Fréttabréf Flóaskóla
febrúar 2026
Kæra skólasamfélag
Þau gleðilegu tíðindi bárust okkur að íþróttkennsla gæti hafist aftur eftir framkvæmdir í Þingborg. Nemendur og starfsmenn mæta því til kennslu þangað mánudag 2. febrúar. Það verður spennandi að nota þennan stóra glæsilega sal sem Þingborg skartar nú af.
Á þessu skólaári raðast leikritin okkar öll á vorönnina. Elsta stig ríður á vaðið og sýnir verk sem unnið er upp úr þáttunum Næturvaktinni. Æfingar og annar undirbúningur er hafinn en áætlaður sýningartími er í mars. Eftir vetrarleyfi hefjast svo æfingar hjá mið og yngsta stigi. Í ár setja þessir hópar upp sitt hvort verkið og þær sýningar verða á dagskrá rétt fyrir páskaleyfi. Það er mikilvæg hefð í Flóaskóla að setja upp leikverk, ætíð er mikil vinna og metnaður lagður í allan undirbúning og sýningarnar sjálfar. Þetta er dýrmætur þáttur af starfi skólans og mikilvægur þroski sem nemendur öðlast með þátttöku í þessari vinnu. Sannarlega viðfangsefni sem við getum verið stolt af í starfinu okkar. Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma á sýningar hjá okkur þegar að þeim kemur.
Nemendur í 5 bekk ásamt Eyjólfi Eyjólfssyni vinna nú af kappi að langspilasmíðum. Þetta er sjöundi veturinn sem langspilsverkefnið er unnið í Flóaskóla og má því með sanni segja að verkefnið sé orðið fastur liður í starfi skólans. Nemendur læra svo á hljóðfærin sín og taka þátt í langspilsvöku síðar í vetur.
Eftir nokkuð hefðbundið skólastarf í janúar tekur við tímabil þar sem töluvert uppbrot er á skólastarfi.
Í næstu viku er danssýning á miðvikudegi eftir hádegi.
Síðan verða smiðjur með Uppsveitaskólunum fimmtudag og föstudag. Miðstig fer að Laugarvatni á skólatíma næstkomandi fimmtudag. Elsta stig verður í sínum smiðjum á Flúðum fimmtudag og föstudag.
Vikuna þar á eftir eru tveir óhefðbundnir dagar, skertur nemendadagur á mánudegi 9. febrúar, þá fara nemendur heim kl 12:00. Daginn eftir eru nemenda- og foreldraviðtöl. Þann dag er frístund opin frá 8:00-16:30 fyrir þau börn sem skráð eru á þriðjudögum, en mikilvægt er að láta vita hvaða börn ætla að nýta dvölina og á hvaða tíma.
Þriðju vikuna í febrúar eru 7. bekkingar í Reykjaferð. Öskudagur er líka í þeirri viku, með sinni hefðbundnu dagskrá í skólanum og skertum nemendadegi, skóla lýkur kl 12:00 þann dag.
Vikuna eftir tekur við vetrarleyfi mánudag og þriðjudag 23. og 24. febrúar.
Eins og sjá má er margt á döfinni framundan
bestu kveðjur úr Flóaskóla
Þórunn Jónasdóttir
Danskennsla í Flóaskóla
Jón Pétur danskennari kom til okkar síðastliðinn fimmtudag og síðan hefur dansinn dunað í Þjórsárveri. Krakkarnir hafa margir beðið komu hans í allt haust og taka danstímunum fagnandi. Allir hópar fá fimm danstíma og lýkur kennslunni á miðvikudag 4.2. með danssýningu í Þjórsárveri kl 13:10. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir og vonandi sjá margir sér fært að mæta.
Smiðjur á mið- og elsta stigi
Miðstig fer að Laugarvatni á skólatíma, leggur af stað 8:30 og kemur til baka rúmlega 14, það gæti orðið örlítil seinkun á brottför skólabíla frá Flóaskóla þess vegna. Þrír starfsmenn fara með hópnum.
Elsta stig fer að Flúðum á fimmtudegi eftir hádegismat sem verður fyrr þennan dag hjá þeim, 11:15-11:30. Heimferð er áætluð 18:30. Á föstudag eru þau svo allan skóladaginn á Flúðum en koma heim nægilega snemma til að ná skólabílum. Lagt verður af stað frá Flúðum kl 13:30. Þrír starfsmenn fara með hópnum.
Nemenda- og foreldraviðtöl þriðjudaginn 10.2.
Þriðjudaginn 10.2. er komið að árlegum nemenda og foreldraviðtölum í skólanum. Hvert viðtal er áætlað 20 mínútur. Opnað verður fyrir skráningu í viðtölin á Mentor næstkomandi þriðjudag 3.2. þar skrá foreldrar/forráðamenn sig í viðtölin.
Foreldrar hafa oft á orði við okkur að flókið geti verið að skilja námsmatið í Mentor og vilja gjarna fá betri innsýn í hvernig það er uppbyggt og skipulagt. Við ætlum því að bjóða fólki upp á kynningu á þessu. Nokkrir starfsmenn verða til staðar í textílstofu til að fara yfir málin með þeim sem þess óska. Við hvetjum fólk til að nýta sér þetta tækifæri vel.
- Niðurstöðum verður miðlað til foreldra með því að prenta út framvindu nemenda á niðurstöðum lesfimiprófanna. Niðurstöður eru ekki aðgengilegar á Mentor.
- Í vor munu foreldrar einnig geta sótt lesfiminiðurstöður barna sinna á Ísland.is ásamt niðurstöðum úr stöðu- og framvinduprófunum sem lögð verða fyrir nemendur í 4.-10. bekk í mars á þessu ári.
Reykjaferð 7. bekkjar
Líkt og í fyrra fara nemendur okkar í 7. bekk að Reykjum með nemendum úr samstarfsskólunum okkar í Uppsveitum Árnessýslu. Ferðin er á dagskrá 16.-19. febrúar.
Læsir heimalestrarapp
Skólinn er kominn með aðgang að heimalestrarappinu Læsi. Nemendur í 1.-7. bekk verða skráðir í appið og vonandi verður það nemendum enn meiri hvatning til að sinna heimalestrinum vel. Foreldrar fengu kynningu á appinu og hvernig á að skrá sig inn í síðasta vikupósti umsjónarkennara. Hér eru síðan nánari upplýsingar um appið https://www.skolalausnir.is/
Skíðaferð elsta stigs
Í mars er áætlað að fara í skíðaferð norður í land líkt og undanfarin ár. Nánari upplýsingar varðandi ferðina verða sendar til foreldra nemenda á elsta stigi