Smore logo
remove_red_eye 1.2K
page background

Hvalrekinn

31. maí 2024

Hvalrekinn31. maí 2024
zoom_out_map
Ágætu foreldrar


Þá er þessu skólaári næstum lokið. Skólaslit eru föstudaginn 7. júní og bjóðum við alla velkomna og vonandi sjáum við ykkur sem flest.

Ég óska þess að þið hafið það sem best í sumar. Njótið sumarsins, hlúum að okkar nánustu og mætum hress og kát þegar skólinn hefst að nýju föstudaginn 23. ágúst.


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.

zoom_out_map

Síðustu skóladagar þetta skólaárið

  • Dagskrá bekkja/ árganga má sjá á Mentor.
  • Nemendur í 7., 8. og 9. bekk þurfa að skila inn umsókn um valgreinar fyrir næsta skólaár ekki seinna en 31. maí. Valblað nemenda hefur verið sent í nemendum og foreldrum í tölvupósti.

  • Nemendur eiga að skila spjöldum / Ipödum, hleðslutækjum og snúrum og vera búnir að taka lykiloðið af spjaldinu, mánudaginn 3. júní
  • Íþróttadagur er miðvikudaginn 5. júní.

  • Skólaslit 7. júní:
zoom_out_map

Útskrift nemenda í 10. bekk

Útskrift nemenda í 10. bekk verður föstudaginn 7. júní. Athöfnin fer fram á sal skólans og hefst klukkan 15:00.

Myndataka verður af nemendum að lokinni athöfn.

Að lokinni athöfn er nemendum og gestum þeirra boðið að þiggja kaffiveitingar.


Föstudaginn 7. júní kl. 12:00 verða einkunnir nemenda í 10. bekk lesnar yfir í innritunarkerfi framhaldsskólans og birtar nemendum í umsókn þeirra til framhaldsskólanna.

zoom_out_map

Skólaslit nemenda í 1. - 9. bekk

Skólaslitin í Hvaleyrarskóla verða föstudaginn 7. júní. Mæting nemenda á sal er sem hér segir:

Yngri deild:

  • 1. og 2. bekkir kl. 8:30
  • 3. og 4. bekkir kl. 9:30

Miðdeild:

  • 5., 6. og 7. bekkir kl. 10:30

Elsta deild:

  • 8. og 9. bekkir kl. 11:30


Nemendur mæta á sal skólans en fara síðan í sínar heimastofur með umsjónarkennara. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir á skólaslitin með sínum börnum..

zoom_out_map

Hátíð á Holtinu - miðvikudaginn 5. júní

Vorhátíð Foreldrafélags Hvaleyrarskóla og Hvaleyrarskóla verður haldin miðvikudaginn 5. júní milli kl. 17:00 og 19:00.
Margt skemmtilegt í boði. Hoppukastalar, matarvagnar, andlitsmálning, skátarnir grilla sykurpúða, Candy floss, pylsur, VÆB mætir á svæðið og margt fleira.

open_in_new zoom_out_map

Sumarlestur - mikilvægt að lesa í sumar

Mikilvægt er að slá ekki slöku í lestrinum í sumar. Hér má finna sumarlestur í bingó formi. Við hvetjum nemendur til að lesa eins og vindurinn í fríinu - og skila skila svo bingóspjaldinu til Sifjar á bókasafninu í haust útfylltum spjöldum og fá að launum verðlaunum.

open_in_new zoom_out_map

Hvetjum alla krakka til að taka þátt í sumarlesti Bókasafns Hafnarfjarðar 🙂

Ef þið viljið lesa meira í sumar þá má hér finna efni frá bókasafninu .

Hér má finna efni tengt sumarlestri Bókasafns Hafnarfjarðar.

Hversu margar blaðsíður ætlar þú að lesa í sumar? 🐱‍👓

zoom_out_map

Hreinsunardagur

Föstudaginn 26. apríl vorum við í Hvaleyrarskóla með hreinsunardag. Árgöngum við skipt á svæð í nágreinni skólans og voru allir úti að tína í 1-2 kennslustundir.

Nemendur stóðu sig vel og safnaðist ótrúlega mikið af rusli sem Kristján húsumsjónarmaður fór síðan með á Sorpu.

Að loknu góðu verki fengu allir sér grillaðar pylsur á eftir.

Glæsilegt hjá okkar nemendum.

Hreinsunardagur - myndir Hreinsunardagur - myndir

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Hátíð á Holtinu - myndir frá í fyrra Hátíð á Holtinu - myndir frá í fyrra

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Frá árshátíðum nemenda í elstu- og miðdeild Frá árshátíðum nemenda í elstu- og miðdeild

zoom_out_map

Árshátíð elstu deildar

zoom_out_map

Vel skreytt anddyri

zoom_out_map

Árshátíð miðdeildar

zoom_out_map

Skóladagatal 2024-2025

Skóladagatal Hvaleyrarskóla fyirr komandi skólaár 2024-2025 var samþykkt í skólráði í lok mars. Í framhaldinu fór það til staðfestingar Fræðsluráðs.

Hér má sjá skóladagatalið.

Skólasetning næsta skólaárs verður föstudaginn 23. ágúst. Tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.

zoom_out_map

Sumarfrístund i Holtaseli 2024

Mánudaginn 10. júní hefst sumarfrístund í Holtaseli.

Sumarfrístund fyrir 7-9 ára.
Sumarnámskeið eru starfrækt í frístundaheimilum Hafnarfjarðar. Sumarfrístund inniheldur fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af skapandi verkefnum, leikjum, hreyfingu, spennandi ferðum, sundferðum og sameiginlegum viðburðum.

Í Holtaseli, frístundaheimili Hvaleyrarskóla verður sumarfrístund í boði frá 10.-28. júní.

Miðlæg námskeið verða í tveimur grunnskólum Hafnarfjarðar og eru í boði frá 1. – 19. júlí. Opið er fyrir skráningu frá og með 3. maí.

  • Leiðbeiningar fyrir skráningu
  • Dagskrá Sumarfrístundar


Skráning og framboð- https://sumar.vala.is/

Sjá nánar á heimasíðu skólans.

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter