Smore logo
remove_red_eye 122
page background

Vikan 11. - 15.sept 2023

Vikupóstur

Vikan 11. -15.sept 2023Vikupóstur

Munið að á þriðjudaginn þarf vinnustundin ykkar að vera klár

Tengill á vinnustund

zoom_out_map

Kæra samstarfsfólk,

Takk fyrir ánægjulega viku :)


Haustið er farið að minna hressilega á sig með lækkandi hitastigi. Fyrsti fundur skólateyma var í vikunni og ekki annað að heyra en að þeir hafi gengið vel. Teymisstjórar mega alveg senda á stjórnendur ef þeir vilja koma skilaboðum á alla starfsmenn í gegnum fréttabréf starfsmanna og/eða foreldra.


Þeir umsjónarkennarar sem ekki eru búnir að kalla eftir bekkjartenglum eru beðnir um að gera það sem fyrst. Aðalfundur foreldrafélagsins verður þriðjudaginn 3. október og það verður fundur með bekkjartenglum í framhaldi af honum. Það er mikill hugur í foreldrafélaginu að setja kraft í starfið og það er okkar hlutverk að stiðja við það, við munum líka bara græða á góðu og miklu samstarfi.


Í næstu viku hefjast haustfundir með foreldrum sem við ætlum að prófa að hafa með öðru sniði en áður þar sem áhersla verður á líðan nemenda. Sambærilegir fundir hafa verið haldnir í tveimur skólum í Hafnarfirði í nokkur ár og gefist vel. Á síðasta skólaári héldum við svona fund í einum árgangi og voru bæði við starfsmenn og foreldrar ánægðir með hann. Búið er að setja niður dagsetningar fyrir fundina og má sjá það hér fyrir neðan, eins texta sem hægt er að senda heim.



  • Skipulag fundarins er sama skipulag og notað er á bekkjarfundum. Foreldrar sitja í hring.
  • Umsjónarkennari og stjórnandi stýra fundi.
  • Foreldrar tjá sig um líðan sinna barna og heyra frá öðrum foreldrum. Hér er líka gott að ræða um vini eða vinaleysi.


Uppbyggingateymið vill minna á árgangamöppuna sem er að finna inni á Freeform á öllum I-pödum starfsmanna. Við allar bekkjarstofur eiga að vera hlutverk í matsal, á göngum, í frímínútum og í fataklefa, ef þetta vantar eru þið beðin um græja það (frumritið er hjá Þorgeiri). Ef einhverja bekki vantar sáttarborð eða eru með tvö endilega setjið ykkur í samband við Margréti. Næsta námskeið verður að morgni 19. september og verða vonandi flestir bekkir komnir með eða byrjaðir á bekkjarsáttmála.


Endilega nýtið ykkur nuddið hjá Ingunni, hún kemur mánudaginn11. september.



Góða helgi og njótið þess að slaka á.

Kær kveðja stjórnendur

Haustkynningar / líðanfundir

Fundirnir byrja kl: 17:30 á sal skólans þar verður skólastjóri með stutta kynningu. Síðan fer hver bekkur í sína stofu þar sem líðanfundir eru haldnir. Á hverjum fundi er einn skólastjórnandi og mumsjónakennarar.


Texti sem hægt er að nota til að boða fundina: Í vetur ætlum við að prófa að halda líðanfundi að hausti með foreldrum, umsjónarkennurum og skólastjórnanda.

Fundirnir munu byrja á stuttu innleggi skólastjóra á sal en svo fara foreldrar með umsjónarkennurum og einum skólastjórnanda í bekkjarstofur þar sem foreldrar ræða barnahópinn í heild og deila líðan sinna barna. Þessir fundir hafa mælst mjög vel fyrir í þeim skólum þar sem þeir eru hefð. Mikilvægt er að það mæti allavega einn frá hverjum nemanda. Þessir fundir koma í stað hinna hefðbundu haustfunda. Gott samstarf heimilis og skóla og gott samstarf innan foreldrahópa hefur löngum sannað sig.


12. september 1. - 2. bekkkur - Íris og Erla (Arnheiður)

13. september 3. og 4. bekkur - Íris og Erla (Arnheiður)

18. september 5. - 6. bekkur - Inga María og Margrét

2. október 7. bekkur - Inga María og Margrét

Nudd hjá Ingunni í rími hjúkrunarfræðings
Hér er hægt að skrá sig á nuddtíma. 15 mín herðar 3.500.- herðar og bak 30 mín 7.000.-
ef þið lendið í vandræðum með að skrá hafið þá samband við Ingu Maríu.
zoom_out_map

Dagskrá næstu viku

Mánudagur:

  • Kl. 8:20 1. - 4. bekkur samsöngur á sal

Þriðjudagur:


Miðvikudagur:


Fimmtudagur: Fagaðilafundur kl. 14:30


Föstudagur:

zoom_out_map

Hver á að sjá um að hreinsa skólalóðina

  • 4. og 5. bekkur týnir fyrir aftan hús hjá frístund.
  • 6. og 7. bekkur týnir hjá a og b velli og þar í kring.
  • 1. 2. og 3. bekkur fyrir framan skóla.



Kær kveðja,

umhverfisteymi Engidalsskóla

Á döfinni í september

  • 11. september kemur Ingunn nuddari og getur starfsfólk pantað 15 - 30 mín nudd hjá henni.
  • 14. Fagaðilafundur

  • 18. Grunnnámskeið í lestarkennslu- færnimiðaðir hópar: Verkfæri fyrir kennara til að vinna með snemmtæka íhlutun á yngsta stigi. kl: 14:30 - 16:00 í Áslandsskóla (Fjóla Rún Þorleifsdóttir og Hjördís Jónsdóttir

  • 19. Skipulagsdagur
  • 21. Deildarfundir
  • 25. - 28. Fer 7. bekkur að Reykjum í Hrútafirði.
  • 28. Fundir í skólateymum
Íslenskuvefurinn okkar
Stærðfræðivefurinn okkar
zoom_out_map

Matseðill vikunnar


Mánudagur: Steiktur fiskur með kartöflum og drottningasósu

Meðlætisbar: Gúrkur, tómatar, rófur, brokkolí, appelsínur og perur

Veganréttur: Brokkolíbuff með kartöflum og drottningarsósu


Þriðjudagur: Ítalskt lasagna með hrásalati og grófu rúnstykki

Meðlætisbar: Túnfiskur, kotasæla, kál, paprikur, hrásalat, banani og ananas

Veganréttur: Grænmetislasagne


Miðvikudagur: Vínarsnitsel með steiktum kartöflum og bearnisesósu

Meðlætisbar: Gular baunir, rauðkál, gúrkur, gulrætur, epli og perur

Veganréttur: Vegan snitsel með kartöflum og vegan sósu*


Fimmtudagur: Shawarmabollur með kartöflum og Tzatziki sósu

Meðlætisbar: Gular baunir, kál, paprikur, rófur, bananar og vatnsmelónur

Veganréttur: Vegan Shawarmabollur með steinseljukartöflum og vegan sósu


Föstudagur: Mexikósúpa með nachosflögum, sýrðum rjóma og osti.

Meðlætisbar: Úrval ávaxta og grænmetis

Veganréttur: Mexíkó grænmetissúpa með vegan sýrðum rjóma, nachos og rifnum vegan osti

Forföll og skráning

Vegna breytinga í stundatöflu þarf að huga að skráningu vegna forfalla. Einn tími er 40 mín og hálftími hlutfall af því.



20 mín = 0.5

30 mín = 0,75

35 mín = 0,88

40 mín = 1

60 mín = 1,5

70 mín =1,75

80 mín = 2

Forföll í gæslu

Þegar skráð eru forföll í gæslu/vinnu í matsal þarf að hafa í huga að deilt er með 60.


10 mín = 0,17

15 mín = 0,25

20 mín = 0,33

30 mín = 0,5

Smástund
Smáforrit sem hægt er að nota til að stimpla sig inn og út og leiðbeiningar um það.
Virkja þarf forritið í Vinnustund.
zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter