.
Bleiki dagurinn í ár er miðvikudaginn 22. október.
Á Bleika deginum hvetjum við landsmenn til að vera bleik - fyrir okkur öll bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.
Olympíuhlaupið fór fram í blíðskaparveðri 19.9.
Auglýsing frá ART teymi Suðurlands
Auglýsing vegna umsókna í Fjölskyldu ART á næstu önn, vorönn 2026.
Umsóknarfrestur rennur út 5. desember nk.
Ef þið hafið spurningar eða óskið upplýsinga um Fjölskyldu ART þá hvet ég ykkur til að hafa samband.
Með kveðju,
Álfheiður Ingólfsdóttir
Verkefnisstjóri ART teymis Suðurlands
s. 480-8203 / 860-0427
